Fréttablaðið - 30.05.2011, Side 1

Fréttablaðið - 30.05.2011, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Mánudagur skoðun 14 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Fasteignir.is 30. maí 2011 124. tölublað 11. árgangur FASTEIGNIR.IS30. MAÍ 201122. TBL. Fasteignamarkaðurinn hefur til sölu glæsilegt einbýlishús við Gulaþing í Kópavogi. H úsið er 357 fm á besta stað við Elliðavatn með útsýni til allra átta, sérstaklega yfir vatnið. Það er fullbúið að innan á afar vandaðan og glæsi-legan máta. Húsið skilast ófrágengið að utan en þak er fullfrágengið með dúk og fargi. Lóð er ófrágengin.Húsið er á tveimur hæðum, hannað af Baldri Ó. Svavarssyni hjá Úti-inni arkitektastofu. Á neðri hæð er forstofa, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, tvö svefn- herbergi, 48 fm hjónasvíta með fataherbergi og baði, þvottahús, geymsla og bílskúr. Á efri hæð er stórt eldhús með búri, stofa með arin- stæði, borðstofa, baðherbergi og skrifstofa. Tvennar svalir eru á húsinu; útsýnissvalir í austur yfir Elliða- vatn og stórar suðvestursvalir frá eldhúsi, stofu og baðherbergi. Gert er ráð fyrir heitum potti á stærri svölunum. Glæsihýsi við Elliðavatn Eignin er hin glæsilegasta. Hún er fullbúin að innan en ófrágengin að utan. Daníel Björnsson lögg. leigumiðlari Bogi Pétursson lögg. fasteignasali Hilmarsson lögg. fasteignasali Einar Guðmundsson lögg. fasteignasali Daníel Björnsson lögg. leigumiðlari Pétursson lögg. fasteignasali Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Einar Guðmundsson lögg. fasteignasali Pantaðu frítt söluverðmatán skuldbindinga Á Heimili fasteignasölu starfa öflugir fasteignasalar með áratuga reynslu í faginu sem eru tilbúinir að vinna fyrir þig með vönduð vinnubrögð að leiðarljósi. Okkar verkefni eru: - Sala og kaup íbúðarhúsnæðis- Sala og kaup atvinnuhúsnæðis- Sala og kaup sumarhúsa- Leigusamningsgerð- Verðmöt - Raðgjöf á fasteignamarkaði heimili@heimili.is Sími 530 6500 Bogi Pétursson lögg. fasteignasaliFinnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasaliAndri Sigurðsson lögg. leigumiðlari Löggiltur fasteignasali Óskum eftir að ráða löggiltum fasteignasala hjá öflugri fasteignasölu . Um er að ræða fullt starf.Umsóknir sendast á box@frett.is merkt “Lögg Fast”. Fullum trúnaði heitið. Ástþór Reyni GuðmundssonLögg. fasteignasali Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Árný Lúthersdóttir áhugakona um hönnun býr yfir skemmtilegum hugmyndum og lausnum á heimilinu. Hönnunarmiðstöð , Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarmiðstöð auglýsa eftir hönnuðum til samstarfs í þróunarverkefni. Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 3. júní. www.honnunarmidstod.is Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík S: 58 58 900-www.jarngler.is Fyrirtæki - Húsfélög Við bjóðum upp á sjálfvirkan hurða - opnunarbúnað ásamt uppsetningu og viðhaldi. Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir aðgengi fatlaðra. Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin. 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN WWW.MS.IS NÚ EINNIG MEÐ KÓKOS OG SÚKKULAÐI Lactoghurt daily þ j g innar og komið á jafnvægi. Ráðlagður dagskammtur er 1 hylki á dag. Lactoghurt fæst í apótekum. S 1 1 3 0 1 3 Einstök blanda mjólkursýrugerla FÓLK Thomas Martin Seiz, nýr eig- andi Hrafnabjarga sem áður voru í eigu Jóhannesar Jónssonar, kennds við Bónus, hyggst flytja inn í húsið á næsta ári ásamt fjölskyldu sinni. Hrafnabjörg, sem eru í Vaðla- heiði, eru eitt af glæsilegustu ein- býlishúsum landsins og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kostaði það 200 milljónir. „Við erum að laga innréttingar og breyta einu og öðru,“ segir Seiz í samtali við Frétta blaðið. Salan á húsinu vakti mikla athygli og ekki minnkaði forvitnin þegar DV greindi frá því að sviss- neskur auðkýfingur hefði keypt það. Seiz vísar því hins vegar á bug að hann sé einhver auðjöfur. „Ég er ekki að safna húsum og ég er ekki auðkýfingur eins og sagt var í DV,“ Seiz leigir út tvö sumar- hús á sveitabænum Nolli í Eyjafirði og á þar að auki tvö íbúðarhús í Grenivík. Annað er leigt út en hitt verður mögulega rifið til að koma fyrir nýju húsi. - afb / sjá síðu 30 Thomas Martin Seiz flytur inn í fræga villu í Vaðlaheiði á næsta ári: Breytir húsi Jóhannesar í Bónus Góður í ensku Eiður Smári fær misjafna dóma, þykir vélrænn en fær lof fyrir góða ensku. fólk 30 FÉLAGSMÁL Afgerandi munur er á hlutfalli atvinnulausra milli ein- stakra íbúðarhverfa í Reykjavík. Það er hæst tæp þrettán prósent í Efra-Breiðholti en sex prósent í Kringluhverfinu. Þetta kemur fram í minnis- blaði Velferðarsviðs Reykjavíkur- borgar sem lagt hefur verið fyrir borgarráð. Atvinnuleysistölur í Reykjavík sýna að í mars voru 12,8 prósent íbúa í póstnúmeri 111 í Breiðholti (Fell, Berg og Hólar), án vinnu. Í hverfinu búa 8.500 manns samkvæmt tölum Hag- stofu Íslands, svo á bak við pró- sentutöluna eru 1.100 manns. Má því ætla að einn af hverjum fjórum vinnufærum íbúum hverfis ins séu atvinnu lausir. Til samanburðar er atvinnuleysi 9,5 prósent í Neðra- Breiðholti (Bakkar, Stekkir, Mjódd og Seljahverfi). Í mars voru 6.243 atvinnulausir í Reykjavík. Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, segir skiptingu á milli þjóðfélagshópa ekki hafa verið greinda sérstaklega í sam- hengi við atvinnuleysistölur úr einstökum hverfum borgarinnar. Hún segir jafnframt að aðrar upp- lýsingar um félagslegan vanda, til dæmis frá Barnavernd Reykjavík- ur, tilvísanir úr skólum og fleira, séu ekki endilega hærri þar sem atvinnuleysi greinist mest. „En við höfum áhyggjur af háum tölum í einstökum hverfum. Vandinn er vissulega mismikill og borgin hefur beint sértækum úrræðum að þessum hverfum.“ Stella segir aðspurð að það liggi fyrir að hlutfall útlendinga sé hátt í Breiðholti, og sérstaklega í Efra- Breiðholti, sem hugsanlega sé hluti skýringarinnar. Áætlun Vinnumálastofnunar um fjölda á vinnumarkaði sýnir að 13,5 prósent útlendinga voru án atvinnu í mars en rúm sex prósent Íslendinga. - shá, gar Atvinnuleysið mælist mest í Efra-Breiðholti Tvöfaldur munur er á hlutfalli atvinnulausra í þeim hverfum Reykjavíkur þar sem atvinnuleysið er mest og þar sem það er minnst. Hlutfall atvinnulausra er 12,8 prósent í Efra-Breiðholti en sex prósent í Kringluhverfinu í póstnúmeri 103. NORÐAUSTLÆG ÁTT Í dag verður fremur hæg norðlæg átt, víða 3-8 m/s en aðeins hvassara á annesjum A-til. Léttir til S- og V- lands en stöku él N-til og súld eða skúrir austanlands. Kólnar í veðri. VEÐUR 4 9 3 3 4 5 Ég er ekki að safna húsum og ég er ekki auðkýfingur. THOMAS MARTIN SEIZ NÝR EIGANDI HRAFNABJARGA REIÐTÚR Í GÓÐU VEÐRI Vel viðraði til útreiðartúra í Heiðmörk í gær, eins og þessi mynd ber með sér. Útlit er fyrir áframhaldandi góðviðri vestan og suðvestanlands í dag. Suðaustanlands er aftur á móti von á smáskúrum en stöku éljum fyrir norðan og austan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÆKNI Vísindamönnum við Wagen- ingen-háskóla í Hollandi hefur tekist að mynda flug dvergvax- innar vespu með sérstakri tækni. Vespan er eitt minnsta skordýr jarðar, með vænghaf upp á einn millimetra. Myndirnar voru tekn- ar á 900 sinnum meiri hraða en venjulegt sjónvarp getur sýnt, eða 22 þúsund römmum á sekúndu, segir á vefnum Science Daily. Myndirnar sýna að flugan, sem vegur einungis einn fjörutíuþúsundasta úr grammi, slær vængjum sínum 350 sinnum á sekúndu. Þessi nýja upptöku- tækni er talin bylta náttúrulífs- myndatökum því nú er hægt að mynda ýmislegt sem hefur verð hulið manninum vegna smæðar sinnar eða hraða. - shá Ný myndatökutækni: Flug dvergvespu loksins myndað VESPA Á EGGI FIÐRILDIS Flugan er mikið notuð í landbúnaði enda lifir hún á skordýraeggjum. MYND/BUGSINTHEPICTURES.COM KR áfram á toppnum KR, ÍBV og Valur unnu góða sigra í Pepsi-deildinni. sport 26 GLÆSIHÝSI Heimildir Fréttablaðsins herma að þetta hús hafi kostað Thomas Seiz um 200 milljónir króna. MENNTAMÁL Níu af hverjum tíu íslenskum ungmennum telja að háskólanám á Íslandi sé góður kostur. Þetta sýnir könnun sem var nýlega gerð fyrir Evrópu- sambandið í 31 Evrópulandi. Einungis dönsk ungmenni höfðu meiri trú á háskólum sínum en þau íslensku. Ítölum og Litháum hugnast hins vegar síst að sækja háskólanám í heima- landinu. - sv / sjá síðu 12 Einungis Danir eru jákvæðari: Ánægja með ís- lenska háskóla Mannhelgisgæslan Amnesty International hefur eitt vopn og aðeins eitt og beitir því kænlega: Kertið, ljós heimsins: upplýsingar. í dag 15

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.