Fréttablaðið - 30.05.2011, Page 6
30. maí 2011 MÁNUDAGUR6
BioVinci D-vítamín
Vítamínið sem allir eru að tala um
Fæst í apótekum
24.–26. júní Hvammstanga Húnaþingi vestra
www.landsmotumfi50.is
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
TÉKKLAND, AP Lífrænar agúrkur
hafa verið afturkallaðar úr versl-
unum í Austurríki og í Tékklandi
af ótta við útbreiðslu veiru sem
hefur banað að minnsta kosti níu
manns og valdið veikindum hundr-
aða manna víðs vegar um Evrópu.
Í Þýskalandi hafa níu látist og
um þrjú hundruð veikst vegna
HUS-veirunnar, sem er sjaldgæft
afbrigði E.coli-veirunnar. Í Svíþjóð
hafa um tíu manns þurft að fara á
sjúkrahús undanfarnar tvær vikur
eftir að hafa ferðast til Þýskalands.
Í Danmörku hafa átta manns farið
á sjúkrahús með E.coli-sýkingu
sem gæti tengst þessari nýju veiru.
Hún hefur einnig greinst í Bret-
landi og í Hollandi.
Eggert Árni Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Mata ehf., segir að
alltaf sé eitt-
hvað um að
fyrir tækið flytji
inn agúrkur þó
svo að stærstur
hluti sé íslensk-
u r. Un d a n -
farið hafa þær
erlendu ein-
göngu komið frá
Hollandi en það
hefur þó gerst
að spænskar agúrkur hafi verið
fluttar til Íslands. „Íslendingar
hafa flutt inn agúrkur á veturna
frá Spáni en það hefur verið í mjög
litlu magni,“ segir Eggert Árni og
bætir við að þær hafi ekki verið
lífrænar eins og þær sem sýktust
á Spáni.
Kjartan Már Friðsteinsson,
framkvæmdastjóri Banana ehf.,
segir fyrirtækið stöku sinnum
flytja inn agúrkur frá Hollandi.
„Það eru eiginlega allar gúrk-
ur íslenskar. Ef þær skyldu vera
erlendar eru þær hollenskar. Það
gerist stundum ef það er ekki næg
uppskera hér heima og þá er það á
veturna,“ segir Kjartan Már, sem
telur að íslenskir agúrkuneytendur
þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur.
Talsmaður Evrópusambands-
ins segir að rekja megi HUS-veir-
una til tveggja gróðurhúsa á Spáni
sem hafi nú hætt starfsemi. Verið
er að rannsaka hvort veiran eigi
uppruna sinn í vatninu eða jarð-
veginum á svæðinu. Niðurstöður
úr þeim rannsóknum eru væntan-
legar á allra næstu dögum.
freyr@frettabladid.is
Banvænu agúrkurnar
ekki fluttar til Íslands
Níu hafa látist í Þýskalandi eftir að hafa borðað sýktar agúrkur frá Spáni. Þrjú
hundruð í Þýskalandi og tugir í Danmörku og Svíþjóð hafa farið á sjúkrahús.
Spænskar agúrkur hafa verið fluttar inn til Íslands en ekki að undanförnu.
KJARTAN MÁR
FRIÐSTEINSSON
HÆTTULEGAR AGÚRKUR Níu hafa látist í Þýskalandi og um þrjú hundruð hafa veikst eftir að hafa borðað sýktar agúrkur. MYND/AP
NÁTTÚRA Náttúrustofa Vesturlands og Háskólasetur
Snæfellsness, með styrk frá Nýsköpunarsjóði, munu
standa fyrir öflun upplýsinga um fuglalíf á Snæfells-
nesi og í Dölum. Verkefnið er til að styðja við ferða-
þjónustuna og laða að áhugafólk um fuglaskoðun.
Ráðinn hefur verið líffræðinemi til starfa í sumar
og hófst gagnaöflun á fyrstu dögum maímánaðar
þegar starfsmenn NSV og HS skoðuðu fugla á öllu
svæðinu.
Samtals sást 61 fuglategund í athugunum á tveim
dögum, allt frá einum fugli af hverri tegund, en
fuglar af öðrum sáust í þúsundatali.
Á tegundalista Snæfellsness og Dala eru nú meðal
annarra flækingsfuglarnir mandarínönd, skutulönd,
landsvala og bjarthegri, fargestirnir rauðbrystingur,
margæs, tildra og sanderla og sjaldgæfir varpfuglar
á borð við skeiðönd, grafönd, flórgoða og haförn.
Fuglarnir skarta um þessar mundir sínum fínasta
varpbúningi og er þessi tími árs því kjörinn til
fuglaskoðunar. - shá
Líffræðinemi aflar upplýsinga um fuglalíf á Snæfellsnesi í sumar:
Laða ferðamenn að fuglaskoðun
MANDARÍNÖND Þessi stórkostlegi flækingur er ein ástæða
þess að áhugafólk um fuglaskoðun sækir á Snæfellsnesið.
Haförninn er þó óumdeildur einkennisfugl svæðisins.
MYND/RÓBERT
HEILSA Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sif
Cosmetics hefur markaðssett EGF BIOeffect
húðdropa í ellefu löndum og hefur dreifingar-
aðila fyrir húðdropanna í 42 löndum beggja
vegna Atlantsála. Fyrirtækið hefur á einu ári
selt yfir þrjátíu þúsund flöskur af dropunum
hér á landi.
Húðdroparnir eru afurð íslenskra vísinda-
rannsókna og nýjung á snyrtivörumarkaðnum.
Þeir innihalda svokallaða frumuvaka sem
hvetja náttúrulega endurnýjun húðfruma.
Frumuvakarnir eru framleiddir í byggi af
nýsköpunarfyrirtækinu ORF Líftækni.
Húðdroparnir hafa hlotið umfjöllun í tísku-
tímaritunum Elle, Cosmopolitan, Marie
Claire og frönsku og þýsku útgáfunni af
Vogue, en síðastnefnda tímaritið birti lof-
samlega grein um húðdropana í júníhefti
sínu.
Húðdroparnir eru seldir í Bret-
landi, Þýskalandi, Ítalíu, Dan-
mörku og Hollandi, þar sem hol-
lenska flugfélagið KLM hefur
sett húðdropana í sölu í öllum
flugvélum sínum. Í Frakklandi
lagði lífsstílsverslunin Colette
línurnar með því að vera fyrsti
franski útsölustaðurinn, en þar
seldist fyrsta sendingin af EGF-
húðdropunum upp á viku, segir
í fréttatilkynningu.
- shá
Sif Cosmetics hefur selt 33.512 flöskur af EGF-húðdropum á einu ári á Íslandi:
Selja dropa í ellefu þjóðlöndum
Ætti að takmarka setutíma for-
sætisráðherra í stjórnarskrá?
Já 80,4%
Nei 19,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eru bætur til Breiðavíkur-
drengja of lágar?
Segðu skoðun þína á visir.is
NÁTTÚRA Æðarvarp á Norðurlandi
virðist hafa orðið mjög illa úti í
vorhretinu sem þar gekk yfir á
dögunum. Siglo.is segir frá því að
allt að 60 prósent af hreiðrum í
Siglufirði hafi verið yfirgefin.
Þar segir að ætla megi að fjöldi
hreiðranna geti verið um 600 og
hvert hafi með fjórum eggjum að
meðaltali. Þá er ljóst að varp
annarra fuglategunda hefur
misfarist.
Fuglaáhugamenn hafa skotið
máva til að hindra það að þeir
útrými öllu varpi. - shá
Hundruð hreiðra yfirgefin:
Æðarvarp varð
illa úti í hreti
KJÖRKASSINN