Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 4
28. maí 2011 LAUGARDAGUR4 ELDGOS Yfir hundrað manna lið slökkviliðs- og björgunarsveita- manna víðs vegar að tóku þátt í hreinsunarstarfi á Kirkjubæjar- klaustri og nærsveitum í gær. Hreinsa þarf hundruð húsa allt frá Álftaveri austur að Lóma- gnúpi. Gosvirkni í Grímsvötnum dvínar stöðugt en áfram er fólki ráðið frá því að fara nærri eld- stöðinni. Vagn Kristjánsson, verk- efnastjóri þjónustumiðstöðvar almannavarna á Klaustri, segir að hreinsunarstarfið hafi gengið vonum framar. „Hér er afar öfl- ugt lið slökkviliðs- og björgunar- sveitarmanna við störf. Þetta eru fagmenn og eins og þeir hafi aldrei gert annað; samstarfið er frábært.“ Vagn segir að hér sé samstillt átak á ferðinni því slökkvilið af höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesj- um, Hveragerði, Selfossi, Hellu, Vík, Klaustri og Öræfum var að störfum í gær auk þess sem Mjólkursamsalan á Selfossi lán- aði mjólkurbíl með tengivagni til að keyra vatn til að fylla á bílana. Vagn segir verkefnið fram undan vera ærið. „Það þarf að skoða og þvo allt húsnæði frá Álftaveri austur að Lómagnúpi. Ég áætla að þetta séu nokkur hundruð hús sem gæta þarf að.“ Vagn segir útilokað að meta hve- nær hægt sé að segja hreinsunar- störfum lokið enda sé það veður- guðanna að ákveða það. „Það fer eftir því hvað gerist þegar næst hreyfir vind, núna er rigning og allt gott.“ Fólk á hamfarasvæðinu hefur nokkrar áhyggjur af því ef hvess- ir úr óhagstæðri vindátt, enda kom það fram í viðtali við Magnús Tuma Guðmundsson jarðeðlis- fræðing, í Fréttablaðinu í gær að óheyrilegt magn gjósku er á jöklinum. Í átta kílómetra fjar- lægð frá eldstöðinni er þykkt gjóskunnar 170 sentimetrar. Samkvæmt stöðuskýrslu almannavarnadeildar ríkislög- reglustjóra í gær dvínar gosvirkni í Grímsvötnum enn. Þó komu fram stöku óróapúlsar á nokk- urra klukkustunda fresti. Ekki hefur sést til gosmakkar frá því í fyrradag á ratsjám Veðurstofn- unnar. Viðbúnaðarstig hefur verið lækkað og ástand búfjár er metið almennt gott. Starfsmenn Land- græðslunnar og fleiri munu meta ástand afréttar í næstu viku og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fylgist með neysluvatni á svæð- inu. svavar@frettabladid.is GENGIÐ 27.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,7817 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,42 115,98 189,59 190,51 164,22 165,14 22,023 22,151 21,131 21,255 18,431 18,539 1,4234 1,4318 183,84 184,94 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Tölur víxluðust í skífuriti sem fylgdi frétt um skoðanakönnun vegna kvótakerfisins í Fréttablaðinu í gær. Eins og lesa mátti í texta fréttarinnar vildu 67,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku að kvótinn yrði í ríkiseigu. LEIÐRÉTTING Borgartúni 12-14. 105 Reykjavík www.umhverfissvid.is Laugavegur – lifandi gata - opinn fundur mánudaginn 30. maí kl. 18.10 Opinn fundur vegna tillögu Reykjavíkurborgar um að breyta Laugavegi frá Vatnsstíg að Skólavörðustíg í göngu götu hluta sumars í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal, mánudaginn 30. maí kl. 18.10. Tillaga Reykjavíkurborgar verður kynnt og opnað fyrir umræður. Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs er fundarstjóri. Allt áhugafólk um lifandi miðborg velkomið. Umhverfis- og samgöngusvið Bílar tíu slökkviliða við hreinsunarstörf Hreinsunarstarf á hamfarasvæðinu á Suðurlandi gekk að óskum í gær. Slökkvi- lið frá mörgum sveitarfélögum voru við störf með hjálp björgunarsveita. Gos- virkni í Grímsvötnum dvínar enn og viðbúnaðarstig hefur verið lækkað. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 22° 19° 14° 20° 21° 15° 15° 22° 16° 29° 27° 32° 13° 18° 15° 15° Á MORGUN 5-13 m/s. MÁNUDAGUR 5-10 m/s. 5 6 7 10 6 7 3 10 9 10 9 8 5 8 8 8 5 2 8 7 10 5 4 4 10 8 5 2 1 3 7 8 BEST SYÐRA Norðaustanáttin verður ríkjandi næstu daga með úrkomu einkum norðaustan og austan til á landinu og kólnar þar í veðri. Ögn sumar- legra sunnanlands en þá léttir til og hitinn fer líklega víða í 12-14°C. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður HERJÓLFSSTAÐIR HREINSAÐIR Slökkvilið og vatnsbíll Mjólkursamsölunar við hreinsunarstörf í Skaftárhreppi í gærdag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Það þarf að skoða og þvo allt húsnæði frá Álftaveri austur að Lóma- gnúpi. Ég áætla að þetta séu nokkur hundruð hús sem gæta þarf að. VAGN KRISTJÁNSSON VERKEFNASTJÓRI ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR ALMANNAVARNA Á KLAUSTRI UMHVERFISMÁL Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra varpaði þeirri spurningu fram á aðal- fundi Landverndar á fimmtudag hvort það væri uppeldislegt atriði að umgengni við landið er ábóta- vant, eins og nýleg dæmi sönn- uðu. Jóhanna sagði umgengnina við landið endurspeglast í því sem fólk skildi eftir sig á víðavangi, frágangi sorps, efnamenguðum jarðvegi, óhreinu vatni og því sem við slepptum út í andrúms- loftið. Hún staldraði sérstaklega við mengun frá sorpbrennslustöðv- um og frá ein- stökum verk- smiðjum sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum frá áramótum. „Þegar slík m á l k o m a upp er rétt að staldra við og spyrja hvað veldur. Hvers vegna umgengni okkar við landið er svo ábóta- vant sem raun ber vitni. Er það af hreinni græðgi eða kemur hugsunarleysi eða þekkingar- leysi við sögu? Hvað stýrir því að við erum á stundum skeytingar- laus og of værukær þegar kemur að okkar eigin umhverfi? Er eitt- hvað að viðhorfi okkar til náttúr- unnar – eitthvað í uppeldinu sem skortir?“ spurði forsætisráðherra aðalfundargesti. Hún bætti við að auðvitað væri uppeldi einstaklingsbundið og rangt að alhæfa um uppeldi heillar þjóðar í þessum efnum; skólarnir gegndu mikilvægu hlutverki og á síðustu árum hefði margt breyst til batnaðar. - shá Forsætisráðherra spyr áleitinna spurninga vegna mengunar frá sorpbrennslum: Efast um umhverfisuppeldið JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR FÉLAGSMÁL Stofnþing ungliða- hreyfingar Alþýðusambands Íslands (ASÍ-UNG) var haldið í gær. Helgi Einarsson, frá Félagi nema í rafiðnum, var kjörinn for- maður hreyfingarinnar sem er ætlað að efla og samræma starf ungs launafólks innan aðildar- félaga ASÍ. Í ályktun fundarins um menntamál segir að skoða þurfi lengingu á skyldunámi um tvö ár, eða til 18 ára aldurs. Þá þurfi að efla starfsnám í grunnskólum. Í fjölskyldumálum var lögð áhersla á dregið væri úr tekju- tengingu barnabóta og minnk- aður munur á fjárhagsstuðningi á milli einstæðra foreldra og hjóna eða sambúðarfólks. - shá Hreyfingin ASÍ-Ung stofnað: Ungliðar ASÍ þétta raðirnar DÓMSTÓLAR Ungur maður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa nauðgað tveimur stúlkum, skal sitja áfram í varðhaldi til 24. júní samkvæmt úrskurði héraðsdóms. Hann kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Maðurinn er grunaður um að hafa, í félagi við annan mann, nauðgað nítján ára stúlku í heima- húsi og beitt hana öðru ofbeldi. Hafi hann haft frumkvæði að ofbeldisverkinu. Hann er einnig grunaður um að hafa nauðgað sautján ára stúlku í lok mars. - jss Gæsluvarðhald framlengt: Grunaður um tvær nauðganir LÍBÍA Múammar Gaddafí Líbíu- leiðtogi er sagður vera á stans- lausum flótta í höfuðborginni Trípolí. Hann er sagður sofa á sjúkrahúsum til að forðast árás- ir Atlantshafsbandalagsins, og aldrei á sama sjúkrahúsinu tvær nætur í röð. Breska leyniþjónustan MI6 hefur heimildir fyrir þessu og segir hann skelfingu lostinn vegna hertra árása á borgina. Rússnesk stjórnvöld hafa nú boðist til að hafa milligöngu í samningaviðræðum um brott- hvarf Gaddafís frá Líbíu til annars lands, þar sem hann gæti fengið hæli. - gb Gaddafí sagður í felum: Rússar bjóðast til milligöngu UPPREISNARMENN Í LÍBÍU Harðar loftárásir hafa verið á Trípolí undanfarna daga. NORDICPHOTOS/AFP PAKISTAN Hillary Clinton, utan- ríkis ráðherra Bandaríkjanna, segir bandarísk stjórnvöld ekki vita um neitt sem bendi til þess að ein- hverjir pak- istanskra ráðamanna hafi vitað um fylgsni Osama bin Laden. Þetta sagði hún í Pakistan í gær, en samskipti þjóðanna höfðu versnað eftir að bandarískir sér- sveitarmenn réðust inn í landið og réðu þar hryðjuverkaleiðtog- ann bin Laden af dögum. Hún sagði nýtt skeið nú hafið í samskiptum ríkjanna. Pakistan hefði eftir sem áður fullan stuðn- ing Bandaríkjanna í baráttu við hryðjuverkahópa. - gb Hillary Clinton í Pakistan: Hafa ráðamenn ekki undir grun HILLARY CLINTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.