Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 19.05.2011, Qupperneq 4
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR4 FÓLK Hin brasilíska Maria Gomes Valentim er elsta lifandi mann- eskjan í heiminum nú en hún er 114 ára og 314 daga gömul. Besse Cooper var talin vera elsta manneskj- an í heiminum en eftir að fjöl- skylda Mariu hafði samband við Heimsmeta- bók Guinness og sýndi fæð- ingarvottorð hennar kom í ljós að hún er fædd 48 dögum á undan Besse. Maria er frá Carangola sem er fjallaþorp norður af Rio de Janeiro. Eiginmaður hennar lést árið 1946 og áttu þau einn son saman. Hún á fjögur barnabörn, sjö barnabarnabörn og fimm barnabarnabarnabörn. Geri aðrir betur! Valentim sú langlífasta: Elsta kona í heimi 114 ára MARIA GOMES VALENTIM WASHINGTON, FRÉTTABLAÐIÐ Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Hillary Clinton starfssystir hans áttu langan fund í Washing- ton í gær þar sem þau ræddu fjöl- mörg málefni, meðal annars tengt norðurheimskautinu, ástandinu í heimsmálum og tvíhliða sam- skiptum ríkjanna. Meðal annars óskaði Össur eftir því að Banda- ríkin styddu viðleitni Íslands um að lagalega bindandi samningur væri gerður um varnir gegn olíu- mengun á Norðurslóð. „Hún lýsti fyrir fullum stuðn- ingi við það að Bandaríkin myndu styðja þá viðleitni; það væri líka í þeirra þágu,“ segir Össur. Tilefni fundarins var að Ice- landair hefur hafið beint áætlunar- flug til Washington, en Clinton lét þess getið fyrir fundinn að það væri „yndislegt fyrir okkur, sem elskum landið ykkar“. Fundurinn varð mun lengri en til stóð en Össur sagði í samtali við Fréttablaðið eftir fundinn að hann hafi verið árangursríkur. „Við fórum yfir mjög mörg efni er vörðuðu samskipti Íslands og Bandaríkjanna, en ekki síður þá atburðarás sem hefur komið upp í heiminum á síðustu vikum og dögum.“ Fyrir utan fyrrnefndar mengun- arvarnir sagði Össur að hann hefði kynnt Clinton hugmyndir íslenskra stjórnvalda um stofnun alþjóð- legrar miðstöðvar á sviði leitar og björgunar á Íslandi. „Hún tók ákaflega vel í þá hug- mynd og ég lít svo á að þetta sé upphafið að viðræðum milli okkar og Bandaríkjanna um hvernig hægt sé að ná því fram, auðvitað í samvinnu við fleiri þjóðir.“ Loks sagði Össur Clinton hafa tekið vel í tillögu hans um undir- búning formlegs tvíhliða sam- starfs milli Íslands og Bandaríkj- anna á sviði rannsókna er varða norðurslóðir. Auk þess ræddu ráðherrarn- ir um varnarsamstarf ríkjanna, ástandið í Líbíu, friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs, hugsanlegt samstarf á sviði jarðhita og ástand- ið á Íslandi í kjölfar hrunsins. „Hillary vissi greinilega hver staðan er […] og var áhugasöm um að heyra hvernig ég mæti reynsl- una á samstarfinu við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn. Ég sagði henni að menn hefðu veitt okkur miklu meira svigrúm til ákvarðanatöku en annars staðar og það hefði verið mjög farsælt og taldi að menn ættu að læra af þessari reynslu.“ thorgils@frettabladid.is, juliam@frettabladid.is Sammála um varnir gegn olíumengun Hillary Clinton og Össur Skarphéðinsson áttu langan fund í Washington í gær. Clinton tók vel í hugmyndir um hertar olíumengunarvarnir í Norðurhöfum. Ræddu líka um heimsmálin og samstarf Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. ÁRANGURSRÍKUR FUNDUR Össur Skarphéðinsson og Hillary Clinton áttu langan fund í Washington í gær þar sem þau ræddu meðal annars málefni norðurslóða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ 18.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,7623 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,74 115,28 185,64 186,54 163,55 164,47 21,93 22,058 20,645 20,767 18,231 18,337 1,4151 1,4233 182,57 183,65 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is ALÞINGI Vigdís Hauksdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir svörum frá öllum ráðherrum í ríkisstjórn- inni um ferðalög starfsmanna ráðuneytanna og embættismanna í undirstofnunum hvers ráðu- neytis. Vigdís vill sundurliðaðar upp- lýsingar um hverja utanlands- ferð, til hvaða lands var farið, hver kostnaður var með dagpen- ingum, sundurliðað eftir árum frá árinu 2007 til 2010. Ráðherrarnir hafa lögum sam- kvæmt tíu daga til að afla upplýs- inga og svara skriflegum fyrir- spurnum þingmanna. - bj Þingmaður Framsóknarflokks: Spyr um ferða- kostnað ríkisins VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 24° 24° 16° 24° 22° 15° 15° 21° 18° 25° 24° 32° 16° 22° 17° 16°Á MORGUN Strekkingur víða og stormur með SA-strönd- inni. LAUGARDAGUR Stekkingur V- og A- lands annars hægari. -1 1 0 64 -1 1 1 6 7 8 7 8 6 4 3 3 3 5 1 2 5 4 8 16 17 14 8 13 7 7 8 KÓLNAR Það verður kulda- legt á landinu norðanverðu næstu daga en heldur mildara sunnan til og einnig sólríkara enda norðlægar áttir ríkjandi. Um helgina má svo bú- ast við næturfrosti víða um land. Ekki gott fyrir gróðurinn. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður BÍLDUDALUR Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Kalkþör- ungaverksmiðjunnar á Bíldu- dal. Viðbygging verksmiðjunnar verður um 1000 fermetrar að stærð, að því er fram kemur á vef BB.is. Með viðbyggingunni eykst lagerpláss verksmiðjunnar um helming. Guðmundur Valgeir Magnússon verksmiðjustjóri segir við BB að stækkunin muni skapa meiri sveigjanleika í fram- leiðslunni og auðvelda þjónustu við fleiri viðskiptavini. Framkvæmdir á Bíldudal: Stækka kalkþör- ungaverksmiðju AFGANISTAN Að minnsta kosti þrettán manns, þar á meðal óbreyttir borgarar og lögreglu- menn, létust í sjálfsmorðspreng- juárás sem gerð var í borginni Jalalabad í austurhluta Afganist- an í gær. Fyrr um daginn létust að minnsta kosti tólf manns í norð- urhluta landsins þegar upp úr sauð í mótmælum gegn hersetu- liði Nató í borginni Talqan. Að minnsta kosti 80 slösuðust. Mikil ólga hefur verið í Afgan- istan síðustu mánuði ekki síst í borginni Jalalabad. - kh Mannfall í Afganistan: Minnst 25 létust í sjálfsmorðsárás EYÐILEGGING Að minnsta kosti þrettán létust í sjálfsmorðsárás í Jalalabad í gær. NORDICPHOTOS/AFP SJÁVARÚTVEGUR Nýsmíði Ísfélags Vestamannaeyja sem verið hafði í smíðum í skipasmíðastöðinni ASMAR í borginni Talcahuano í Síle var sjósett í gær og gefið nafnið Heimaey VE 1. Skipið verður afhent fullbúið í mars á næsta ári. Heimaey VE 1 er fyrsta nýsmíðin sem er sjósett í Talca- huano eftir að miklir jarðskjálft- ar skóku Síle í lok febrúar í fyrra. Í kjölfar jarðskjálftans skall mikil flóðbylgja á strönd lands- ins sem olli manntjóni og eyði- leggingu í skipasmíðastöðinni og færði hana í kaf. Fjölgar í skipaflotanum: Heimaey VE-1 sjósett í Síle DÓMSMÁL Hollenski tannlæknir- inn Otto Spork hefur verið fundinn sekur um brot á lögum um verð- bréfaviðskipti þegar hann nýtti fjár- magn úr sjóðum sem hann var í for- svari fyrir í Kanada til að fjármagna fyrirtæki sem honum eru tengd, að því er kom fram í netútgáfu kan- adíska dagblaðsins Financial Post í gær. Málið hefur verið á borði kan- adíska verðbréfaeftirlitsins í Ontar- io á fjórða ár. Spork hefur verið búsettur hér um skeið en kanadísk félög sem honum tengjast fjármögnuðu bygg- ingu vatnsátöppunarfyrirtækisins Icelandic Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi sem jafnframt er í hans eigu. Dóttir hans og tveir menn tengdir þeim voru jafnframt fundin sek um lögbrot. Spork rak vogunarsjóðinn Sextant Strategic Opportunities í Kanada um nokkurra ára skeið. Undir hann heyrðu nokkrir sjóðir, sem skráð- ir eru á Cayman-eyjum. Sjóðirnir fjármögnuðu byggingu átöppunar- verksmiðjunnar með lánveitingum. Í hittifyrra var skuldum breytt í hlutafé en við það eignuðust félög Sporks nær allt hlutafé fyrirtækis- ins. Kanadíska verðbréfaeftirlitið úrskurðaði árið 2008 að fyrirtæki Sporks skyldu sett í greiðslustöðvun. Verksmiðjuhúsið á Rifi var fokhelt í fyrrahaust. Ekki liggur fyrir hvort starfsemi sé hafin í því. - jab Tannlæknir sem byggði vatnsátöppunarverksmiðju á Rifi sekur um lögbrot: Lagði fé annarra í eigin verk VERKSMIÐJAN Forsprakki vatnsverk- smiðjunnar á Rifi hefur verið fundinn sekur um lögbrot. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.