Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 2
28. maí 2011 LAUGARDAGUR2
SAMFÉLAGSMÁL Greiddar hafa verið
á þriðja hundrað milljónir króna úr
ríkissjóði til Breiðavíkurdrengja
frá því að greiðslur hófust í apríl-
byrjun. Meðalbæturnar til vist-
manna eru um 3,6 milljónir króna,
að sögn Halldórs Þormars Hall-
dórssonar, lögfræðings hjá Sýslu-
manninum á Siglufirði sem ákvarð-
ar bæturnar.
„Þessum greiðslum er að mestu
lokið. Alls barst 121 umsókn en
vistmenn á Breiðavíkurheimilinu,
sem starfrækt var frá 1952 til 1979,
voru að minnsta kosti 155 en jafn-
vel 159,“ greinir Halldór frá.
Hann segir sáttaboð hafa verið
send út í mars en þar sem enn hafi
ekki borist svör við þeim öllum sé
óljóst um niðurstöðu í nokkrum
málum. Eftir er að afgreiða fjórar
umsóknir.
„Einn einstaklingur hefur þegar
sent erindi til úrskurðanefndar um
sanngirnisbætur sem getur ákvarð-
að hærri bætur eða talið sáttaboð
fullnægjandi. Óvíst er um nokkur
sáttaboð en þau eru innan við tíu.
Aðrir hafa samþykkt sáttaboðin.“
Að sögn Halldórs voru greiddar
tvær milljónir strax til hvers ein-
staklings. „Samkvæmt lögum ber
að geyma allt umfram tvær millj-
ónir í 18 til 36 mánuði. Það fengu
þó nokkrir sáttaboð upp á fjórar
milljónir króna eða meira, en það
er ekki útilokað að sumir fái síðar
viðbótar bætur, hafi þeir orðið fyrir
miska á öðrum vistheimilum.“
Áætlað var að heildarbætur
gætu numið 300 milljónum króna.
„Þessi tala hefur verið svolítið á
reiki þar sem fjárþörfin hefur verið
metin svolítið eftir því sem málið
hefur unnist. Þetta er á sérstökum
fjárlaga lið. Tengiliður vistheimila
er á sama fjárlagalið. Rannsóknar-
nefndin er á öðrum fjárlagalið,“
tekur Halldór fram.
Hann getur þess jafnframt að
sýslumannsembættið á Siglufirði
hafi ekki fengið neina aukafjárveit-
ingu vegna þessa verkefnis.
Á næstu dögum verða send sátta-
boð til þeirra sem voru vistmenn á
Kumbaravogi. „Vistmenn þar voru
32 en 15 sóttu um bætur. Sumir
vistmanna greindu frá harðræði
en aðrir sögðu vistina hafa verið
ágæta.“
Alls hafa 120 af þeim 175 sem
voru í Heyrnleysingjaskólanum
sótt um bætur, segir Halldór.
Auglýst verður í sumar vegna
bóta til þeirra sem dvöldu í Reykja-
hlíð og á Bjargi. ibs@frettabladid.is
Yfir 200 milljónir til
Breiðavíkurdrengja
Meðalbætur til vistmanna eru um 3,6 milljónir. Alls barst 121 umsókn um
bætur. Flestir hafa samþykkt sáttaboðin og er greiðslum að mestu lokið. Helm-
ingur á Kumbaravogi sótti um og meirihlutinn úr Heyrnleysingjaskólanum.
BREIÐAVÍKURHEIMILIÐ Flestir vistmenn hafa samþykkt sáttaboðin sem þeim voru send. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Arnar, klikkaðir þú að á að
toppa á hárrréttum tíma?
„Það er alveg hárrétt hjá þér.“
Arnar Gunnlaugsson setti upp hárkollu í
auglýsingu vegna þátttöku U21-landsliðs
karla í úrslitakeppni EM í næsta mánuði.
Í auglýsingunni eru eldri knattspyrnu-
hetjur að reyna að smygla sér inn í hið
sigursæla ungmennalið.
MANNRÉTTINDI Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra baðst í gær
afsökunar, fyrir hönd íslenskra
stjórnvalda, á meðferð sem
Falun Gong-iðkendur máttu þola
í tengslum við Íslandsheimsókn
Jiangs Zemins, forseta Kína sum-
arið 2002.
Afsökunarbeiðnin kom úr ræðu-
stól Alþingis eftir fyrirspurn Mar-
grétar Tryggvadóttur, þingkonu
Hreyfingarinnar.
Hún sagði meðal annars í ræðu
sinni: „Íslensk stjórnvöld brutu á
mannréttindum, mál- og tjáningar-
frelsi og ferðafrelsi þessa fólks og
bæði Persónuvernd og umboðs-
maður Alþingis úrskurðuðu síðar
að lög hefðu verið brotin um þessa
gesti okkar.“
Hún spurði síðan hvort ekki
væri tímabært að biðja viðkom-
andi formlega afsökunar.
Össur sagði alveg víst að svona
nokkuð myndi ekki endurtaka sig
á meðan þessi ríkisstjórn sæti og
tók svo Margréti á orðinu.
„Ég get, fyrir hönd íslensku
ríkis stjórnarinnar, héðan úr þess-
um stóli, beðið þá sem þá komu og
urðu fyrir brotum af þessu tagi,
afsökunar.“
Össur sagðist hafa talað gegn
framferðinu gegn Falun Gong
bæði í stjórnarandstöðu og sem
ráðherra og taldi að þarna hefði
verið farið út fyrir heimildir.
„Mér fannst þetta að öllu leyti
vera mjög ranglega að farið,“ bætti
hann við.
Margrét fagnaði orðum Össurar
en hvatti ríkisstjórnina í heild til
að biðja formlega afsökunar.
Össur svaraði því til að hann
teldi að ekki væri til einlægari eða
formlegri boðleið fyrir afsökunar-
beiðni ríkisstjórnar en úr ræðu-
stóli Alþingis. - þj
Utanríkisráðherra í ræðustóli á Alþingi í gær um viðbúnað vegna komu kínverska forsetans árið 2002:
Össur bað iðkendur Falun Gong afsökunar
AFSÖKUNARBEIÐNI Össur bað iðkendur
Falun Gong afsökunar á þingi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Ríkharð Júlíus
Ríkharðsson, leiðtogi vélhjóla-
samtakanna Black Pistons,
hefur hafið afplánun eftirstöðva
tveggja ára fangelsisdóms sem
hann hlaut fyrir brennu haustið
2009.
Ríkharð hafði setið í gæslu-
varðhaldi í tvær vikur grunaður
um hrottalega handrukkun og
fleiri brot. Með því er hann talinn
hafa rofið skilyrði reynslulausn-
ar sinnar.
Félagi Ríkharðs, Davíð Freyr
Rúnarsson, hefur einnig setið í
varðhaldi vegna málsins. Það var
í gær framlengt til 23. júní. - sh
Grunaðir um misþyrmingar:
Félagar í Black
Pistons verða
áfram í haldi
NÁTTÚRA Mun gróðursælla er hér
á landi nú heldur en á undanförn-
um árum. Greining á gögnum
frá gervitunglum NOAA-stofn-
unarinnar í Bandaríkjunum,
sem greina blaðgrænu og grósku
gróðurs á yfirborði jarðar, sýna
að gróður á Íslandi hefur aukist
um tæp 50 prósent síðan árið
1982. Á vef Náttúrufræðistofn-
unar kemur fram að þetta séu
líklega fyrstu mæliniðurstöður
af þessu tagi sem birtar eru fyrir
landið í heild.
Líklegt er að aukningu gróðurs
á landinu megi rekja til hlýnandi
veðurfars, minnkandi búfjárbeit-
ar og aukinnar landgræðslu og
skógræktar. - sv
Gervitungl mæla gróður:
Gróðursælla
land en áður
ATVINNUMÁL Bæjarráð Akureyrar
lýsti í gær megnri óánægju með
ákvörðun Já Upplýsingaveitna að
loka starfsstöð ja.is á Akureyri.
„Bæjarstjóri hefur óskað eftir
því við stjórnarformann og for-
stjóra fyrir-
tækisins að
þær komi á
fund bæjarráðs
vegna þessar-
ar lokunar, en
þær hafa ekki
séð sér fært að
verða við þeirri
ósk til þessa,“
sagði í bókun
bæjarráðsins.
Fyrirtækið hefði um áraraðir,
bæði fyrir og eftir einkavæðingu,
notið þjónustu góðs og trausts
starfsfólks sem nú yrði fyrir
barðinu á þeirri ákvörðun fyrir-
tækisins að flytja störf á suð-
vesturhorn landsins. „Bæjarráði
þykir miður að fyrirtækið skuli
ekki hafa samband við bæjar-
yfirvöld, áður en ákvörðunin var
tekin.“ - gar
Harma lokun hjá ja.is:
Já-menn ekki á
fund bæjaráðs
EIRÍKUR S.
BJÖRGVINSSON
FERÐAÞJÓNUSTA Harpa og Iceland-
air undirrituðu í gær samstarfs-
samning til tveggja ára. Mark-
miðið er að fjölga ráðstefnu- og
menningarferðamönnum sem
koma til landsins og vekja athygli
á Íslandi sem spennandi alþjóð-
legum áfangastað.
Samningurinn felur það í
sér að Icelandair verður aðal-
styrktaraðili Hörpu næstu tvö
árin og styður við tónlistarstarf
og ráðstefnuhald í húsinu. Einnig
verður náið samstarf með stjórn-
endum beggja aðila varðandi
markaðssetningu og kynningar-
starf erlendis. - shá
Icelandair og Harpa:
Fjölbreytt sam-
vinna í tvö ár
TÓNLISTARHÚS Til stendur að laða fleiri
gesti til landsins með víðtæku samstarfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL Framkvæmdastjórn
Samfylkingarinnar leggur til að
sett verði á laggirnar svokölluð
siða- og sáttanefnd innan flokks-
ins, sem eigi að hafa það hlutverk
að fylgjast með því hvort flokks-
menn, kjörnir fulltrúar og forystu-
menn víki frá stefnu flokksins með
gjörðum sínum og taki að öðru
leyti á erfiðum málum innan hans.
Þetta er meðal tillagna sem
framkvæmdastjórnin hefur
unnið upp úr starfi umbótanefnd-
ar flokksins, sem skilaði af sér
skýrslu í desember síðastliðn-
um. Fréttablaðið hefur tillögurn-
ar undir höndum, en þær verða
kynntar á flokksstjórnarfundi nú
um helgina.
Einnig er lagt til að nefnd verði
falið að smíða siðareglur fyrir
kjörna fulltrúa flokksins, þar sem
kveðið verði á um skuldbindingu
við grunngildi og samþykkta stefnu
flokksins og vandaða stjórnsýslu-
hætti, svo sem við mannaráðningar.
Tillögurnar snúa að miklu leyti
að innra starfi flokksins, funda-
höldum, nefndastarfi og félagslífi.
Einn kaflinn fjallar um styrkja-
mál flokksins og einstakra flokks-
manna. Framkvæmdastjórnin
tekur undir það með umbótanefnd-
inni að brýn nauðsyn sé að setja
skýrar og þröngar reglur um fjár-
mál flokksins og fjáröflun próf-
kjörsframbjóðenda.
Umbótanefndin lagði til að Sam-
fylkingin bannaði auglýsingar í
prófkjörsbaráttu og beitti sér einn-
ig fyrir því að kosningaauglýsingar
stjórnmálaflokka í ljósvakamiðlum
yrðu bannaðar. Í umsögn fram-
kvæmdastjórnar segir að mikil
eining hafi verið um bann við próf-
kjörsauglýsingum, en ekki um hið
síðarnefnda. Framkvæmdastjórnin
vísar svo hvoru tveggja í nefnd. - sh
Vill banna prófkjörsauglýsingar og setja þröngar reglur um fjármál flokksins:
Samfylkingin siðar fulltrúa sína
SAMFYLKINGIN Framkvæmdastjórn
flokksins vill vanda til mannaráðninga í
stjórnsýslunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
lax
með strengjabaunum,
tómötum og kryddjurtasósu
Muna að kreista
sítrónuna yfir laxinn
Farðu inn á gottimatinn.is til að fá alla uppskriftina
og hugmyndir að fleiri girnilegum réttum.