Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 18
18 28. maí 2011 LAUGARDAGUR
Ísland, Evrópusambandið, norðurslóðir og Kína
Mér hefur fundist athyglis-vert að skoða fullyrðingar
ýmissa mótherja Evrópusam-
bandsins um að umsókn okkar
þjóni ekki íslenskum hagsmun-
um af því hún komi í veg fyrir
nánari samvinnu Íslands við lönd
norðurskautsins, og skaði mögu-
leika okkar á auknum tengslum
við Alþýðulýðveldið Kína. Þessu
er einkum haldið fram af gildum
Sjálfstæðismönnum sem hafa
sumir skilgreint sig sem „inn-
múraða og innvígða“ og leita
saumnálarleit að pólitískum
rökum gegn aðild. Báðar stað-
hæfingarnar eru þó rangar. Um
norðurslóðir er auðvelt að sýna
fram á, að umsókn um aðild að
Evrópusambandinu styrkir hags-
muni Íslands á norðurslóðum.
Hún dregur ekki úr tækifærum
í norðrinu heldur eflir þau. Full-
yrðingunni um Alþýðulýðveld-
ið hafa Kínverjar svarað sjálfir,
því aldrei hefur Kína sýnt Íslandi
jafnmikinn áhuga og einmitt eftir
að Alþingi samþykkti umsókn um
aðild.
Hagsmunir Íslands
Bæði almenn og sértæk rök má
færa fyrir að aðild Íslands að
Evrópusambandinu falli vel að
vaxandi hagsmunum Íslendinga
á norðurslóðum.
Áhugi ESB hefur sprottið
einkum af umhyggju fyrir nátt-
úru og loftslagi. Stefna sam-
bandsins er langt í frá fullmótuð.
Því er ákjósanlegt fyrir Ísland að
sækja um aðild núna, og tryggja
að Ísland geti í samningavið-
ræðum og síðar sem aðildarþjóð
haft rík áhrif á stefnu þess til
að styðja við hagsmuni Íslend-
inga. Á leikvangi alþjóðamála er
sambandið einn öflugasti mál-
svari loftslagsverndar og þéttra
alþjóðareglna um siglingar og
mengunarvarnir. Það þjónar því
Íslandi að hafa afl þess á bak við
hagsmuni sína í norðrinu.
Nálgun Evrópusambandsins
einkennist í senn af forystuhlut-
verki þess um loftslagsvernd og
sterkari viðleitni en flestra til að
vernda hina ofurviðkvæmu nátt-
úru norðurheimskautsins. Áhugi
annarra hefur vaxið í réttu hlut-
falli við auknar líkur á nýtingu
olíu og gass. Nálgun ESB gagn-
vart norðurslóðum slær hins
vegar nákvæmlega í takt við hina
íslensku afstöðu: Kapp er best
með forsjá.
Sameiginlegar þarfir
Hinir sértæku hagsmunir, sem
Ísland á sameiginlega með
Evrópu sambandinu, eru marg-
víslegir. Fyrir okkur er brýnt
að styrkja Norðurskautsráðið
sem vettvang fyrir sameigin-
lega stefnumótun um hagsmuni
á norðurslóðum. Við höfum lagst
gegn hinu svokallaða fimm-ríkja
samráði, sem efnt hefur verið til
án þátttöku Íslands. Það kynni að
muna um bakfisk Evrópu í sókn
fyrir málstað Íslands.
Fyrir Íslendinga skiptir gríðar-
miklu að ráðist verði sem allra
fyrst í alþjóðlegan samning um
varnir gegn afleiðingum olíu-
slysa, ekki síst þar sem pól-
siglingar eru taldar hefjast fyrr
en áður. Þar eigum við sameigin-
legar þarfir með Evrópu. Fyrir
brýna hagsmuni Íslands varðar
því miklu að hafa liðsinni hennar
til að þrýsta á um slíka samninga.
Sama gildir um uppbygg-
ingu alþjóðlegrar björgunar-
miðstöðvar á Íslandi. Sambandið
skiptir meginmáli um ýmiss
konar svæðasamvinnu við upp-
byggingu flutninganeta, s.s.
hafnir, gervihnattaeftirlit og við-
brögð við vá. Innan þess ættum
við því bæði móralska og efnis-
lega kröfu á stuðning við alþjóð-
lega björgunargetu á Íslandi.
Auðlindarökin og Eva Joly
Þeir sem mest styggð kemur að
vegna Evrópusambandsins sarga
stundum á því að bak við vel-
vild Evrópu liggi svartar hvatir
ágirndar á auðlindum Íslendinga.
Það er þó fjarri veruleikanum.
Ekkert í reglum sambands-
ins leiðir til þess að möguleikar
evrópskra fjárfesta til að sælast
í orkuna í fallvötnum eða háhita-
svæðum Íslands ykjust við aðild.
Ekki töpuðu Bretar og Írar olíu-
lindum sínum í Norðursjó. Um
lifandi auðlindir í hafinu gild-
ir regla, sem kennd er við hlut-
fallslegan stöðugleika. Hún þýðir
á mæltu máli að ríki Evrópusam-
bandsins geta ekki gert kröfu um
aflaheimildir nema þau byggi á
sögulegri veiðireynslu. Henni er
ekki til að dreifa í tilviki nokk-
urrar þjóðar síðustu 35 árin eða
svo.
Besta vitnið um þetta er þó
kannski norska konan sem situr
fyrir franska græningja á Evr-
ópuþinginu; Eva Joly. Í Silfrinu
fyrr í vetur vísaði hún algjörlega
á bug að Evrópuríkin myndu
hvoma í sig auðlindir Íslands.
Frú Joly, sem mælti eindregið
með aðild var ómyrk: Við hvorki
getum né viljum taka auðlindir
ykkar.
Alþýðulýðveldið og Ísland
Skondnast er að heyra þá sem
eytt hafa ævi í að berjast gegn
kommúnistastjórnum, og upp-
alninga þeirra á Alþingi, fjarg-
viðrast yfir að nánari tengsl við
Evrópu myndu torvelda fram-
tíðarviðskipti Íslands og Kína.
Sú fjöður stendur í þeim fugli,
að í gangi eru fríverslunarsamn-
ingar við Kína, en ganga hægt.
Íslendingar vilja ekki fallast
á tímabundna frjálsa för kín-
versks vinnuafls til Íslands enda
atvinnuleysi úr hófi keyrt, og
Kínverjar ekki á kröfur fiskiþjóð-
arinnar um tafarlaust tollfrelsi á
fiski. Tvær vinaþjóðir gætu þó
lokið þeim handlegg. En gengju
samningar til lúkningar, myndi
aðild að ESB leysa þá upp og frí-
verslun milli Íslands og Kína
tækist ekki fyrr en samningar
næðust milli Alþýðulýðveldisins
og sambandsins.
Berum nú saman blákalda
hagsmuni. Þegar hefðbundnar
tölur um viðskipti eru skoðaðar
sést að 0,6% af öllum útflutn-
ingi okkar fer til Kína en 77,6%
til ríkja ESB. Hér er meira en
sjónarmunur þó líklegt sé að
fríverslun bætti smám saman í
útflutning til Kína. Inn í þennan
reikning ber að taka þá reynslu
smærri þjóða að erlendar fjár-
festingar stóraukast við aðild,
einkum úr ríkjum Evrópu. Það
er skýrt hvert hagsmunavogin
hallast.
Aðild útilokar hins vegar frá-
leitt aukin viðskiptatengsl við
Kína. Það er undirstrikað af stór-
aukinni áherslu Kínverja á fjár-
festingar í löndum Evrópu. Eng-
inn þarf að tapa svefni vegna
kvíða fyrir því að aðild fæli stór-
veldið frá Íslandi.
Ólygnastur er þó veruleikinn.
Hann segir okkur, að aldrei hafa
Kínverjar haft uppi jafnsterka
viðleitni til að efla tengsl á sviði
viðskipta og einmitt eftir að
Ísland sótti um aðild að Evrópu-
sambandinu.
Utanríkismál
Össur
Skarphéðinsson
utanríkisráðherra
Um norðurslóðir er auðvelt að sýna
fram á að umsókn um aðild að Evrópu-
sambandinu styrkir hagsmuni Íslands
á norðurslóðum. Hún dregur ekki úr tækifærum í
norðrinu heldur eflir þau.
Ferðaskrifstofa
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavik · Sími: 570 8600 · Fax: 552 9450 · Netfang: info@smyril-line.is
26.000 kr. AFSLÁTTUR PR. MANN
10 FYRSTU SÆTIN MEÐ
26.000 AFSLÆTTI EÐA
KR.52.000 Á HJÓN
VIKU SIGLING OG ÞRJÁR
NÆTUR Í BARSELÓNA
FERÐALÝSING
SKEMMTISIGLING
MEÐ GLÆSISKIPI
Lágmarksþátttaka er 16 manns.
Norræna ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að fella
niður ferðina ef ekki er næg þátttaka.
www.norræna.is
JÓLAFERÐ TIL BHAMA
17 – 27. desember
Verð frá kr. 280.000
Fararstjóri: Skúli Unnar Sveinsson
AÐEINS 8 SÆTI LAUS
RÓM, GRIKKLAND, TYRKLAND
OG EGYPTALAND
25. október til 6. nóvember
10 daga sigling og 2 nætur í Róm
Verð frá kr. 340.000
Fararstjóri: Skúli Unnar Sveinsson
Verð frá kr. 299.000 með afslætti
FULLT FÆ
ÐI OG ÖL
L
AFÞREYI
NG UM B
ORÐ
INNIFALI
Ð Í VERÐ
I
be
tr
is
to
fa
n.
is