Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 10.05.2011, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 10. maí 2011 Gleraugu MAÍ 2011 25% afsláttur TAX FREE* & gott betur! Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn miðvikudaginn 25. maí, kl. 14.00 í Grjótsnesi, Hlíðarsmára 8, Kópavogi. Dagskrá fundarins fer eftir samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt. Ársfundargögn má nálgast í Hlíðarsmára 8, á vefsíðu sjóðsins, www.efia.is og í móttöku Eignastýringar Landsbankans - Austurstræti 11. Stjórn Eftirlaunasjóðs FÍA. ÁRSFUNDUR EFTIRLAUNASJÓÐS FÍA FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN FÁÐU BEITTUSTU BRANDARANA Í SÍMANN m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi Það kviknaði í mörgum hjörtum á fyrstu tónleikum Hörpunnar og gaman að skynja síðustu daga almenna gleði yfir þessu langþráða mannvirki. Ekki glittir í íslensku drýldnina og hof- móðinn, aðeins þakklæti, auðmýkt og einlæga hrifn- ingu. Og léttir. Loksins geta okkar frábæru tónlistarmenn raunverulega notið sín hér á landi, sem og erlendir lista- menn sem hafa áratugum saman heiðrað okkur með því að koma hingað og flytja sína tónlist, þó þeir yrðu að gera það í húsakynninum sem voru byggð undir aðra starfsemi. Og í framhaldi af því er allt í einu komið sumar, öllum að óvörum. Meira að segja veður- fræðingum. Og þetta var góð helgi. Sólin breytir öllu. Karlinn á kassanum Það eru ekki alltaf sólskins- skrif sem maður rekst á ef maður fer inn á netið, þó að það sé til. Áður fyrr stóð stundum karl uppi á kassa á Lækjartorgi með hnefann á lofti og fékk útrás fyrir allt sem honum mislíkaði eða vildi breyta. Hann talaði hátt og sparaði ekki lýsingarorðin. Karlinn á kassanum var hluti af stemningunni í miðbænum, rétt eins og Hjálpræðisherinn sem söng og prédikaði á sama stað. Þetta var náttúrlega ekk- ert lögbundið. Hver sem var hefði getað rölt með kassa ofan í bæ, tyllt sér upp á hann og hafið upp raust sína. Manni þótti þetta eins og hvert annað skemmtilegt fyrirbæri þegar maður var krakki, hlustaði ekkert á hvað maðurinn sagði, horfði bara á tilburðina. Í dag myndi þessi maður vera virkur í blogginu og ekki láta sig vanta ef boðið væri upp á mótmælafund. Jafnvel þó að hann vissi ekki hverju væri verið að mótmæla. Ósiðir Mér finnst margir tala um að gengisfall á mannasiðum og orðfæri eigi að verulegu leyti rætur á blogginu. Ögrandi og rætin skrif sem beinast að tilteknum einstaklingum, fá klapp frá fjölda manns og skrifarinn færist í aukana. Finnst þetta vitna um að hann sé greinilega á réttri leið. Aðrir sjá hvað þetta er vinsælt og taka upp sama orðfæri og jafnvel óheflaðra. Yfirleitt er það þannig að þegar margir hafa um nokk- urn tíma tileinkað sér tiltek- inn talsmáta, þá festist hann í sessi. Um það vitna algeng lýsingarorð sem fyrir löngu hafa fengið andstæða merk- ingu: ógeðslegt, geðveikt, geggjað, truflað. Þessi orð eru hugsunar laust notuð yfir það sem er fallegast og best. En þetta er saklaust miðað við það þegar farið er að klína ónefnum á annað fólk í því augnamiði að gera lítið úr því. Ekki síst þegar um eða að ræða fólk sem þjóðin hefur valið sér- staklega á Alþingi Íslendinga. Alþingismenn og ráðherrar eru ekkert öðruvísi en annað fólk. Það getur verið skap- mikið, og breyskt á ýmsum sviðum, en í störfum sínum og samskiptum við annað fólk ber því að haga sér eins og siðað fólk. Uppnefni og ávirð- ingar gengisfella þá sjálfa, ekki þá sem þeir vilja gera lítið úr. En nú er semsagt komið sumar. Bjartar nætur og betra skap. Tilvalinn tími til að gefa neikvæðni og önuglyndi frí. Helst varanlegt frí. Góðir siðir og vondir Jónína Michaelsdóttir Blaðamaður Í DAG Alþingismenn og ráðherrar eru ekkert öðruvísi en annað fólk. Það getur verið skapmikið og breyskt á ýmsum sviðum, en í störfum sínum og samskiptum við annað fólk ber því að haga sér eins og siðað fólk. Uppnefni og ávirð- ingar gengisfella þá sjálfa. AF NETINU Sumir jafnari en aðrir ? Nú er komið í ljós að á ári óttans í Kaupþingi, skulfu allir þar á bæ á beinunum en voru látnir halda að með því að hreyfa ekki við hlutabréfum sínum væru þeir að sýna samstöðu til að berjast fyrir vinnustað sinn og í þessari samstöðu berðust einn fyrir alla og allir fyrir einn sem jafn- ingjar. En ennfremur hefur komið í ljós að sumir voru jafnari en aðrir og ef þeir voru nógu stórir var í góðu lagi að þeir neyttu allra bragða til að skara eld að eigin köku og gæfu skít í alla samstöðu. Ætlun þeirra var greinilega að geta haldið sínu þótt aðrir yrðu að blæða. omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson Fasistabeljan Það sætir almennri furðu, hvernig allt of margir þingmenn telja tíma sínum og kröftum best varið landi og þjóð til heilla. Í stað þess að þingmenn séu samtaka í að leita að leiða út úr efnahagsþrengingum þá berast fréttir, af hótunum þing- manna um meiðyrðamálaferli og að þeir uppnefni hverjir aðra ýmsum hætti og líki við; ketti, hryssur og nú fasistabeljur. Einhvern veginn þá finnst mér verulega skorta á að heiðurs- listamaðurinn Þráinn Bertelsson sem telur víst drjúgan hluta þjóðarinnar vera fábjána, rök- styðji þetta orðaval sitt. Ekki virðist vera um góðlátlegt grín að ræða heldur virðist sem einhver særindi búa að baki og að Þráinn telji sig hafa orðið fyrir einhverju óréttlæti af hendi Þorgerðar Katrínar. sigurjonth.blog.is Sigurjón Þórðarson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.