Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 48
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR32
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
TÓNLISTINN
Vikuna 21. - 27. apríl 2011
LAGALISTINN
Vikuna 21. - 27. apríl 2011
Sæti Flytjandi Lag
1 Adele ...................................................Someone Like You
2 Valdimar ..............................................................Yfirgefinn
3 Bubbi Morthens................................................... Ísabella
4 Megas & Senuþjófarnir ...Lengi skal manninn reyna
5 Jessie J ..................................................................Price Tag
6 Magni .....................................................Ég trúi á betra líf
7 Mugison ....................................................................Haglél
8 Rihanna ........................................................................ S&M
9 Dalton ......................................... Viltu þiggja minn koss
10 Valdimar ............................................................. Brotlentur
Sæti Flytjandi Plata
1 Megas og Senuþjófarnir ..... (Hugboð um) vandræði
2 Ýmsir ......Eurovision Song Contest 2011: Düsseldorf
3 Valdimar ............................................................Undraland
4 Úr leikriti ......................................Ballið á Bessastöðum
5 Svavar Knútur ..........................................................Amma
6 Björgvin Halldórsson .............................................Duet II
7 Justin Bieber ....................................................My Worlds
8 Elly Vilhjálms .......................................... Heyr mína bæn
9 Sin Fang ................................................. Summer Echoes
10 Ýmsir ..........................................................Það er bara þú
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
Fleet Foxes var án nokk-
urs vafa ein af hljómsveit-
um ársins 2008. Frumburði
hljómsveitarinnar var gríð-
arlega vel tekið, en nú er
önnur platan á leiðinni og
væntingarnar eru miklar.
Önnur breiðskífa Fleet Foxes, Help-
lessness Blues, kemur út í byrjun
maí. Í fyrstu átti platan að vera
tekin upp á stuttum tíma og for-
sprakkinn Robin Pecknold sagði í
viðtali við tónlistarvefinn Pitchfork
að allur söngur ætti að vera tekinn
upp í einni tilraun. „Þannig að ef
við klúðrum einhverju vil ég halda
því á plötunni,“ sagði hann. „Ég vil
ekki að raddirnar verði gallalausar
og ég vil að það sé gítarklúður.“
Pecknold og félagar hættu svo
við þessa hugmynd, hentu því
sem þeir voru búnir að taka upp
og byrjuðu upp á nýtt. Þeir gáfu
sér góðan tíma í upptökurnar og
afraksturinn lofar góðu, miðað við
titillagið sem er þegar byrjað að
hljóma á öldum ljósvakans.
Nokkur tónlistartímarit hafa
þegar birt dóma um plötuna, hið
bandaríska Spin gefur plötunni
níu af tíu mögulegum og í dómn-
um kemur meðal annars fram að
tónlistin sé mýkri en á fyrri plöt-
unni. Þá kemur fram að útsetn-
ingarnar séu metnaðarfyllri og
áhrifin frá breskum skynörvunar-
hljómsveitum sjöunda áratugarins
áþreifanlegri en amerísku áhrifin
sem einkenndu fyrri plötuna. Loks
segir í dómi Spin að Fleet Foxes sé
undir miklum áhrifum frá Simon
& Garfunkel, sérstaklega í titil-
laginu.
Fleet Foxes var hljómsveit ársins
2008. Fyrsta plata hljómsveitarinn-
ar seldist vel og náði efsta sæti á
fjölmörgum listum yfir plötur árs-
ins. Það er því mikil pressa á strák-
unum í Fleet Foxes, sem eru flestir
á miðjum þrítugsaldrinum.
Í viðtali við Rolling Stone í febrú-
ar á þessu ári sagði Robin Peckn-
old að nýja platan fjallaði um
spurningarnar hver við ætlum að
vera og hvers vegna við gerum það
sem við gerum, ástarsambönd og
annað slíkt. „Mér fannst í lagi að
fjalla um þessa hluti vegna þess
að kynslóðin mín er frekar full af
sjálfri sér,“ sagði hann. „Það hefði
verið merkingarlaust að heyra mót-
mælalög um heimsfrið frá okkur.“
atlifannar@frettabladid.is
Fleet Foxes full af sjálfri sér
GÓÐIR DÓMAR Nokkur blöð hafa þegar birt dóma um nýja plötu Fleet Foxes og eru þeir flestir afar jákvæðir.
Nú styttist í að stóra húsið við höfnina, Harpan, klárist og þar með
opnast nýir og spennandi kostir fyrir tónleikahald í Reykjavík. Sinfó
og Óperan fá þar inni eins og kunnugt er, en það er líka pláss fyrir alls
konar öðruvísi tónleika í þeim fjórum sölum sem eru í húsinu og þegar
er farið að selja miða á ýmsa atburði.
Það verður að segjast eins og er að fyrstu
popptónleikarnir sem var tilkynnt að yrðu í
Hörpu lofuðu ekki mjög góðu. Cyndi Lauper
er ekki beint það ferskasta í tónlistinni á
árinu 2011 og Dylan-afmælistónleikarnir
sem voru auglýstir með viðhöfn eru jú bara
tribjút-tónleikar – ekkert að því svo sem, en
maður gerði sér vonir um aðeins bitastæðari
hluti í þessu dýra og fína húsi.
Og úr rættist. Nú þegar hafa nokkrir mjög
spennandi tónleikar verið bókaðir í Hörpu.
Í fyrsta lagi skal nefna heimstónlistarsveit-
ina Afrocubism sem spilar í húsinu 28. júní.
Þetta er sannkölluð ofursveit sem inniheldur
marga af frægustu tónlistarmönnnum Malí
og Kúbu. Fyrsta platan, samnefnd sveitinni,
kom út í fyrra og er þegar orðin klassík.
Á Listahátíð spila í Hörpunni meðal ann-
arra Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson (20.
maí) og spænska gleðisveitin Ojos de Brujo (27. maí), en hún blandar
flamenco-tónlist með ýmsum afbrigðum popptónlistar, meðal annars
hip-hoppi, reggí og danstónlist.
Og svo er það sjálfur Elvis Costello. Ferill hans er meistaraverkum
stráður og hann hefur komið víða við í tónlistinni. Costello spilar allt
frá síðpönki yfir í klassík með viðkomu í ýmsum afkimum poppsins.
Upplýsingar um það með hvaða sniði tónleikarnir hans í Hörpu verða
liggja ekki fyrir, en það má bóka góða kvöldstund. Costello spilar í
Hörpu 21. nóvember og miðasalan, sem hófst á þriðjudaginn, fór mjög
vel af stað.
Lifnar yfir Hörpunni
GÓÐUR GESTUR Snillingurinn
Elvis Costello spilar í Hörpu í
haust. NORDICPHOTOS/GETTY
> Í SPILARANUM
Beastie Boys - Hot Sauce Committee Part Two
Okkervil River - I Am Very Far
Metronomy - The English Riviera
Prefuse 73 - The Only She Chapters
Gusgus - Arabian Horse
> PLATA VIKUNNAR
Steve Sampling - The Optimist
★★★
„Steve Sampling bregst ekki boga-
listin á sinni fjórðu plötu.“ TJ
Nýtt lag sem tónlistarmaðurinn Damon
Albarn tók upp með Dan the Automator og
Kid Koala gengur nú hratt á milli tónlistar-
unnenda á netinu. Lagið komst í umferð
eftir að Kid Koala spilaði það í útvarps-
þætti á þriðjudagskvöldið.
Tónlistarmennirnir hafa ekkert látið
uppi um lagið eða önnur sem kunna að
fylgja í kjölfarið en almennt er talið að
það verði á væntanlegri sólóplötu
Dan the Automator. Albarn vann
með þeim tveimur að fyrstu plötu
Gorillaz árið 2001.
Damon Albarn hefur annars
látið lítið fyrir sér fara undan-
farið. Hann og félagar hans í Blur
virðast til að mynda ekki ætla að
láta undan kröfum aðdáenda sveitarinnar
um að hljóðrita nýja plötu. Albarn hefur hins
vegar ákveðið að koma fram á tónlistarhá-
tíðinni Manchester International Fest-
ival í sumar. Þar mun hann frumflytja
nýtt verk sem hann vinnur í samstarfi
við leikstjórann Rufus Norris. Verk-
ið kallast Doctor Dee og fjallar um
fræðimanninn og gullgerðarmanninn
John Dee sem var trúnaðarvinur
Elísabetar I. Albarn mun sjálfur
syngja í verkinu.
Nýtt efni frá Damon
DAMON ALBARN Vinnur með Kid
Koala og Dan the Automator auk þess
að frumflytja nýtt verk í Manchester í
sumar.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
Meiri Vísir.