Fréttablaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 30. maí 2011 23
Rokkarinn Lenny Kravitz gefur
út níundu hljóðversplötu sína,
Black and White America, í
ágúst. Fyrsta smáskífulagið
nefnist Stand og kemur út 6. júní.
Til að fylgja plötunni eftir ætlar
Kravitz í tónleikaferð um Evrópu
síðar á þessu ári. Kravitz
hitaði síðast upp fyrir
U2 á 360 gráðu tón-
leikaferð hennar, sem
er sú tekjuhæsta
sem sögur fara
af. Þrátt fyrir að
vera orðinn 47
ára ætlar hann
ekki að hika
við að fara úr
að ofan á tón-
leikum. „Ég fer
stundum úr boln-
um uppi á sviði
eða þegar ég er á
Bahama-eyjum.
Ég er ekki vanur
að vera í miklum
fötum,“ sagði hann.
Úr að ofan á
tónleikum
NÝ PLATA Lenny
Kravitz gefur út sína
níundu hljóðversplötu
í ágúst.
Breska hljómsveitin Pulp hefur
ákveðið að koma aftur saman og
spila á tónlistarhátíðum í sumar
eftir níu ára hlé. Dauði náins
vinar hljómsveitarinnar átti stór-
an þátt í endurkomunni. „Ég held
að það hafi átt stóran þátt í þessu.
Maður áttar sig skyndilega á því
að það er ekki hægt að taka neinu
sem sjálfsögðum hlut,“ sagði for-
sprakkinn Jarvis Cocker. Gítar-
leikarinn Mark Webber bætti við:
„Ég hélt alltaf að við myndum
koma aftur saman en þegar hann
dó áttaði ég mig á því að kannski
ættum við að nýta tækifærið
núna.“
Dauði vinar
hafði áhrif
SNÚA AFTUR Jarvis Cocker og félagar í
Pulp ætla að snúa aftur í sumar.
Poppprinsessan Britney Spears
þráir ekkert heitar en að giftast
kærasta sínum, Jason Trawick,
og eignast með honum börn. Hún
fær þó ekki ósk sína uppfyllta því
föður hennar, Jamie Spears, finnst
þessi áform hennar ekki tímabær.
Jamie Spears hefur farið með
forræði yfir dóttur sinni allt frá
því hún dvaldi tímabundið á geð-
deild. „Jamie skilur að Britney
elski Jason og vilji eignast með
honum börn. Honum finnst hún
þó enn of tæp á geði til að takast
á við þá ábyrgð,“ var haft eftir
innanbúðar manni, sem bætti því
við að Britney hefði tjáð Jason að
hana langaði í þrjú börn.
Fær ekki að giftast
VILL GIFTAST Britney Spears vill giftast
kærasta sínum, Jason Trawick, en fær
ekki leyfi til þess. NORDICPHOTOS/GETTY
Courtney Love sagði í viðtali við
vefmiðilinn The Fix að Lady Gaga
væri skrýtin, kynlaus barbídúkka.
Love sagðist hafa áhyggjur af
Gaga og þá sérstaklega félags-
skapnum sem hún er í. Hún sagði
að Gaga myndi hafa gott af því að
eiga fleiri vinkonur í stað fylgi-
liðsins sem hún kallar Haus of
Gaga.
„Henni gengur kannski vel í
dag, en ég hef áhyggjur af framtíð
hennar,“ sagði Love. „Hún er mjög
ung og mjög hæfileikarík en hún
virðist ekki eiga neinar vinkonur.
Hún á ekki heldur neina gagnkyn-
hneigða vini, ef út í það er farið. Í
staðinn hefur hún safnað í kring-
um sig samkynhneigðum stílist-
um sem hafa breyt henn í þessa
skrýtnu, kynlausu barbídúkku.“
Love bætti við að hún hefði
reyndar sjálf verið alin upp af
homma og að það hefði ekki haft
slæm áhrif á sig. „En hún passar
sig ekki breytist hún í einmana
dragdrottningu. Karlmenn kunna
ekki að meta það.“
Love hefur áhyggjur
af Lady Gaga
ÁHYGGJUFULL Courtney Love segir að
Lady Gaga verði að passa sig á samkyn-
hneigðum stílistum.