Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 22
22 19. maí 2011 FIMMTUDAGUR Í vikunni var þingfest ákæra á hendur lögreglumanni fyrir meint brot í starfi. Hið meinta brot er að hafa unnið vinnu sína af kostgæfni. Það hafði afleiðing- ar í för með sér að ungur maður fótbrotnaði eða réttara sagt ungur ökuníðingur sem var að reyna að stinga af frá umferðarlagabroti og hlýddi engum stöðvunarmerkjum og gerði sitt ítrasta til að flýja frá lögreglu. Í eftirförinni fótbrotnaði hann þegar hann reyndi að hlaupa frá bíl sínum eftir að hafa lokast af í botngötu. Nú situr lögreglumaðurinn sem veitti honum eftirför sjálfur fyrir dómara sem á eftir að meta hvort hann hafi gerst brotlegur við vinnu sína. Allt þetta mál er hið versta, bæði fyrir lögreglumann- inn sjálfan og ekki síður hinn almenna borgara, vegna þess að ákæra af þessu tagi sýnir að lög- reglumenn njóta takmarkaðar verndar í starfi sem fyrir er í fólg- in mikil áhætta, sérstaklega ef á að vinna lögreglustarfið vel. Á þrettán ára starfsferli hef ég unnið með mörgum lögreglumönn- um, langflestum úrvals mönnum en inni á milli voru einstaklingar sem voru hræddir við vinnu sína og þorðu ekki að taka ákvarðanir eða fara út í aðgerðir af ótta við afleiðingar. Það eru verstu lög- reglumenn sem ég hef unnið með. Lögreglustarfið er ekki í dags daglegu umhverfi þar sem allir einstaklingar eru góðir og gegn- ir borgarar heldur í jaðri sam- félagsins þar sem níðingsverk, óheilindi og illur ásetningur á sér stað og það er hlutverk lögreglu- manna öðru fremur að halda þess- um myrkari hluta daglegs lífs í skefjum og sjá þannig til þess að venjulegt fólk geti lifað sínu venju- lega lífi í friði. En til þess að vera vernd samfélagsins þurfa lög- reglumenn sjálfir að njóta verndar og það verður að gefa þeim nauð- synlegt svigrúm til þess að vinna sína vinnu. Hvaða skilaboð er þá verið að senda með því að gefa út ákærur fyrir brot sem unnin eru í starfi og eru í raun fólgin í því að vinna vinnu sína? Nokkrar ákærur hafa verið gefnar út af slíkum atvikum og dómar fallið og í sumum tilvik- um án þess að eiginlegt tjón eigi sér stað. Í héraðsdómi þar sem lög- reglumaður var ákærður fyrir að aka ólátasegg tíu mínútna leið úr miðbæ Reykjavíkur var lögreglu- maðurinn sýknaður og dómarinn varði þó nokkru af rökstuðning sínum í að velta fyrir sér starfs- umhverfi lögreglu og allsherjar- reglu. Sá dómur er fyrir margt sérstakur þar sem hann er eini dómurinn sem til er á Íslandi þar sem dómari gefur þessum atrið- um gaum en fordæmisgildi hans er ekkert þar sem dómnum var að hluta til snúið í Hæstarétti án þess að farið væri út í slík atriði í rök- stuðningi. Nú ætla ég ekki að útiloka að lögreglumaður eigi eftir að brjóta alvarlega af sér né segja að ekki eigi að kæra slík mál, heldur vil ég benda á að eðli starfsins vegna þurfi að fara varlega í að gefa út slíkar ákærur og lögreglumenn verði að hafa svigrúm til að geta unnið vinnu sína án þess að stærsti áhættuþátturinn í þeirra annars hættulega starfi sé að sitja uppi með ákærur fyrir atvik sem eru hluti af þeirra starfsumhverfi. Erlendis þekkist það víða að fag- nefndir meti slík atvik út frá eðli lögreglustarfsins áður en ákvörð- un um ákæru er gefin út. Hér á landi fá slík mál enga slíka fag- lega umfjöllun heldur er það sami aðili sem rannsakar meint brot og gefur út ákæru, en það á ekki við um nein önnur brot. Þá er það orðið afar áhættusamt að vinna sem lögreglumaður þegar lög- reglumenn eiga yfir höfði sér háar bótakröfur frá einstaklingum sem ættu í raun betur heima hjá ríki á grundvelli húsbóndaábyrgðar. Með þessari grein vil ég vekja lesendur til umhugsunar um það hvernig lögreglumenn þeir vilja hafa. Viljum við lögreglumenn sem vinna óhræddir af bestu samvisku við það að sporna við afbrotum eða lögreglumenn sem vilja frekar heima sitja vegna ótta við að hver einasta misfella verði kærð? Í því máli sem nú er kært fyrir hefði það verið hægur leikur fyrir lög- reglumanninn að missa af ökuníð- ingnum og koma sér þannig frá áhættu um hugsanlegar afleiðing- ar. Þess í stað væri miklu einfald- ara að kæra aðeins þá sem eru lög- hlýðnari og stoppa af sjálfsdáðum. Eða bara gera sem allra minnst. Eru það skilaboðin sem við viljum senda til lögreglumanna? Hvernig á lögreglumaður að vinna vinnu sína? Störf lögreglu G. Jökull Gíslason lögreglumaður Frelsi fylgir ábyrgð - I Í lok apríl samþykkti Alþingi lög um fjölmiðla og setti þar með í fyrsta sinn heildarlög- gjöf um fjölmiðla og starfsemi þeirra hér á landi. Markmið laganna er að stuðla að tján- ingarfrelsi, rétti til upplýsinga, fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun, sem og að efla vernd neytenda á þeim vettvangi. Aðdragandi og kynning Líklega hafa fá lög sem sett hafa verið á undanförnum árum átt jafn langan aðdraganda og hlotið eins góðan undirbúning. Í raun má segja að undirbúningur hafi hafist haustið 2004 þegar þáverandi menntamálaráðherra skipaði þverpólitíska nefnd stjórnmálamanna til að athuga ýmis atriði er lúta að íslensku fjölmiðlaumhverfi. Nefndin skilaði skýrslu til ráðherra vorið 2005 og í framhaldinu var síðan lagt fram frumvarp sem byggðist á tillögum hennar. Í lok árs 2007 samþykkti Evrópu- þingið og -ráðið nýja hljóð- og myndmiðlunartilskipun sem verður að leiða í lög hér á landi á grundvelli EES-samnings- ins og eru í henni breytingar á þeirri tilskipun sem útvarpslög- in frá árinu 2000 byggðust á. Vinna við gerð þess frum- varps, sem nú er orðið að lögum, hófst í byrjun árs 2008 og var þá ákveðið að byggja lögin á þessu tvennu. Síðar var ákveðið að láta frumvarpið taka til allra fjölmiðla vegna þess að gildandi prentlög og útvarpslög hafa ekki fylgt þeim tæknibreytingum sem orðið hafa, m.a. með tilkomu netsins. Þá þótti rétt að skýra og bæta réttarstöðu blaða- og frétta- manna, t.d. með því að sam- ræma ábyrgðarreglur milli ólíkra miðla. Við gerð frum- varpsins var löggjöf nágranna- ríkja okkar, tilmæli og leiðbein- andi reglur Evrópuráðsins og Evrópusambandsins athugaðar og hafðar til hliðsjónar. Haustið 2009 þegar frumvarpið var fullbúið var það sett í almenna kynningu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem allir gátu gert athuga- semdir við það. Tekið var tillit til margra þeirra athugasemda sem bárust áður en frumvarpið var lagt fram. Upphaflega var mælt fyrir frumvarpinu á vorþingi 2010 og var það tekið til umfjöllun- ar í menntamálanefnd og leitað umsagna frá ýmsum aðilum. Gerði nefndin ýmsar breyt- ingar á frumvarpinu, sem ekki gafst tími til að ljúka áður en þingi var slitið. Af því leiddi að frumvarpið var lagt fram að nýju á haustþingi 2010 með þeim breytingum sem mennta- málanefnd Alþingis hafði gert. Að lokinni ítarlegri og vandaðri meðferð nefndarinnar sam- þykkti Alþingi frumvarpið sem lög hinn 15. apríl síðastliðinn. Hvers vegna lög um fjölmiðla? Í skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis er hlutverk fjöl- miðla skilgreint með skýrum hætti en þar segir að fjölmiðlar leiki „lykilhlutverk í lýðræðis- samfélagi með því að upplýsa almenning, vera vettvangur þjóðfélagsumræðu og veita aðhald þeim öflum sem vinna gegn almannahag“. Í fjölmiðla- lögunum er gengið út frá þess- ari skilgreiningu. Auk tján- ingarfrelsis, sem allir þegnar í lýðræðisríkjum njóta, eru fjöl- miðlum veitt tiltekin réttindi umfram aðra, t.d. er varðar vernd heimildarmanna. Í ljósi þeirrar sérstöðu og áhrifavalds sem fjölmiðlar í lýðræðisríkjum hafa er litið svo á að þeir hafi ríkum skyldum að gegna gagn- vart almenningi. Í evrópskum lýðræðisríkjum er því almennt talið að fjölmiðlar séu af þess- um sökum ólíkir öðrum fyrir- tækjum og því sé eðlilegt að um þá gildi annað regluverk en um hefðbundinn rekstur. Menn líta þó fjölmiðla ólíkum augum og eru sumir þeirr- ar skoðunar að þeir séu ekki á nokkurn hátt frábrugðnir öðrum fyrirtækjum. Oft er í því samhengi vitnað til ummæla Marks Fowler, fyrrverandi for- manns Fjölmiðlanefndar Banda- ríkjanna, sem taldi að sjón- varp væri eins og hvert annað rafmagnstæki – væri brauð- rist með myndum! Afstaða af þessu tagi til fjölmiðla er mun almennari í Bandaríkjunum en í Evrópu. Í nýjum fjölmiðlalögum okkar er hið evrópska sjónar- mið ríkjandi. Réttindi fjölmiðlafólks tryggð Eitt meginmarkmið nýrra fjöl- miðlalaga er að skýra og bæta réttarumhverfi blaða- og frétta- manna. Sett voru ákvæði um vernd heimildarmanna, ábyrgð- arreglur voru samræmdar fyrir hljóð- og myndmiðla, nýmiðla og prentmiðla. Jafn- framt var sett ákvæði um sjálf- stæði ritstjórna, þar sem tekið er til starfsskilyrða og starfs- hátta til að tryggja sjálfstæði blaða- og fréttamanna gagnvart eigendum auk skilyrða fyrir áminningum og brottrekstri blaða- og fréttamanna. Við undirbúning lagafrum- varpsins var leitað upplýsinga um ábyrgðarreglur í hinum Norðurlandaríkjunum og hvernig stjórnvaldssektum, fésektum og skaðabótakröfum er beitt gagnvart fjölmiðlum. Fulltrúar blaðamannasamtaka á Norðurlöndunum veittu fús- lega upplýsingar um ýmis mál auk þess sem lög nágrannaríkja okkar voru höfð til hliðsjónar við frumvarpssmíðina. Markmiðið með fyrrgreind- um ákvæðum er að draga úr svokölluðum kælingaráhrifum, sem birtast í því að blaða- og fréttamenn hika við að taka á viðkvæmum málum vegna þess að það getur komið sér illa fyrir eigendur þeirra eða aðra hagsmunaaðila, t.d. auglýsend- ur. Lögin eiga að gera fjölmiðla- fólki auðveldara með að vernda heimildarmenn sína, það verði ekki gert ábyrgt fyrir beinum tilvitnunum nafngreindra heim- ildarmanna í greinum sínum og dregið verði úr líkum á tilefnis- lausum brottrekstri. Fjölmiðlalög Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningar- málaráðherra Fyrri grein af tveimur um ný fjölmiðlalög Markmiðið með fyrrgreindum ákvæðum er að draga úr svokölluðum kælingaráhrifum, sem birtast í því að blaða- og fréttamenn hika við að taka á viðkvæm- um málum vegna þess að það getur komið sér illa fyrir eigendur þeirra eða aðra hagsmunaaðila, t.d. auglýsendur. NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS Í DAG VERÐUR SÉRFRÆÐINGUR FRÁ NIKE Í ÚTILÍF SMÁRALIND FRÁ KL. 17–19. ÍS L E N SK A SI A .I S U T I 54 97 3 05 /1 1 TILBOÐ: 21.592 KR. PEGASUS +27. Vinsælustu hlaupaskórnir frá Nike. Almennt verð: 26.990 kr. TILBOÐ: 17.992 KR. AIR MAX MOTO +8. Góðir hlaupaskór. Almennt verð: 22.490 kr. TILBOÐ: 21.592 KR. LUNARGLIDE +2. Léttir hlaupaskór. Almennt verð: 26.990 kr. TILBOÐ: 11.192 KR. DART 8. Ódýrir og þægilegir skór. Almennt verð: 13.990 kr. 20% KYNNINGAR- AFSLÁTTURAF VÖLDUM NIKE HLAUPASKÓM OG HLAUPAJÖKKUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.