Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 82
28. maí 2011 LAUGARDAGUR54 Til sölu eru timburhús til flutnings. Þau hafa verið notuð sem kennslustofur við Norðlingaskóla. Einnig er til sölu skúr til flutnings frá Hólmsheiði. Leitað er tilboða í þessar eignir hverja fyrir sig í því ástandi sem þær eru. Nánari upplýsingar um eignirnar eru á vefslóðinni www.reykjavik.is/fer Til sölu Hús til upplyftingar Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı 411 1111 Ráðhús Reykjavíkur Sunnudag 29. maí. kl. 16:00 Aðgangur ókeypis STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR & DANIEL BARRY Gestur Stórsveitar Reykjavíkur á þessum tónleikum er trompetleikarinn, stjórnandinn, tónskáldið og útsetjarinn Daniel Barry frá Seattle í Bandaríkjunum. Tónlist hans er afar fjölbreytt, en hann leggur meðal annars áherslu á margvíslega Suður-ameríska tón- list og blöndur slíkrar tónlistar og jazztónlist- ar. Á efnisskrá tónleikanna verður nýleg stór- sveitarstónlist eftir Daniel Barry, að verulegu leyti undir suður-amerískum áhrifum. SUÐUR-AMERÍSK STÓRSVEITARSVEIFLA Bandarískir fjölmiðlar hafa velt sér mikið upp úr því hvort Idol- þátttakendurnir Lauren Alaina og Scotty McCreery séu par. Þau eru þó aðeins nánir vinir að sögn McCreery. „Við erum bara nánir vinir. Ég hitti hana strax fyrsta daginn í Hollywood-vikunni og með okkur hefur tekist mikil vinátta. Við vorum einnig í sama skóla þann- ig að við þekktumst aðeins áður, en við erum ekki par,“ sagði hinn ungi Idol-sigurvegari á úrslita- kvöldinu. Söngvarinn mun nú vinna að sinni fyrstu hljómplötu og segist McCreery ætla að vanda til lagavalsins. „Ég vil fá nokk- ur góð lög á plötuna, það skiptir mestu máli núna. American Idol er aðeins stökkpallur út í tónlistar- bransann, ég þarf að sjá um rest.“ Ekki kærustupar EKKI PAR Idol-þátttakendurnir Lauren Alaina og Scotty McCreery eru ekki par. NORDICPHOTOS/GETTY Sagnararfur og þjóðardramb Íslendinga er á meðal þess sem sex listamenn velta fyrir sér í ljóða-, leikhús-, sagna- og tónlistar- sýningunni Bændur flugust á sem verður flutt í Tjarnarbíói á morg- un. Verkið er hluti af Listahátíð í Reykjavík og listamennirnir sem um ræðir eru Bergur Ebbi Bene- diktsson, Halldór Halldórsson, Ugla Egilsdóttir ásamt Þjóðverj- unum Noru Gomringar, Finn-Ole Heinrich og Hannes Wittmer sem er einnig þekktur sem Spaceman Spiff. Í sýningunni velta listamennirnir meðal annars fyrir sér hvort Íslend- ingasögurnar séu heimild um stór- mennsku Íslendinga á miðöldum eða Eurovision-framlag síns tíma. Þá er velt fyrir sér hvort útlending- ar hafi einhvern áhuga á Íslend- ingasögum eða hvort það þurfi að tjúna sögurnar upp með álfum og einhyrningum til að þær passi inn í þá ímynd sem þeir hafa af Íslandi. Ísland verður heiðursgestur á Bókasýningunni í Frankfurt í októ- ber næstkomandi. Íslenskar bók- menntir hafa löngum notið vinsælda í Þýskalandi og nú er væntan leg ný heildarþýðing Íslendingasagna á þýsku. Verkinu Bændur flugust á er ætlað að hita þýsku þjóðina upp fyrir Bókasýninguna í Frankfurt og verður sýnt víðs vegar um Þýska- land fram á haust. - afb Þýska þjóðin hituð upp GÓÐUR HÓPUR Bergur Ebbi Benedikts- son, Halldór Halldórsson og Ugla Egilsdóttir ásamt Þjóðverjunum Noru Gomringer, Finn-Ole Heinrich og Hannes Wittmer. Ridley Scott er áhugasamur um að taka upp tvær kvik- myndir hér á land: Reykja- vik og geimverutryllinn Prometheus. Íslenskt lands- lag hefur áður verið notað sem leikmynd fyrir Holly- wood en þó sjaldnast sem Ísland sjálft. Fréttablaðið rifjaði upp helstu Holly- wood-smellina sem hafa verið teknir upp hér á landi. Heimili Bonds og Batmans A VIEW TO A KILL (1985) Margir Íslendingar ráku upp stór augu þegar bandarískt tökulið tók sér bólfestu við Jökulsárlón og sjálfur James Bond skíðaði niður jökulinn. Atriðið, sem hafði verið beðið með mikilli eftir- væntingu, var fremur stutt en íslenska þjóðarstoltið fékk eitthvað fyrir sinn snúð. Framleiðandi myndarinnar upp- lýsti reyndar að flestir leikararnir hefðu verið staðgenglar. LARA CROFT: TOMB RAIDER (2001) Sennilega í fyrsta og eina skiptið sem karlpeningurinn hefur hrópað húrra yfir heimsókn Hollywood-stjörnu. Angelina Jolie og Daniel Craig komu hingað til lands og dvöldust við Jökulsárlón í tvær vikur. „Þetta er einn minnisstæðasti tími lífs míns,“ rifjaði Craig upp seinna meir í viðtali við Fréttablaðið. DIE ANOTHER DAY (2002) Enn og aftur varð Jökulsárlón fyrir valinu og enn og aftur var James Bond mættur til leiks. Að þessu sinni var það Die Another Day með Pierce Brosnan og Halle Berry. Og loksins fékk Ísland sinn sess, vondi karl- inn með demantsandlitið var nefnilega með íshöll á Íslandi og Bond reyndi að hafa hendur í hári hans. Magnaður bílaeltingaleikur á lóninu stendur upp úr annars slappri Bond-mynd. BATMAN BEGINS (2005) Svínafellsjökull varð fyrir valinu hjá Christopher Nolan þegar hann hugðist kvikmynda upphaf Leðurblökumannsins og stranga þjálfun hans í Tíbet. Íslenska landslagið varð mun fyrirferðarmeira en menn höfðu búist við og áhorfendur supu hveljur þegar þeir sáu sjálfan Bruce Wayne í æsilegum slag á Íslandi. FLAGS OF OUR FATHERS (2006) Stærsta kvikmyndaverkefni Íslandssögunnar. Hátt í þúsund manns fengu vinnu hjá sjálfum Clint Eastwood þegar hann lagði Sandvík undir sig fyrir stríðsmyndina sína. Íslenskt landslag hefur aldrei verið jafn áberandi í nokkurri kvikmynd. Kvikmyndatímaritið Variety greindi síðan frá því að í þessi fimm ár, 2001-2006, höfðu kvikmyndagerðarmenn frá Hollywood eytt fimm milljörðum íslenskra króna hér á landi. HOSTEL II Ekki er hægt að ljúka þessari upptalningu án þess að minnast á hryll- ingsmyndaleikstjórann Eli Roth. Hann hefur alltaf talað fallega um Ísland, fékk hugmyndina að Cabin Fever hér á landi og lét eina persónu í Hostel I tala íslensku. Bláa lónið í Grindavík fékk að njóta sín í framhaldinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.