Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 39
07maí 2011
Litlar breytingar er að finna á verði á ólögleg-
um vímuefnum samkvæmt nýjustu verðkönnun
SÁÁ. Sjaldgæft er að sjá ekki marktækar verð-
breytingar á þessum markaði en nú er lítil sem
engin verðbólga í landinu og þar skýringuna að
finna.
Gramm af hassi er á um 2.500 krónur, grasið
á 3.600, amfetamínið enn í kringum fimm þús-
und krónur og kókaínið í fimmtán þúsundum.
Epillan kostar samkvæmt verðkönnun SÁÁ 3.000
krónur að meðaltali og Ritalin taflan er á um
þúsund kall.
VERÐBÓLGULAUS DÓPMARKAÐUR
AF HVERJU
KAUPIR ÞÚ
ÁLFINN?
Af því að
alkóhólismi
er fjölskyldu-
sjúkdómur
okkar Ís-
lendinga og
kemur okkur
öllum við.
Guðmundur Andri Thorsson
rithöfundur
Mér eru enn
minnisstæð
orð finnskrar
þjónustu-
stúlku sem
ég spurði
hvers vegna
Finnar
væru svona
leiðinlegir
og strangir
þegar kæmi
að því að loka börum snemma
en um klukkan þrjú virðast allir
barir Helsinki læstir og allt rokk
úr mönnum. Sú finnska leit á
mig í forundran og spurði á móti
hvort ég gerði mér ekki grein
fyrir því hvað áfengi hefði gert
finnsku þjóðinni. Ekki þótti mér
það áhugaverð hugleiðing þá
stundina. Orðin eru mér hins
vegar minnisstæð og oft ættu
Íslendingar að velta því fyrir sér
hvað áfengi hefur gert íslensku
þjóðinni. Í það minnsta skulum
við hugleiða það akkúrat þegar
við mætum næsta álfasölu-
manni frá SÁÁ.
Karen Kjartansdóttir
fréttakona
Ég kaupi
álfinn til að
styrkja það
mikilvæga
starf sem fer
fram á ung-
lingadeild-
inni á Vogi.
Allir eiga
rétt á öðru
tækifæri í
lífinu. Álfinn,
álfapar eða álfastórfjölskyldu
inn á hvert heimili!
Nanna Kristín Magnúsdóttir
leikkona
Meðferð í kreppu
Afmælisfundur SÁÁ var haldin í Háskólabíói í
fyrra. Aldrei fyrr hefur jafn mikill skuggi hvílt á
afmælishátíðinni en niðurskurður síðustu ára
er farinn að hafa veruleg áhrif á starfsemi SÁÁ.
Engu að síður var baráttuandi í fundargestum
og starfið heldur áfram. Nú er hinsvegar nauð-
synlegt að allir sem láta sig málefnið varða
leggi sitt á mörkum og kaupi og selji álfa eins
og aldrei áður.
ÚTIDÚR Hljómsveitin Útidúr vakti
mikla lukku en hér þenur söngkonan
Rakel Mjöll sín fögru raddbönd.
ÖGMUNDUR OG SIGMAR Sigmar
Guðmundsson hélt fundinum gangandi og hér
bíður hann Ögmund Jónasson velkominn í pontu.
ÞÓRARINN OG BUBBI Bubbi Morthens gefur
alltaf eins og hann getur til SÁÁ. Hér eru þeir
Þórarinn saman á góðri stundu.
BARÁTTUANDI Í HÁSKÓLABÍÓ Á hverju
hausti fögnum við afmæli SÁÁ. Í fyrra var afmælið
haldið í skugga niðurskurðar.
KIMBA KIMBA Efnilegasta hljómsveit landsins
er án efa Retro Stefsson og þau mættu á fundinn í
Háskólabíó og tóku Kimba Kimba ásamt fleiri lögum.
NÝFYNDNA KYNSLÓÐIN Ari Eldjárn
er einn af þessum ungu grínistum sem hafa
verið að gera allt vitlaust síðustu misseri.Hann
mætti í Háskólabíó og hrærði í mannskapnum.
ÞRUSURÆÐUR Gleðin er við völd á afmælisfundinum
á hverju ári en það er líka stutt í að gamanið kárni þegar
á brattan er að sækja. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn
mikilvægt að Íslendingar standið við bakið á SÁÁ.
GARÐAR CORTES
Garðar söng sig inn í
hjörtu fundargesta.
BARÁTTUFUNDUR í Háskólabíó:
Verð á flestum fíkniefnum hefur hvorki hækkað né lækkað:
ENGIN VERÐBÓLGA
Fíkniefnamarkaðurinn virðist oft dansa í kringum verðbólguna á
Íslandi. Hún er lítil sem engin núna og því stendur verð á dópi í stað.
Aðalfundur SÁÁ
verður haldinn fimmtudaginn 26. maí 2011
kl. 17:00 í Von, Efstaleiti 7.
Dagskrá fundarins er:
Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi samtakanna á liðnu
starfsári.
Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og
samþykktar.
Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær.
Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og
varaendurskoðenda.
Tekin ákvörðun um félagsgjöld.
Önnur mál.