Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 40
28. maí 2011 LAUGARDAGUR2
„Ég held að það sé vegna þess
að nú var náttúrulegt og ferskt
útlit í hávegum haft, en að auki
er ég skapgóð, afslöppuð og opin
manneskja. Ég þarf lítið að hugsa
um húðina, mála mig sárasjaldan
og hef varla litað hár mitt fyrr en
nú að ég fékk mér strípur,“ segir
Sigrún Eva, sem er ferskleikinn
holdi klædd og með línurnar í lagi.
„Kroppinn hef ég úr sundinu,
enda alhliða og mótandi líkams-
þjálfun. Ég hætti nýlega áralöng-
um æfingum hjá Sundfélagi Akra-
ness, því skólinn gengur fyrir og
mig skorti nógu brennandi áhuga
til að æfa tvisvar á dag í tvo tíma
í senn. Nú finnst mér besta heilsu-
ræktin að fara í göngu með hund-
inn,“ segir Sigrún Eva, sem heima
fyrir er umvafin fegurð því móðir
hennar Margrét Snorradóttir var
eitt sinn Ungfrú Akranes og bróð-
ir hennar, Haukur Ármannsson,
Herra Vestur land og annar í keppn-
inni Herra Ísland árið 2004.
„Nú dugir ekki lengur að stökkva
út með stírur í augum og hárið upp
í loft, því sem Ungfrú Ísland er ég
fyrirmynd og mér finnst ég þurfa
að vera fín og sæt áður en ég held
út í daginn.“
Sigrún Eva á engan kærasta en
nýtur lífsins í góðra vina hópi. „Við
fjölskyldan eigum sumarbústað í
Húsafelli og slökum þar oft á um
helgar, en svo er ég líka mikið bíó-
frík og fer iðulega með vinkonum
mínum í bíó til Reykjavíkur. Okkur
finnst líka gaman að rúnta og þá sit
ég oftast við stýrið því ég smakka
ekki vín. Þessa helgi verð ég hins
vegar á Skaganum í útskriftarveislu
og á morgun ætla vinkonur mínar
að gera mér glaðan dag til að fagna
sigrinum.“ thordis@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Sigrún Eva Ármannsdóttir er Ungfrú
Ísland 2011.
1Skráning á sumarönn stendur til 31. maí
á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
Stuttkápur
verð frá
19.900
Yfi rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Toppvö
rur
toppþjó
nusta.
Nýjar vörur
Stutt kápa
með hettu
19.900 kr.
Íþróttaviðburður verður sýndur
í þrívídd hérlendis í fyrsta sinn í
dag þegar Smárabíó í samstarfi
við Stöð 2 sport sýnir beint frá
úrslitaleiknum í meistaradeildinni í
knattspyrnu. Liðin sem mætast eru
Barcelona og Manchester United
og má búast við að stuðningsmenn
liðanna fjölmenni á leikinn enda er
orðið uppselt.
„Jú, ég er afar spenntur að sjá
hvernig leikurinn mun koma út
og þetta getur án efa orðið mjög
gaman. Ég held að þetta sé klár-
lega framtíðin; að horfa á stórleik-
ina í hágæða þrívídd,“ segir Steinn
Jakob Ólason, formaður stuðnings-
mannaklúbbs Manchester United
hér á landi, sem ætlar að horfa á
leikinn í Smárabíói í kvöld. Svo
virðist sem þessi nýjung fái góðan
hljómgrunn en uppselt varð á leik-
inn á tveimur dögum svo úr varð að
annar salur var látinn undir leik-
inn og 240 miðum var bætt við. Þeir
miðar seldust einnig upp á einum
degi þannig að í heild munu 650
manns horfa á leikinn í þrívídd í
kvöld í tveimur sölum.
Steinn segir að það
sé óneitanlega sér-
stök tilfinning að
fara að horfa á
úrslitaleikinn í
kvöld í sal þar
sem ekki eru ein-
ungis staddir stuðn-
ingsmenn Manchester
United heldur einnig
„andstæðingarnir“
– stuðningsmenn Barcelona.
Ekki er þó starfræktur sér-
stakur stuðningsmanna-
k lúbbu r B a rc elo n a
hérlendis en stuðnings-
mannaklúbbur Man.United
er einn sá stærsti. Búast má
við því að Manchester-
menn verði því í meiri-
hluta en Steinn býst við
fótboltaáhugamönnum úr
öllum áttum.
„Það er auðvitað nýj-
ung að horfa með andstæð-
ingunum á leikinn en það
er líka það sem gerir þetta
spennandi og maður er bara
mjög jákvæður,“ segir Steinn og
bætir við að hann eigi ekki von á
að það komi til einhverra ryskinga,
menn hagi sér ekki það barnalega.
„Það verða ekki heldur bara Barce-
lona- og Manchester-aðdáendur
í salnum heldur eru fjölmargir
sem vilja einfaldlega koma og sjá
góðan leik, enda eru þetta ein tvö
bestu knattspyrnulið Evrópu og
háspennufótbolti.“
Húsið verður opnað klukkan 16
en leikurinn hefst klukkan 18.30.
„Ég spái mínum mönnum auð-
vitað engu öðru en sigri og held
því áfram. Úrslitin 3-1 hafa verið
að læðast að mér.“ juliam@frettabladid.is
Spennandi að vera með
andstæðingunum
Síðar í dag verður í fyrsta sinn sýnt beint frá íþróttaviðburði hérlendis í hágæða þrívídd þegar úrslita-
leikur í Meistaradeildinni í knattspyrnu er sýndur í Smárabíói. Mikil eftirvænting ríkir vegna leiksins.
Steinn Jakob Ólason, formaður stuðningsmannaklúbbs Manchester United, segist
ekki búast við öðru en að allt fari vel fram þegar stuðningsmenn liðanna í kvöld
mætast í einum og sama salnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vélhjólaklúbbur verður stofnaður á Snæfellsnesi á morgun.
Stofnfundurinn fer fram í bakaríinu Nesbrauði í Stykkishólmi
klukkan 14. Þar verður valið nafn á klúbbinn og kosið í stjórn.
Kammerklúbburinn,
hópur tuttugu ungra
tónlistarnemenda,
heldur tónleika í
Gerðubergi á morgun
klukkan 14. Krakkarnir,
sem eru á aldrinum
8 til 18 ára, munu
flytja ýmsa tónlist
eftir innlend og
erlend tónskáld.
Aðgangur er
ókeypis.
www.gerduberg.is