Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 32
28. maí 2011 LAUGARDAGUR32
■ HVERNIG SNERTIR AMNESTY ÍSLENDINGA?
O
pnaðu dagblaðið
þitt – hvaða dag
vikunnar sem er –
og þú munt finna
frétt einhvers stað-
ar að úr heiminum
um manneskju sem var fangelsuð,
pyntuð eða tekin af lífi vegna þess
að skoðanir hennar eða trú er óvið-
unandi í augum stjórnvalda.“ Með
þessum orðum hófst blaðagreinin
sem varð upphafið að stærstu mann-
réttindasamtökum í heimi, Amnesty
International. Það var breski lög-
fræðingurinn Peter Benenson
sem skrifaði greinina um gleymdu
fangana og kallaði eftir sakarupp-
gjöf árið 1961. Hann hafði frétt af
tveimur portúgölskum nemum, sem
höfðu skálað fyrir frelsinu og verið
fangelsaðir fyrir vikið. Benenson
benti á þær þúsundir manna sem
væru fangelsaðir með ólögmætum
hætti og vildi berjast fyrir því að
slíkum samviskuföngum yrði sleppt
úr haldi eða þeir fengju að minnsta
kosti réttlát réttarhöld. Ákallið var
svo birt í öðrum dagblöðum víða um
heiminn og í kjölfarið urðu samtök-
in til. Á alþjóðlega mannréttinda-
deginum, 10. desember, var kveikt
á fyrsta Amnesty-kertinu en kertið
hefur orðið að tákni samtakanna.
Beita sér víðar nú til dags
Allt frá stofnun hafa samtökin bar-
ist fyrir því að mannréttindi séu
virt og allir njóti verndar þeirra.
Í upphafi voru þau fyrst og fremst
fangasamtök eins og fyrr segir.
Til dæmis hafa þau beitt sér fyrir
afnámi dauðarefsingar og pynt-
inga frá áttunda áratugnum. Frá
stofnun hefur margt breyst og
samtökin beita sér nú víðar á sviði
mannréttinda þó áfram sé lögð
áhersla á fyrrgreind atriði.
Samtökin rannsaka mannrétt-
indabrot og gáfu út fyrstu skýrslur
sínar, þá um aðstæður fanga, árið
1965. Nú til dags gefa samtökin út
stóra skýrslu árlega um mannrétt-
indabrot víðs vegar í heiminum. Í
skýrslu síðasta árs var greint frá
mannréttindabrotum í 157 lönd-
um og landsvæðum. Rannsóknar-
nefndir eru sendar til að skoða
ástand þar sem þurfa þykir.
Megin reglan er sú að deildir frá
öðrum löndum eiga að rannsaka
mál og þrýsta á viðeigandi aðila.
Þetta er gert til þess að samtökin
geti frekar viðhaldið ópólitískri
stöðu sinni. Að sama skapi taka
samtökin ekki við fjármagni frá
opinberum aðilum og ekki af fyrir-
tækjum nema þau hafi sérstaklega
verið skoðuð. Þannig vilja samtök-
in einnig vera óháð. Þau reiða sig
því að miklu leyti á fjárhagslegan
stuðning félaga.
Samtökin hvetja til aðgerða þar
sem þrýst er á stjórnvöld, stofn-
anir, fyrirtæki og alþjóðlegar
Í Íslandsdeild Amnesty eru ellefu þúsund félagar auk þess
sem fleiri taka þátt í aðgerðum og
styðja samtökin.
„Upphaflega hugsunin í
Amnesty var þessi alþjóðlega
samstaða, að við gætum haft
áhrif á líf fólks og hjálpað fólki
þó að við hefðum aldrei séð við-
komandi og byggjum jafnvel í
allt öðru landi,“ segir Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty. „Við
höfum séð gífurlegar breytingar
í heiminum. Við búum núna við
miklu betra mannréttindakerfi
og eftirlitskerfi en þegar sam-
tökin voru stofnuð. Það hafa tugir
þúsunda verið leystir úr haldi og
fengið lausn sinna mála vegna
aðgerða Amnesty. En það eru
náttúrulega enn óteljandi verkefni
fram undan.“
Amnesty reynir að vera í takt
við tímann. Ný tækni skiptir máli
í mannréttindabaráttunni segir
Jóhanna, bæði í aðgerðum okkar
hér á landi og einnig fyrir fólk
sem stendur í ströngu í eigin rétt-
indabaráttu eins og í Miðaust-
urlöndum nú. „Upplýsingarnar
sem við fáum frá þessum löndum
koma í gegnum símana og netið.“
Þegar samtökin byrjuðu kom
fólk saman og handskrifaði bréf
vegna mannréttindamála. Sums
staðar er það enn gert en tímarn-
ir hafa þó breyst. „Við byrjuðum
með hjálparáköll í gegnum tölvu-
póst, þar sem félagar fá upplýsing-
ar um þrjú mál og tengil þar sem
hægt er að nálgast tilbúið bréf,
prenta það út og senda. Þegar við
byrjuðum með þetta þá áttu allir
borðtölvur og prentara tengda
við þær.“ Í dag sé öldin önnur og
fólk er hvar sem er með tölvurn-
ar þegar það fær upplýsingar
um nýjar aðgerðir. „Núna í júní
opnum við nýja aðgerðasíðu, netá-
kall. Þá fær fólk tilkynninguna, og
getur enn prentað út og gert þetta
sjálft, en hefur líka möguleika á
að skrifa bara undir á netinu. Við
sjáum um að koma því áfram.“
Að auki hefur SMS-aðgerðanet
komið sér vel, en þá fær fólk sms
með upplýsingum um ákveðin
mannréttindamál sem verið er að
berjast fyrir. Það sendir skeyti til
baka og hefur þar með sett nafn
sitt á undirskriftalista.
„Félagarnir hjálpa til, hver á
sinn hátt. En hver aðgerð skiptir
máli. Við vitum það að dropinn
holar steininn. Það sem við viljum
núna er alþjóðlegt ákall um breyt-
ingar. Hver og einn einstaklingur
getur haft áhrif og skiptir máli.
Við búum ekki á eylandi – okkar
velferð tengist því að aðrir njóti
líka réttinda.“
Vitum að dropinn holar steininn
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty
Mannréttindasamtökin Amnesty International halda í dag upp á fimmtíu
ára afmæli sitt. Á þessum tímamótum eru félagar og stuðningsmenn sam-
takanna fleiri en þrjár milljónir í rúmlega 150 löndum og landsvæðum um
allan heim, þar af ellefu þúsund á Íslandi. Þórunn Elísabet Bogadóttir kynnti
sér sögu og stefnu einna stærstu mannréttindasamtaka heims.
hreyfingar. Ýmsum aðferðum er
beitt í þessum tilgangi, allt frá
mótmælum og samkomum á opin-
berum vettvangi til bréfaherferða
og annarra herferða á netinu.
Í gegnum tíðina
Árið 1964 fékk Amnesty ráðgef-
andi stöðu hjá Sameinuðu þjóðun-
um og ári síðar hjá Evrópuráðinu.
Tíu árum síðar samþykktu Sam-
einuðu þjóðirnar ályktun og síðar
yfirlýsingu gegn pyntingum eftir
herferð samtakanna.
Íslandsdeild Amnesty var svo
stofnuð árið 1974, og er því meðal
eldri deilda samtakanna. Frum-
kvæði að því áttu hjónin Sigrún
Sigurjónsdóttir og Frank Vee-
nekaas, sem höfðu starfað með
Amnesty í Hollandi. Þau komu
hingað til lands fyrri hluta ársins
1974 og viðruðu hugmyndina um
að stofna deild hér. Líkt og Peter
Benenson hafði gert komu þau
málinu á framfæri í dagblöðum.
Þar birtist lítil tilkynning um
kynningarfund og í framhald-
inu var stofnfundurinn haldinn
í Norræna húsinu 15. septem-
ber þetta ár. Nú hefur samtök-
unum vaxið fiskur um hrygg og
telja ellefu þúsund félaga hér á
landi.
Amnesty International hlaut
friðarverðlaun Nóbels árið 1977
fyrir að styrkja stoðir frelsis og
réttlætis, og þar með friðar í heim-
inum. Nokkrum árum fyrr hafði
Sean McBride, formaður fram-
kvæmdastjórnar samtakanna,
hlotið sömu verðlaun. Þegar kom
fram á níunda áratuginn höfðu
samtökin hafið herferðir gegn
dauðarefsingum, Þá höfðu sextán
lönd afnumið slíka refsingu, en nú
eru þau 96 talsins, auk þess sem
önnur ríki stunda þær ekki þó enn
sé heimild til þess í lögum. Félög-
unum hélt áfram að fjölga sam-
hliða fleiri herferðum og árið 1992
voru þeir orðnir milljón talsins.
Fjórum árum síðar hófst herferð
fyrir alþjóðlegum sakamáladóm-
stóli, sem var samþykkt að stofna
árið 1998.
Síðustu tíu ár hafa verið við-
burðarík í sögu Amnesty og sam-
tökin hafa breytt stofnsamþykkt-
um og sett efnahagsleg, félagsleg
og menningarleg réttindi fólks inn
í baráttuna. Í dag verður svo hald-
ið upp á daginn með viðburðum
um allan heim.
GLEYMDU FANGARNIR Greinin eftir
Peter Benenson sem Observer birti
í maí árið 1961 varð upphafið að
Amnesty International.
Kertið hefur logað í fimmtíu ár
Árið 2010 vann Amnesty
að málum í 89 löndum
sem vörðuðu ólögleg höft á
tjáningarfrelsi.
Sama ár voru pyntingar og ill
meðferð í 98 löndum skráð
og ósanngjörn réttarhöld í 54
löndum.
Mannréttindabrot voru skráð í
157 löndum.
Golfmót VM
Mótið er fyrir félagsmenn VM-Félag
vélstjóra og málmtæknimanna og
má hver félagsmaður bjóða
með sér einum gesti.
Mótsgjaldið er 6.850 kr.
fyrir hvern þátttakanda.
Matur og nestispakki á
völlinn er innifalinn í
þátttökugjaldinu.
Umsjónarmenn mótsins eru:
Ragnar Halldórsson, Hjálmar
Þ. Baldursson og Steingrímur
Haraldsson.
Skráning hefst 18. maí
í síma 575-9800 eða á
netfangið vm@vm.is
Skráningu lýkur 1. júní.
VM-mótið í golfi
verður haldið á
Keilisvellinum
föstudaginn 3. júní kl. 12.
VM-FÉLAG VÉLSTJÓRA OG MÁLMTÆKNIMANNA
Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 - www.vm.is