Fréttablaðið - 28.04.2011, Page 52

Fréttablaðið - 28.04.2011, Page 52
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR36 folk@frettabladid.is Quarashi kemur saman á nýjan leik á Bestu útihá- tíðinni sem verður haldin í júlí. Söngvarinn Höskuldur Ólafsson snýr aftur eftir að hafa hætt óvænt árið 2003. Rappsveitin Quarashi, sem hætti störfum árið 2005, hefur ákveð- ið að snúa aftur og spila á Bestu útihátíðinni sem verður haldin aðra helgina í júlí. Tíðindin eru óvænt, sérstaklega í ljósi þess að forsprakkinn Sölvi Blöndal vísaði endurkomunni algjörlega á bug í samtali við Fréttablaðið í síðasta mánuði. Endurkoma Quarashi er sér- stök að því leyti að þetta verður í fyrsta skiptið sem rappararn- ir Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted, Ómar „Swarez“ Hauks- son og Egill „Tiny“ Thorarensen koma allir saman fram með sveit- inni. Hösk u ldu r h æt t i óvænt í Quarashi árið 2003. Hann hefur und- anfarin tvö ár stundað meistaranám í Norwich á Englandi, fyrst í list- fræði og síðan í heim- speki. Hann telur að fimmtán ára afmæli sveitarinnar hafi eitt- hvað með endurkomuna að gera. „Ég var búinn að segja skilið við þenn- an kafla lífs míns fyrir löngu. Þetta hefur komið upp reglulega í gegnum árin, svona kommbakk, en við höfum aldrei tekið þau boð neitt alvarlega,“ segir Höskuldur. „Ég sagði skilið við Quarashi þegar ég var 25 ára og ég er núna 33 ára. Það er eng- inn maður yfir 35 að fara að flytja þessi lög aftur, þannig að það var nú eða aldrei.“ Hann segist hafa þurft að hugsa sig vel um áður en hann ákvað að vera með á nýjan leik, enda mikið að gera í skólanum og útskrift fram undan í september. „Ég þarf eiginlega að læra þessi lög aftur upp á nýtt og þyrfti helst að fara út að hlaupa. Ég er ágætlega á mig kominn þrátt fyrir að hafa setið yfir námsbókunum í hátt í tvö ár en það er ekki fyrir hvern sem er að rappa fimm hundruð orð á mín- útu.“ Spurður út í brotthvarf sitt úr Quarashi á sínum tíma og þrálát- an orðróm um ósætti við upptöku- stjórann og trommarann Sölva Blöndal gefur Höskuldur upp tvær útskýringar, þá opinberu og þá réttu: „Við vorum búnir að vera að túra í eitt og hálft ár og ég var ástfanginn af ungri stúlku á þessum tíma sem ég saknaði mjög mikið. Þess utan var ég hálfnað- ur með BA-nám í íslensku og bók- menntafræði sem mig langaði að taka upp aftur,“ greinir hann frá. „En samband okkar Sölva var líka komið á svolítið hálan ís. Það gerist oft þegar tveir skapandi menn sem eru ekki hræddir við að segja sína skoðun koma saman. Við vorum að klára Evróputúr og vorum í lest á leið frá Mílanó til Amsterdam. Sem við keyrum inn í stór og löng jarðgöng í svissnesku Ölpunum byrjuðum við Sölvi að rífast um hvort Spinal Tap væri alvöru mynd eða ekki. Þegar við komum út úr þeim var ljóst að samstarfið var á enda runnið. Við sáum ljósið.“ Hin útskýring Hösk- uldar er þessi: „Við vorum á leiðinni út á flugvöll eftir gigg í Amsterdam eða Lond- on og sem ég stíg upp í bílinn átta ég mig á að ég hef gleymt símanum uppi á herbergi. Á leið- inni niður festist lyft- an. Strákarnir gátu að sjálfsögðu ekki beðið eftir mér því það var aðeins klukkutími þar til vélin færi í loftið. Þegar ég kem heim til Íslands nokkrum mán- uðum seinna eru þeir búnir að skipta mér út fyrir Tiny.“ Spurður hvort það hafi virkilega tekið hann nokkra mánuði að losna úr lyftunni útskýrir hann að hann hafi lent í sérstaklega slæmum umferðar- hnút á leiðinni út á flugvöll. Hann segist aðeins ætla að koma fram á þessum einu tónleik- um í sumar en veit ekki með hina í hljómsveitinni. Spurður hvort hann mæti ekki í toppformi segir hann: „Ég geri mitt besta. Að vísu hefur okkar form verið mjög furðulegt í gegnum tíðina. Ég man að einu sinni spiluðum við í Wash- ington DC fyrir framan fjörutíu þúsund manns. Þá var Steini í hjólastól eftir að hafa stokkið út í áhorfendaskarann á tónleikum í Rhode Island þannig að ég held að mitt form verði seint slæmt ef það er sett í samhengi við formið á Steina þá.“ freyr@frettabladid.is „Maður fer nú ekki að vekja upp þennan dauða hest. Eins vænt og mér þykir um Quarashi þá er þetta ekki að fara að gerast. SÖLVI BLÖNDAL FRÉTTABLAÐIÐ 31. MARS 2011 10 Larry Mullen Jr., trommari írsku hljómsveitarinnar U2, leikur í myndinni Man on the Train sem verður frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes í næsta mánuði. Þetta er fyrsta kvik- myndahlutverk trommarans. Á meðal mótleikara hans er Donald Sutherland, sem hefur væntan- lega gefið trommaranum góð ráð við tökurnar. Man on the Train er endurgerð franskrar myndar frá árinu 2002. Mullen leikur mann sem ákveður að ræna banka í smábæ. Trommarinn tekur einnig þátt í framleiðslu myndar- innar, auk þess sem hann samdi tónlistina. Trommari á hvíta tjaldið U2 Larry Mullen Jr. (lengst til hægri) hefur leikið í sinni fyrstu mynd. Quarashi snýr aftur í júlí FYRIR FIMMTÁN ÁRUM Hljómsveitin Quarashi þegar hún var að stíga sín fyrstu skref fyrir fimmtán árum. Frá vinstri eru Höskuldur Ólafsson, plötusnúðurinn Richard Hauksson og Steinar Fjeldsted. Sölvi Blöndal krýpur fyrir framan þá. MYND/ÞÖK Á átta ára ferli sínum seldi Quarashi um 400 þúsund plötur á heimsvísu og hélt hundruð tónleika í fjórum heimsálfum. Allar plötur sveitarinnar náðu gullsölu á Íslandi og seldust samanlagt í 30 þúsund eintökum. Á árunum 2000-2003 var sveitin á mála hjá Columbia Records og EMI Music í Bandaríkjunum. Frumraun hennar á Bandaríkjamarkaði, Jinx, varð mjög vinsæl eftir að lagið Stick ‘Em Up fékk útgáfu þarlendis árið 2002. Myndband sveitarinnar við Stick ‘Em Up var tilnefnt til MTV-verð- launanna sem besta myndbandið það árið. FARSÆLL FERILL QUARASHI MILLJÓNIR dala er verðmiðinn sem Osbourne-hjónin Ozzy og Sharon hafa sett á húsið sitt í Malibu, eða 1,2 milljarðar króna. Það er því sex sinnum dýrara en hús Jóhannesar Jónssonar fyrir norðan sem seldist nýverið fyrir 200 milljónir. Bíó ★★★ Arthur Leikstjóri: Jason Winer Aðalhlutverk: Russell Brand, Greta Gerwig, Helen Mirren Góðlátlegt grín Arthur er endurgerð samnefndrar kvikmyndar frá árinu 1981 þar sem Dudley Moore heitinn leikur drykkfellda milljónamæringinn Arthur Bach sem verður ástfanginn af stelsjúkri gengilbeinu. Fjölskylda hans vill hins vegar að hann kvænist stúlku af góðum ættum og hótar að gera Arthur arflausan verði hann ekki við þeim óskum. Í þessari nýju uppfærslu er það breski spaugarinn Russell Brand sem fer með hlutverk Arthurs. Hann gerir það nokkuð vel þrátt fyrir að vera ekki jafn fyndinn og forveri hans í rullunni. Á meðan gamli Arthur var fyrst og fremst þvoglumælt fyllibytta og leiðindaseggur er sá nýi sympatískari og mannlegri. Úr verður að nýja myndin kom mér töluvert sjaldnar til að hlæja en dramatíkin fannst mér sterkari. Greta Gerwig er þrælfín í hlutverki almúgastelpunnar og hefur reyndar vinn- inginn þar fram yfir Lizu Minelli, sem ég skildi aldrei almennilega hvað Arthur sá við í frumgerðinni. Skemmtilegustu persónu gömlu myndarinnar hefur þó verið breytt úr brytanum sem John Gielgud lék svo stórkostlega yfir í „barn- fóstru“ en það er Helen Mirren sem reynir að tækla það og tekst ágætlega. Þó andlitslyfting myndarinnar hafi tekist betur en ég þorði að vona hlýtur maður samt að spyrja sig hvers vegna frábær gamanmynd er gerð upp á nýtt með ekki meiri breytingum en hér hafa verið gerðar, en innst inni veit maður auðvitað svarið. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Krúttleg, rómantísk gamanmynd sem er brosleg frekar en fyndin. Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is - Í öll anddyri - Hvaða stærð sem er - Afgreidd á 2 dögum • •B U R S TA G E R Ð I N ÍS L E N S K U R I Ð N A Ð U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.