Fréttablaðið - 19.05.2011, Page 66
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR42
TILBOÐ 3
TILBOÐ 2
TILBOÐ 1
Komið og
prófið nýja
matseðilinn
okkar
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Bítillinn fyrrverandi Paul
McCartney ætlar að gefa út plötu
með öllum sínum uppáhaldslög-
um úr æsku. Hann hefur þegar
tekið upp um tólf lög ásamt söng-
konunni Diönu Krall. McCartn-
ey vill samt ekki að sér verði líkt
við popparann Rod Stewart. „Mig
hefur langað að gera þetta síðan
ég var í Bítlunum. Síðan fór Rod
að gera þetta á fullu og ég hugs-
aði með mér: Ég verð að bíða með
þetta svo það líti ekki út fyrir að
ég sé að herma eftir Rod,“ sagði
hann. McCartney er einnig að
undirbúa nýja rokkplötu, hugsan-
lega í samstarfi við Dave Grohl
úr Foo Fighter.
Syngur lög
í uppáhaldi
NÝ PLATA Paul McCartney ætlar að gefa
út plötu með uppáhaldslögum sínum
úr æsku.
Vefsíðan Billetlugen.dk, þar sem
fimm Íslendingar starfa, var
valin besta vefverslun Danmerk-
ur þegar vefverðlaunin E-Handel-
prisen voru afhent fyrir skömmu.
„Þetta kom aðeins á óvart.
Ég var ekki mjög áhyggjufullur
fyrir þetta en þegar við mætt-
um á svæðið byrjaði ég að vera
mjög stressaður,“ segir Sindri
Már Finnbogason hjá Billetlugen.
„Það voru í kringum þrjú hundr-
uð manns þarna og þetta er frek-
ar stór viðburður sem er haldinn
þarna árlega. Það er rosaleg viður-
kenning að fá þetta.“
Verðlaunin eru að vonum góð
kynning fyrir Billetlugen.dk, sem
er byggð á síðunni Midi.is. „Það
var ekkert rosalega gott orðspor
sem fór af Billetlugen þegar við
komum út. Þessi verðlaun undir-
strika þá vinnu sem við erum
búnir að leggja í hlutina til að gera
fyrirtækið betra,“ segir Sindri.
Billetlugen selur um þrjár millj-
ónir miða á hverju ári, þar á meðal
fyrir Hróarskelduhátíðina, Tívolí-
ið, skemmtistaðinn Vega, Park en
og Danmarks Radio. Sindri Már
og félagar hafa einnig opnað nýja
miðasölusíðu í Svíþjóð undir nafn-
inu Biljettforum.se og eru að und-
irbúa aðra til viðbótar í Noregi
sem stendur til að opna í júní.
- fb
Reka bestu vef-
verslun Danmerkur
SIGURVEGARAR Sindri Már Finnbogason og Björn Hr. Björnsson starfa hjá Billetlugen
í Danmörku.
Danski leikstjórinn Lars
Von Trier er kominn til
Cannes og nærvera hans
fer ekki framhjá neinum.
Dönsku blöðin keppast um
að birta fréttir af leikstjór-
anum og yfirlýsingum hans.
Lars Von Trier hefur yfirleitt haft
það til siðs að frumsýna kvik-
myndir sínar í Cannes. Þrátt fyrir
að leikstjórinn sé haldinn sjúk-
legri flughræðslu og ferðafóbíu þá
lætur hann sig hafa það. Og eins og
alltaf hristir danski furðufuglinn
svolítið upp í kvikmyndapressunni
með skrítnum og stundum ófyrir-
leitnum yfirlýsingum. Nýjasta
myndin hans Melancholia hefur
fengið frábæra dóma í Danmörku
en gagnrýnendur í Cannes eru á
báðum áttum, segja hana eilítið
yfirborðskennda og vonda fyrir
hlé. Hún nái sér hins vegar á strik
í seinni hálfleik en aðalhlutverkin
eru í höndunum á Kirsten Dunst úr
Spider Man-myndunum og Char-
lotte Gainsbourg.
En það er náttúruega ekki bara
myndin sem vekur athygli á Trier
því leikstjórinn er yfirleitt frem-
ur stóryrtur á blaðamannafund-
um og lætur gamminn geisa þó
mörgum þyki grínið yfirleitt grátt
gaman. Þannig lýsti Trier því yfir
að hann hefði einu sinni haldið
að hann væri gyðingur. „En svo
kom Susanne Bier og þá þakk-
aði ég fyrir að ég væri ekki gyð-
ingur. Æi, gleymið þessu, þetta
var bara brandari,“ er haft eftir
Trier. Bier er á góðri leið með að
verða einn virtasti leikstjóri Dana,
hreppti meðal annars Óskarinn
fyrir bestu erlendu myndina í ár
en það virðist anda köldu á milli
þeirra ef marka má orð Triers.
En Trier var ekki búinn því hann
hélt næst lofræðu um nasistann
og arkitektinn Albert Speer, sagði
hann hafa verið mikinn hæfileika-
mann. „Við nasistarnir höfum allt-
af hugsað hlutina í hinu stóra sam-
hengi, við vitum til að mynda alveg
hver er lokalausnin fyrir ykkur
blaðamenn.“ Og það var ekki að
sökum að spyrja; samtök eftirlif-
enda Helfarinnar gagnrýndu Trier
harðlega og sögðu orð hans dæma
sig sjálf.
Trier var ekki af baki dottinn og
eftir að hafa lýst yfir dálæti sínu á
Speer talaði hann um þann draum
sinn að gera lesbíska erótíska
kvikmynd með Kirsten Dunst og
Gainsbourg í aðalhlutverki. „Þetta
verður fjögurra til fimm tíma
mynd með miklu kynlífi.“
freyrgigja@frettabladid.is
TRIER HRISTIR UPP Í CANNES
TRIER HNEYKSLAR Lars Von Trier hefur haft það fyrir sið að koma á kvikmyndahá-
tíðina í Cannes og hneyksla fólk með annaðhvort myndum sínum eða yfirlýsingum.
Hann lét orðin nægja að þessu sinni. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES