Fréttablaðið - 19.05.2011, Side 21

Fréttablaðið - 19.05.2011, Side 21
FIMMTUDAGUR 19. maí 2011 21 Stjórnlagaráð leggur í hverri viku fram tillögur að texta nýrrar stjórnarskrár. Textinn birtist í áfangaskjali á vefsetri ráðsins (stjornlagarad.is). Þar getur hver sem er kynnt sér text- ann og gert tillögur um breyting- ar á honum. Hugsunin á bak við þetta fyrirkomulag er að þjóðin sjálf setur sér nýja stjórnarskrá, þótt stjórnlagaráðið hafi verið kosið og síðan skipað til að sitja við lyklaborðin. Það er hugur í ráðinu, ríkur samhugur. Þess má vænta, að lokagerð textans muni, þegar allir hnútar hafa verið hnýttir, geyma ýmis nýmæli og horfa til framfara svo sem þjóðfundurinn í októ- ber 2010 kallaði eftir og stjórnlagaráðinu ber samkvæmt lögum að taka mið af. Hrun- ið land þarf hreint borð. Jafnréttisákvæði F yrstu t i l lögurn- ar í áfangaskjalinu lúta meðal annars að mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Hann stendur aftar- lega í núgildandi stjórnarskrá, en við leggjum til, að hann verði fluttur fremst og birtist strax á eftir innganginum, vonglaðri viljayfirlýsingu, sem hæfist til dæmis á orðunum „Við Íslend- ingar ...“ . Fyrsta eða önnur grein mannréttindakaflans geymir jafnréttisákvæði í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskrár, sem Ísland hefur undirritað og fullgilt. Jafnréttisákvæðið mun hljóða svo að tillögu stjórnlaga- ráðs: „Allir eru jafnir fyrir lögum og skulu njóta mannréttinda án nokkurs manngreinarálits, svo sem vegna kynferðis, aldurs, arf- gerðar, búsetu, efnahags, fötl- unar, kynhneigðar, litarháttar, skoðana, stjórnmálatengsla, trú- arbragða, uppruna, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ (Hér mætti heldur standa: „ætternis eða stöðu að öðru leyti.“) Hér er stungið upp á tveim meg- infrávikum frá gildandi stjórnar- skrártexta. Í fyrsta lagi hefur orðalaginu „njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, ...“ verið breytt í „njóta mannréttinda án nokkurs manngreinarálits, svo sem vegna kynferðis, ...“ Hér er því kveðið skýrar að orði en áður um bann við mismunun með því að nefna manngreinarálit í text- anum. Orðið mismunun (e. disc- rimination) kemur fyrir þrisvar í enska textanum í samsvarandi greinum í alþjóðlegum mannrétt- indasáttmálum, en það kemur hvergi fyrir í gildandi stjórnar- skrá. Á þessu viljum við ráða bót. Í annan stað hefur nokkrum nýjum atriðum verið bætt inn í upptalninguna á eftir orðun- um „án nokkurs manngreinar- álits, svo sem vegna kynferð- is, ...“ Þar munar kannski mest um orðin „skoðana, stjórnmála- tengsla, trúarbragða, ...“ Orðið í miðjunni, stjórnmálatengsl, er nýmæli. Alþjóðlegar mannrétt- indaskrár láta sér yfir- leitt duga að telja upp stjórnmálaskoðanir og aðrar skoðanir, trúar- brögð, o.s.frv. Við teljum flest, að landlæg stjórn- málaspilling og klíku- skapur hér heima kalli á skýrt bann við mismunun vegna stjórnmálatengsla auk annars eins og Ill- ugi Jökulsson lýsti vel í ræðu sinni í stjórnlaga- ráðinu fyrir viku. Þess- ari tillögu að banni við mismunun vegna stjórn- málatengsla er síðan fylgt eftir með tillögu að svohljóðandi texta aftar í stjórnarskránni: „Við skipun manna í embætti skal einungis líta til hæfni og mál- efnalegra sjónarmiða.“ Svíar hafa sams konar ákvæði í sinni stjórn- arskrá. Í dómstólakaflanum er til frekari áréttingar lagður til þessi texti: „Tryggt skal með lögum að hæfni og málefnaleg sjónarmið ráði við veitingu embætta dóm- ara. Lögbundin nefnd skal meta hæfi umsækjenda.“ Einhugur er í ráðinu um, að óbreytt fyrirkomu- lag á skipun dómara kemur ekki til greina. Sumir kysu helzt að hafa jafn- ræðisákvæðið stutt og laggott og sleppa upptalningunni: „Allir eru jafnir fyrir lögum og skulu njóta mannréttinda án nokkurs mann- greinarálits.“ Þannig gæti ákvæð- ið hljómað í draumalandi, þar sem mismunun heyrir sögunni til. Þangað erum við ekki komin enn. Fatlað fólk nýtur til dæmis ekki fullra réttinda í okkar samfélagi, og þess vegna þarf að hnykkja á réttindum fatlaðra eins og Freyja Haraldsdóttir hefur rakið öðrum betur á fundum ráðsins. Þarna fylgjum við fordæmi margra annarra stjórnarskráa og alþjóð- legra mannréttindasáttmála. Við nálgumst strönd draumalands- ins. Þegar þangað kemur, getum við sleppt upptalningunni. Ráðherrar utan þings, færri þingmenn Í tillögum stjórnlagaráðs að stjórnarskrártexta um störf Alþingis segir svo: „Sé alþingis- maður skipaður ráðherra víkur hann úr þingsæti á meðan hann gegnir embætti og tekur vara- maður þá sæti hans.“ Hér er komið til móts við tillögu þjóð- fundarins um, að ráðherrar sitji ekki á Alþingi. Tillagan miðar að því að auka sjálfstæði Alþing- is gagnvart framkvæmdarvald- inu. Tillagan skapar jafnframt skilyrði til að fækka þingmönn- um sem nemur fjölda ráðherra að minnsta kosti. Þingmenn þyrftu því ekki að vera fleiri en til dæmis 53, helzt enn færri. Dönum dugir einn þingmaður á hverja 30.000 íbúa líkt og Finn- um, Norðmönnum og Svíum. Það þýðir í sjálfu sér ekki, að okkur myndu duga tíu þingmenn. En okkur ættu að duga til dæmis 37 þingmenn eða 43, eða 53 í mesta lagi. Allir eru jafnir fyrir lögum Í DAG Þorvaldur Gylfason prófessor Við nálg- umst strönd drauma- landsins. Þegar þangað kemur, getum við sleppt upp- talningunni. Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 Sitness Kr. 39.900,- Góðir fyrir bakið! Veltikollar og hnakkstólar w w w .h ir zl an .i s Body Balance Kr. 39.900,- Bonanza Kr. 65.900,- svart leður ÚR ERLENDUM LEIÐURUM Hert tök gegn skipulögðum glæpum Tölfræðin sýnir að ofbeldið sem leiðir til dauða er í allt ríkari mæli afleiðing glæpastarfsemi, eins og til dæmis uppgjörs glæpagengja. Hér sést vel hversu takmörkuð mjúka aðferðin í baráttunni gegn glæpum, sem hefur verið ráðandi í landinu alltof lengi, er. Batnandi félagslegt umhverfi hefur dregið úr morðum sem framin eru í ölæði og slagsmálum innan veggja heimilanna en það hefur ekki áhrif á skipulagða glæpastarfsemi. Það er kominn tími til að horfast í augu við að skipulögð glæpastarfsemi er í sérklassa og að taka þarf á henni með aðferðum í sérklassa. www.svd.se/opinion/ledarsidan Úr leiðara Svenska dagbladet Svartir og hvítir kettir Það yrði molbúahagfræði ef ríkisstjórnin ætlar að verja mestu af hagnað- inum af eftirlaunaumbótunum í hert tök gegn útlendingum sem minnka samkeppnishæfni og hæfileika Danmerkur til þess að laða að gæðavinnuafl erlendis frá. Ef við hér í Danmörku eigum að reyna að vera með í uppsveiflunni, sem sem betur fer er í fjölda landa sem fyrir stuttu voru kölluð þróunarlönd, neyðumst við til þess að auka flæði hæfs vinnuafls. Það skiptir engu máli hvort kettirnir eru svartir eða hvítir ef þeir geta veitt mýs. www.politiken.dk/debat/ledere Úr leiðara Politiken

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.