Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 17
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Íbúar Hrafnistu við Boðaþing fagna því að sundlaugin verður opnuð við hátíðlega athöfn á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Biðin á enda
Í
búar Hrafnistu við Boðaþing hafa verið langeygir eftir opnun sundlaugar-
innar á staðnum. Fyrstu íbúar fluttu inn í mars í fyrra en framkvæmdum við
sundlaugina lauk fyrir nokkrum mánuðum.
Sundlaugin, sem er sérhönnuð með þarfir eldra fólks í huga, er í þjónustu-
miðstöð fyrir eldri borgara, Boðanum, sem Kópavogsbær á og rekur. Vegna bágrar
fjárhagsstöðu var ekki talinn rekstrargrundvöllur fyrir lauginni fyrst um sinn og
því stóð hún ónotuð um nokkra hríð.
Fyrir nokkru kom upp sú hugmynd að Hrafnista tæki að sér að kosta mannahald
við rekstur laugarinnar en fengi á móti að nýta laugina án þess að greiða leigu
eða afnotagjald. Hrafnista fær þannig að nýta laugina fyrir heimilisfólk hjúkr-
unarheimilis, starfsfólk og íbúa leiguíbúða DAS. Kópavogsbær sér hins vegar um
annan rekstur laugarinnar á borð við húsnæðiskostnað, vatn og rafmagn.
Formleg opnun sundlaugarinnar fer fram á morgun með ræðuhöldum og tónlist-
aratriðum. Þá munu einhverjir nýta sér tækifærið og stinga sér í laugina.
Þau Sigurður Bárðarson, Magðalena Stefánsdóttir, Svava Jónsdóttir og Dóra
Magnúsdóttir tóku forskot á sæluna á dögunum fyrir myndatöku Fréttablaðsins og
líkaði aðstaðan ljómandi vel. solveig@frettabladid.is
Aloa Vera plantan hefur meðal annars fengið
viðurnefnið brunaplantan enda er hún góð til að lina
hvers kyns brunasviða. Fáar jurtir hafa betri áhrif á sól-
bruna og er gott að hafa Aloa Vera gel við höndina
eftir langa sólardaga.
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir mögu
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
Sími 856 3451 • www.vilji.is
Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess
að þurfa að reiða sig á aðra. Margir Iðjuþjálfara, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga.
• Auðveld í uppsetningu.
• Engar skrúfur eða boltar.
• Tjakkast milli lofts og gólfs.
• Hægt að nota við hallandi loft,
timbur/gifsloft og mikla lofthæð.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA.
• Margir aukahlutir í boði.
• Falleg og nútímanleg hönnun.
• Passar allstaðar og tekur lítið pláss.
• Viðurkennd af Sjúkratryggingum
Íslands, hjálpartækjamiðstöð.
vilji.is
...léttir þér lífið