Fréttablaðið - 30.05.2011, Side 2
30. maí 2011 MÁNUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
MENNING Höggmynd Ásmundar
Sveinssonar, Vatnsberinn, verður
flutt úr Öskjuhlíð á sunnanvert
horn Bankastrætis og Lækjar götu.
Borgarráð ákvað þetta á fimmtu-
dag. Upphafleg tillaga gerði
ráð fyrir að styttan yrði á miðju
Austur stræti við gatnamótin að
Lækjargötu.
Vatnsberanum var á sínum
tíma – fyrir rúmum sextíu árum
– einmitt ætlað að standa á horni
Bankastrætis og Lækjargötu
en vegna deilna um útlit verks-
ins þá var því aldrei komið fyrir
þar. Höggmyndin endaði loks við
Öskjuhlíð árið 1967.
Flutningur Vatnsberans var
ákveðinn í samráði við afkom-
endur Ásmundar Sveinssonar
og endan leg staðsetning er sam-
kvæmt tillögu Listasafns Reykja-
víkur.
„Vatnsberin átti að standa
nálægt Bernhöftsbrunninum, sem
var síðasti brunnurinn í Reykja-
vík, til minningar um vatnsber-
ana sem settu svip sinn á gamla
mið bæinn í kringum aldamótin
1900. Brunnur inn var staðsettur
í bakara brekkunni svokallaðri,
nánar tiltekið á Bakarastíg sem nú
er Bankastræti,“ segir í umsögn
Listasafns Reykjavíkur.
gar@frettabladid.is
Vatnsberinn verður
fluttur í Bankastræti
Höggmyndin Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson verður flutt úr Öskjuhlíð og
á þann stað sem henni var upphaflega ætlaður í Bankastræti. Verkið var ekki
sett upp í miðbænum á sínum tíma vegna andstöðu manna sem töldu það ljótt.
BERNHÖFTSBRUNNUR Táknrænt verður
að Vatnsberinn mun standa skammt
frá vatnsbólinu Bernhöftsbrunni sem
Tönnes Daniel Bernhöft, bakari í Banka-
stræti, lét grafa. Sjá mátti í brunninn
meðan verið var að lagfæra gangstétt í
Bankastræti. MYND/ÁRBÆJARSAFN
VATNSBERINN Hér á höggmynd Ásmundar Sveinssonar frá árinu 1949 framvegis að standa – eins og henni var ætlað í upphafi.
Til vinstri á myndinni, á gangstéttina við Bankastræti, hafa verið settar útlínur Bernhöftsbrunns. SAMSETT MYND/LISTASAFN REYKJAVÍKUR
NOREGUR Albanskur fangi gróf sig
út úr fangelsi í Noregi með því að
nota stöng af skrifstofustól. Mað-
urinn stakk af aðfaranótt sunnu-
dags en flótti hans komst ekki upp
fyrr en klukkan ellefu um morg-
uninn. Hann sat í gæsluvarðhaldi
fyrir innflutning á heróíni frá Sví-
þjóð til Noregs á síðasta ári.
Fanginn hafði verið fjórtán
daga í fangaklefanum og tókst að
halda holunni leyndri fyrir fanga-
vörðum. Holan var þrjátíu sinnum
fjörutíu sentimetrar að breidd
og að sögn fangelsisstjórans var
fanginn mjög grannur. - mmf
Gróf sig út úr fangelsi:
Notaði stöng af
skrifstofustól
DANMÖRK Lars Lökke Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur,
hefur frest til fimmtudags til að
rjúfa þing og boða til þingkosninga
ef hann vill láta kjósa fyrir sum-
arfrí. Ekki er þó talið víst að honum
hugnist það, þar sem stjórnar-
flokkarnir hafa ekki komið vel út
úr síðustu skoðanakönnunum.
Stjórnmálaumræðan í Danmörku
hefur undanfarið litast af vanga-
veltum um hvort kosningar verði
í sumar, en kjörtímabilinu lýkur í
nóvember.
Minnihlutastjórn Lökke er
skipuð Venstre og Íhalds flokknum
og situr í skjóli Danska þjóðar-
flokksins og Frjálslynda banda-
lagsins. Vinstriflokkarnir undir
forystu Sósíaldemókrata hafa hins
vegar mælst mun sterkari í skoð-
anakönnunum og myndu fá rífleg-
an meirihluta væri kosið nú, eða 94
sæti á móti 81 hjá hægriflokkunum.
Talsmaður Sósíaldemókrata
segir í samtali við Politiken að
þessar tölur sýni að danska þjóðin
vilji aðra stjórn.
Talskona Venstre segir að aug-
ljóst sé að stjórnarflokkurinn
þurfi að koma sínum málum betur
á framfæri. „Okkar tillögur eru
hins vegar ábyrgar og sjá til þess
að hægt sé að halda uppi velferðar-
kerfinu.“ - þj
Vangaveltur um þingrof og kosningar í sumar í Danmörku:
Staða dönsku hægriflokkanna veik
Í ERFIÐRI STÖÐU Forsætisráðherra er
ekki talinn líklegur til að rjúfa þing og
boða til kosninga í sumar.
ATVINNA Öllum ungmennum sem
sóttu um sumarstarf í Garðabæ
á réttum tíma hefur verið boðin
vinna í átta vikur. Bæjarráð
hefur einnig ákveðið að bjóða
öllum vinnu sem sóttu um eftir að
umsóknarfrestur rann út. Alls fá
þess vegna 562 ungmenni vinnu
hjá bænum í sumar.
Þeir sem fæddir eru 1994 fá
vinnu í sex klukkustundir á dag
en þeir sem eru eldri í sjö klukku-
stundir.
Unglingar á aldrinum 14 til 16
ára fá vinnu í Vinnuskóla Garða-
bæjar sem starfar í júní og júlí,
að því er Guðfinna B. Kristjáns-
dóttir upplýsingastjóri greinir
frá. - ibs
Sumarstörf í Garðabæ:
Allir sem sóttu
um fá vinnu
Jón Þór, var Dikta nokkuð að
fikta?
„Nei, Dolli var að fikta, ekki Dikta.“
Sprengja fannst rétt hjá tónleikastað
Diktu í Berlín á fimmtudagskvöld þannig
að flytja varð tónleikana.
ALÞINGI Bæði kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar
hafa verið sett á dagskrá Alþingis. Það sama gildir
um kvótafrumvarp Hreyfingarinnar. Þetta varð
niðurstaðan af fundi forseta Alþingis með formönn-
um þingflokka síðdegis í gær.
Smærra stjórnarfrumvarpið, sem kveður á um
breytingar á núgildandi fiskveiðilöggjöf – hækkun
veiðigjalds, strandveiðar og fleira – er fyrst á dag-
skránni. Mælt verður fyrir því á morgun, að því
gefnu að samþykki fáist fyrir afbrigðum vegna þess
að málið er það seint fram komið. Búist er við mikl-
um umræðum um frumvarpið áður en það verður
afgreitt til nefndar og því verður líklega ekki mælt
fyrir hinum frumvörpunum fyrr en síðar í vikunni.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leggja
stjórnarliðar mikla áherslu á að afgreiða smærra
frumvarpið sem lög í sumar, áður en nýtt fiskveiði-
ár hefst í september. Stefnt er að því að koma því
stærra, sem snýst um grundvallarkerfisbreytingar,
í umsagnarferli fyrir sumarfrí.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis,
segir að enn standi yfir samningaviðræður um það
hvernig þinghaldinu verði hagað fram að 9. júní,
en þá á þingi að ljúka samkvæmt starfsáætlun.
Forsætis ráðherra hefur sagt að hann telji jafnvel
þörf á sumar þingi ef ekki takist að afgreiða stjórnar-
frumvörpin fyrir þinglok, en Ásta segir hins vegar að
það sé stefna þingforseta að halda starfsáætlun. - sh
Forseti Alþingis segist stefna að því að halda starfsáætlun og ljúka þingi 9. júní:
Mælt fyrir smærra kvótafrumvarpinu
ALÞINGI Búist er við miklum umræðum um frumvörpin.
Afgreiðsla þeirra gæti því tekið töluverðan tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Foreldrasamtök gegn
áfengisauglýsingum fagna frum-
varpi innanríkisráðherra og
ríkis stjórnarinnar um breyt-
ingar á áfengislögum. Samtökin
segja að tekið sé á útúrsnúning-
um áfengisframleiðenda og að
þau snúist um sjálfsögð réttindi
barna og ungmenna til að vera
laus við þann einhliða áróður sem
áfengisauglýsingar séu.
Samtökin hvetja Alþingi til
að samþykkja frumvarpið með
og sýna þannig hug sinn í verki
gagnvart réttindum barna. - mmf
Foreldrar fagna frumvarpi:
Styðja bann við
áfengisáróðri
Rólegt í Reykjavík
Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík
aðfaranótt sunnudags. Tólf voru teknir
fyrir ölvunarakstur á höfuðborgar-
svæðinu og fangageymslur voru
nær tómar en þar gisti einn sökum
mikillar ölvunar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BLÖNDUÓS Bæjarráð Blönduós-
bæjar hefur falið bæjarstjóra að
segja upp samningi við einka-
hlutafélagið 2 Áttir um afnot á
landi til uppbyggingar á fjöl-
skyldu- og skemmtigarði á
Blönduósi.
Í frétt Húnahornsins segir að
hugmyndin um að koma á fót og
reka fjölskyldu- og skemmtigarð á
Blönduósi hefur verið á aðalskipu-
lagi bæjarins í mörg ár. Í byrjun
árs 2005 samþykkti bæjar stjórn
teikningar af garðinum og fram-
kvæmdir hófust á landinu stuttu
síðar. Engar framkvæmdir hafa
verið síðustu ár. - shá
Samningi sagt upp:
Skemmtigarður
verið sleginn af
FRÁ BLÖNDUÓSI Ekkert verður af upp-
byggingu skemmtigarðs í kauptúninu.
Mótmæla borunum
Þrír félagar í Greenpeace klifruðu
upp á olíuborpall undan ströndum
Grænlands í gær. Með því vildu þeir
koma í veg fyrir að skoska olíufyrir-
tækið Cairn Energy hæfi djúpsjávar-
boranir í sjónum. Þeir telja að Cairn
Energy hafi ekki gripið til nægilegra
varúðarráðstafana til að koma í veg
fyrir mögulegan olíuleika.
GRÆNLAND
441 á strandveiðum
Fjöldi strandveiðileyfa er kominn í
500. Flestum leyfanna hefur verið
úthlutað á svæði A 196; 108 á svæði
D, 100 á svæði C og 96 á svæði D. Alls
hefur 441 bátur þegar hafið veiðar.
SJÁVARÚTVEGUR