Fréttablaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 46
30. maí 2011 MÁNU-30 BESTI BITINN Í BÆNUM „Besti bitinn er á Núðluskálinni á Skólavörðustíg. Núðluréttur númer E er í sérstöku upp- áhaldi.“ Snorri Ásmundsson, listamaður. „Já, ég keypti húsið fyrir skömmu,“ segir hinn svissneski Thomas Martin Seiz. Seiz er nýr eigandi Hrafna- bjarga, sem voru áður í eigu Jóhannesar Jónssonar, kennds við Bónus, og eru eitt af glæsilegustu einbýlishúsum landsins. Seiz seg- ist í samtali við Fréttablaðið ætla að flytja inn í húsið á næsta ári ásamt fjölskyldu sinni. „Við erum að laga innréttingar og breyta einu og öðru,“ segir hann. Thomas Seiz rekur tvö tölvu- fyrirtæki í heimalandi sínu ásamt því að reka ferðaþjónustu á Nolli í Eyjafirði. Í frétt DV í apríl kom fram að svissneskur auðkýfingur hafi keypt hús Jóhannesar, en Seiz segir þá fullyrðingu ekki stan- dast. „Ég er ekki að safna húsum og ég er ekki auðkýfingur eins og sagt var í DV,“ segir hann. Seiz leigir út tvö sumarhús á sveita- bænum Nolli í Eyjafirði. Þá á hann tvö íbúðarhús í Grenivík, annað er leigt út en hitt verður mögulega rifið til að koma fyrir nýju húsi. Salan á Hrafnabjörgum vakti mikla athygli í apríl, en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðs- ins borgaði Seiz hátt í 200 millj- ónir fyrir húsið. Skilanefnd Landsbanka Íslands leysti húsið til sín í desember í fyrra, en það var áður í eigu Gaums, eignar- haldsfélags feðganna Jóhann- esar Jónssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Arkitektinn Fanney Hauks- dóttir teiknaði Hrafnabjörg. Hún sagði í samtali við Fréttablaðið í apríl húsið vera einstakt að mörgu leyti. „Það var mikið lagt í húsið. Mikill metnaður,“ sagði hún. Ekkert var til sparað við bygg- ingu hússins og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var kostnaður inn hátt í 400 milljónir. Húsið er á tveimur hæðum og á efri hæðinni mynda stofan, borð- stofan og eldhúsið eitt stórt og opið rými. Gólfsíðir útsýnisgluggar eru í stofunni ásamt arni. Á neðri hæðinni má meðal annars finna tæknirými, líkamsræktaraðstöðu og tvö baðherbergi. Fyrir utan er 40 fermetra sundlaug og stór heit- ur pottur. atlifannar@frettabladid.is THOMAS MARTIN SEIZ: ÉG ER EKKI AUÐKÝFINGUR Flytur með fjölskyldu sína í Hrafnabjörg á næsta ári GLÆSIHÝSI Hrafnabjörg við Eyjafjörð eru eitt glæsilegasta hús landsins. Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, lét byggja húsið á sínum tíma og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var kostnaðurinn hátt í 400 milljónir. Svisslendingurinn Thomas Martin Seiz keypti húsið í apríl. Smið ju veg i 76 Kópavog i S ími 414 1000 w w w.t eng i . i s Ba ldur snes i 6 Akur ey r i S ími 414 1050 t eng i@ t eng i . i s MORA Í 25 ÁR Á ÍSLANDI 42.900,- kr. Eiður Smári Guðjohnsen fær mis- jafna dóma fyrir frammistöðu sína sem álitsgjafi í útsendingu Sky- sjónvarpsstöðvarinnar frá úrslita- leik meistaradeildarinnar í knatt- spyrnu. Twitter þykir orðið ansi góður mælikvarði á það hvernig fólk stendur sig á opinberum vett- vangi. Og miðað við tístin á laug- ardagskvöld voru ansi margir límdir fyrir framan sjónvarps- tækin á laugardagskvöld þegar Eiður, Gary Neville og Jamie Redknapp ræddu málin fyrir og eftir úrslitaleik Manchester Uni- ted og Barcelona. „Álitsgjafarnir á Sky eru snilld, sérstaklega Gary Neville og Eiður, þeir eru ekki með þetta venjulega kjaftæði,“ tístar Kev McGee. Aðrir eru ekki jafn hrifnir. „Er Eiður að sinna álits- gjafahlutverkinu meira en knatt- spyrnunni?“ Og Dan McCartney spyr: „Er Eiður vélmenni?“ Slík- ar vangaveltur sjást á nokkrum öðrum tístum. „Eiður hefur verið eilítið þybbinn allt tímabilið en honum tekst að vera grannur og flottur fyrir sjónvarpið,“ skrifar einn. Tístari að nafni Dan Trenkel er ekki sáttur við Eið: „Eidur Gudjo- hnsen – frábær leikmaður – ömur- legur í sjónvarpi.“ Og Luke Hol- land tístir. „Var ég sá eini sem bjóst ekki við því að röddin í Eið Gudjohnsen hljómaði svona.“ Og umræðan heldur áfram; ein- hver segist hafa verið klipptur nákvæmlega eins og Eiður, hann viti hins vegar ekki hvort það sé gott eða slæmt, og þá halda að minnsta kosti tveir því fram að Eiður tali bestu enskuna af öllum í ensku úrvalsdeildinni. - fgg ÁGÆTIS KVÖLD Eiður Smári virðist hafa átt ágætis kvöld á Sky þótt sumum hafi fundist hann stirðbusalegur. Hann tali þó lýtalausa ensku. Sarah Obama, föðuramma Baracks Obama Banda- ríkjaforseta, var stödd hér á landi fyrir stuttu á vegum hjálparsamtakanna Tears children and youth aid. Obama kom til landsins í boði Rosemary og Paul Ramses, sem reka hjálparsamtökin, og var markmið heimsóknarinnar að safna fé fyrir byggingu barna- skóla í heimalandinu Kenía. Obama nýtti heim- sóknina vel og var meðal annars gestur Kastljóss, heimsótti nemendur Hlíðaskóla og snæddi að auki kvöldverð á veitingastaðnum Fiskmarkaðnum. Obama pantaði sér regnbogasilung í teriyaki með volgu kartöflusalati og spergilkáli og að sögn starfs- manns veitingastaðarins naut hún matarins. Obama er ekki fyrsti þekkti einstaklingurinn sem borðað hefur á Fiskmarkaðnum því leikstjórinn Rid- ley Scott kom þar við í Íslandsheimsókn sinni. Aðrir sem hafa notið eldamennsku Hrefnu Rósu eru leik- ararnir Penn Badgley og Shawn Pyfrom sem dvöldu hér á landi í nóvember. - sm Obama naut silungsins AMMA OBAMA Sarah Obama snæddi meðal annars silung á Fiskmarkaðinum. Hér er hún ásamt Valtý Bergmann hjá Fisk- markaðnum. Eiður Smári fær misjafna dóma

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.