Fréttablaðið - 30.05.2011, Side 12
30. maí 2011 MÁNUDAGUR12
Nær öll íslensk ungmenni, eða 90
prósent, telja að háskólanám hér
á landi sé góður kostur. Af ung-
mennum í 31 Evrópulandi er hlut-
fallið einungis hærra hjá þeim
dönsku sem telja að háskólanám
þar í landi sé aðlaðandi kost-
ur, eða 91 prósent. Þetta kemur
fram í nýrri könnun, Flash Euro-
barometer on Youth, sem gerð var
fyrir Evrópusambandið (ESB) í
janúar síðastliðnum.
Hlutfallið var lægst á Ítalíu
og Litháen, en um 57 prósent
ungs fólks í þessum löndum telja
háskólana þar góða. ESB-meðal-
talið var 76 prósent.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir
niðurstöðurnar ekki koma á óvart.
„Þetta er í takti við þær rann-
sóknir sem gerðar hafa verið hér
á landi á viðhorfi íslenskra ung-
menna til skólastarfs almennt,“
segir Katrín. „Þessi rannsókn
staðfestir þær vísbendingar að
Íslendingar treysti skólakerfinu.“
Flestir sögðust sækja háskóla-
nám til þess að fá betri atvinnu-
tækifæri eða fá hærri laun eða
vegna þess að þeir hefðu mikinn
áhuga á ákveðnu efni.
„Íslensk ungmenni eru mjög
meðvituð um laun,“ segir Katrín.
„Þau hafa til að mynda meiri
áhyggjur af því að hafa lág laun
í framtíðinni heldur en nágranna-
þjóðirnar.“
Afar fáir sögðust stunda
háskólanám til þess að bæta stöðu
sína á vinnumarkaði með því að
fara upp um hæfnisþrep. Þar var
hlutfallið lægst meðal Íslendinga
og Norðmanna. Afar hátt hlutfall
þýskra ungmenna segist sækja
háskóla til þess að auka hæfni sína
á vinnumarkaðnum.
Katrín segir umræðuna um
hæfnisþrepin ekki hafa verið
ríkjandi hér á landi, hvorki á
vinnumarkaði né meðal launþega.
Það gæti meðal annars skýrst af
góðu atvinnuástandi hér á landi
lengst af.
Þá voru einnig afar fáir sem
sögðust leggja stund á háskóla-
nám til að auka tækifæri sín til
þess að stofna eigið fyrirtæki.
Þar voru Norðurlöndin fimm með
lægst hlutfall en hæst var það í
Rúmeníu.
Katrín segir þetta sennilega
skýrast af því að hér á landi, sem
og á Norðurlöndunum, geti verið
meiri áhersla á önnur atvinnutæki-
færi heldur en að beina fólki í þá
átt að skapa þau sjálf.
„Þetta gæti vissulega verið vís-
bending fyrir atvinnulífið í land-
inu,“ segir mennta- og menningar-
málaráðherra. sunna@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING
Hver er afstaða ungmenna í Evrópu til
háskólanáms í sínu heimalandi?
Viðhorf til háskóla
Hlutfall ungs fólks sem telur háskóla í sínu heimalandi góðan kost
D
an
m
ör
k
Ís
la
nd
N
or
eg
ur
Sl
óv
ak
ía
Ty
rk
la
nd
Be
lg
ía
ES
B-
m
eð
al
ta
l
Fr
ak
kl
an
d
Li
th
áe
n
Íta
lía
90
,7
89
,8
88
,8
88
,6
87
,7
87
,3
76
,4
61
,7
57
,9
56
,9
100
80
60
40
20
%
Heimild: Flash Eurobarometer on Youth - ESB
EVRÓPUMÁL Evran hentar ekki
Írum enda er einungis þriðjung-
ur viðskipta Íra við lönd innan
evru svæðisins, segir dr. Anthony
Coughlan, heiðursprófessor við
Trinity College í Dyflinni.
Coughlan er efasemdarmaður
um Evrópusambandið og segir
mikilvægt fyrir hvert ríki að
hafa eigin gjaldmiðil, til dæmis
svo fella megi gengið þegar gefi
á bátinn. Evrusvæðið sem slíkt sé
ekki hagkvæmt myntsvæði held-
ur sé evran pólitískt verkefni sem
byggi í grunninn á vilja Þjóðverja
og Frakka til að halda friðinn.
„Engin myntbandalög hafa
staðist tímans tönn,“ sagði hann
á opnum fundi Alþjóðamálastofn-
unar HÍ og Heimssýnar, sem eru
samtök andstæðinga ESB-aðild-
ar Íslands. Hann rifjaði upp að á
tíunda áratugnum, fyrir tíð evr-
unnar, hefði hagvöxtur verið mik-
ill í Írlandi og góðæri. Þegar lág-
vaxta evran hafi verið tekin upp
hafi efnahagslífið hitnað enn, sem
sjálfstæður Seðlabanki Írlands
hefði getað kælt með stýrivöxtum.
Í fyrirspurnum var Coughlan
spurður um kannanir sem sýna að
80 prósent Íra eru hlynntir evru
og hvað hann legði til. Sjálfur sér
hann fyrir sér áframhaldandi frí-
verslun í Evrópu en líklegt sé að
upp úr evrusamstarfinu slitni. - kóþ
Gengisfelling og stýrivextir mikilvæg hagstjórnartæki segir heiðursprófessor:
Segir evruna ekki henta Írum
SLYS Anthony Coughlan segir þátttöku
Íra í evrusamstarfinu hafa verið stórslys.
Ungmenni ánægð
með íslenska skóla
Um 90 prósent íslenskra ungmenna telja háskóla hér á landi góðan kost, sam-
kvæmt nýrri könnun ESB. Flestir stunda háskólanám til þess að fá hærri laun
og fjölga atvinnutækifærum. Kemur ekki á óvart, segir menntamálaráðherra.
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu hefur ákært
konu á þrítugsaldri fyrir þjófnað.
Konunni er gefið að sök að hafa
farið inn í íþróttahús Fram við
Safamýri í Reykjavík og stolið
þaðan jakka, tösku og farsíma
ásamt lyklum að bifreið.
Eftir þetta tók hún umræddan
bíl traustataki og ók honum um
höfuðborgarsvæðið uns lögregla
stöðvaði aksturinn. Í millitíðinni
hafði konan komið við á bensín-
afgreiðslustöð Olís við Háaleitis-
braut, dælt eldsneyti á stolna bíl-
inn fyrir rúmlega 3.000 krónur
og stungið af án þess að borga.
Hún er krafin um greiðslu skaða-
bæta upp á rúmlega 100 þúsund
krónur. - jss
Þjófur greiði skaðabætur:
Kona stal bens-
íni á stolinn bíl
AUSTURLAND Bæjarráð Fljótsdals-
héraðs vill að Íbúðalánasjóður
ræði við aðila á Austurlandi um
stofnun eignarhaldsfélags utan
um íbúðir sem sjóðurinn á þar
í fjórðungnum og seljast ekki.
„Markmið félagsins verði að
bæta nýtingu íbúðanna, þannig
að þær skili eigendum sínum
arði og efli um leið nærliggjandi
samfélag,“ segir bæjarráðið, sem
þar með tekur undir með tveimur
einstaklingum sem komu hug-
myndinni á framfæri við bæjar-
yfirvöld.
Íbúðalánasjóður á nú um 180
íbúðir í Fljótsdalshéraði, Fjarða-
byggð, Seyðisfirði og Höfn, Þar
af standa um 120 íbúðir tómar.
Sjóðurinn hefur viljað fara sér
hægt að fasteignamarkaðinum
eystra. - gar
Vilja félag um óseldar íbúðir:
Íbúðir skili arði
og efli samfélag
REYÐARFJÖRÐUR Tilkoma álvers hafði
mikil áhrif á byggingu íbúðarhúsnæðis á
Austurlandi.
UMHVERFISMÁL Mun fleiri tóku þátt
í átakinu Hjólað í vinnuna nú en
í fyrra. Rúmlega ellefu þúsund
manns tóku þátt frá 694 vinnustöð-
um í 1.628 liðum sem skráð voru
til leiks.
Alls lagði þessi stóri hópur tæp-
lega 831 þúsund kílómetra að baki
og er áætlað að þannig hafi sparast
150 tonn af koltvísýrings útblæstri
og fimmtán milljónir í eldsneytis-
kaup og 28 milljón kaloríur hafi
verið brenndar í leiðinni.
Ferðamátinn var í sjö af hverj-
um tíu tilfella á hjóli á móti þeim
sem kusu að ganga. - shá
Átakið Hjólað í vinnuna:
Hjóluðu 831.000
kílómetra í átaki
HJÓLAÐ Í VINNUNA Fólk á öllum aldri
hefur tekið þátt í gegnum árin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fíkniefnasali ákærður
Rúmlega tvítugur maður hefur verið
ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjaness
fyrir ítrekaða vörslu fíkniefna Hann
var í fyrra skiptið tekinn með kanna-
bisefni og í hið síðara með umtalsvert
magn af sama efni svo og amfetamíni
í sölupakkningum.
DÓMSMÁL
Kannabisræktun stöðvuð
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í íbúð í
Kópavogi í síðustu viku. Við húsleit
var lagt hald á þrjátíu kannabis-
plöntur og ýmsan búnað. Húsráðandi,
karlmaður á þrítugsaldri, játaði sök.
LÖGREGLUFRÉTTIR UMHVERFISMÁL Vestnorræna ráðið
skorar á Evrópusambandið að
endur skoða bann sitt við innflutn-
ingi selafurða til sambandsins.
Bannið hefur nú þegar haft alvar-
legar efnahagslegar afleiðingar
fyrir fjölskyldur veiðimanna og
smærri byggðir veiðimanna á
Grænlandi.
Þetta kom fram á þriðja
sameigin lega fundi forsætis-
nefndar Vestnorræna ráðsins og
þingnefndar Evrópuþingsins sem
haldinn var nýlega í Nuuk á Græn-
landi.
Nefndirnar funda árlega til að
ræða sameiginleg hagsmunamál
en Ólína Þorvarðardóttir er forseti
Vestnorræna ráðsins. „Ég stóðst
ekki mátið að minna á tvískinnung-
inn í þessu máli öllu,“ segir Ólína.
„Við vitum að búpeningur sætir
sums staðar afar illri meðferð í
Evrópu. Við þekkjum hörmulegar
frásagnir og fréttamyndir af með-
ferð dýra í verksmiðjubúum víða í
álfunni. Það er því hálf ömurlegt
að almenningur sem neytir þess-
ara afurða með bestu lyst skuli
snúast gegn sjálfbærri nýtingu
fámennra veiðisamfélaga á lifandi
auðlindum á borð við sel og hval.“
Evrópuþingnefndin upplýsti að
banninu væri fyrst og fremst ætlað
að vinna gegn ákveðnum veiði-
aðferðum í Kanada og ekki hefði
verið ætlunin að stuðla að sölu-
hruni á grænlenskum selskinnum.
Nefndin lýsti yfir vilja til þess að
taka málið upp á vettvangi Evrópu-
þingsins á næstunni.
- shá
Bann við innflutningi selaafurða bitnar á fjölskyldum veiðimanna á Grænlandi:
Skorað á ESB að endurskoða sölubann afurða
SELVEIÐAR VIÐ KANADA Bann ESB við innflutningi beinist gegn veiðiaðferðum
Kanadamanna. NORDICPHOTOS/AFP
SANDGERÐI Skuldir og skuldbind-
ingar Sandgerðisbæjar eru sam-
tals 5.415 milljónir króna að með-
töldum leiguskuldbindingum,
að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu. Segir einnig að
skuldsetning sveitarfélagsins sé
mikil og vinna þurfi frekar að
hagræðingu í rekstri og öðru.
Í ársreikningnum bæjarins
fyrir síðasta ár kemur þó fram
að rekstrarniðurstaða bæjarins
sé skárri en áætlað var. Útsvars-
tekjur eru þó um fimm prósent-
um minni en gert var ráð fyrir
og segir í tilkynningunni að það
skýrist af fækkun íbúa og lækk-
andi tekjum. - þj
Ársreikningur í Sandgerðisbæ:
Skuldsetning
5,5 milljarðar
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
ákærður fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás. Honum er
gefið að sök að hafa á skemmti-
staðnum Barböru í Reykjavík,
slegið annan mann í höfuðið með
glerglasi, með þeim afleiðingum
að sá síðarnefndi hlaut tvo skurði
vinstra megin á enni. Atvikið átti
sér stað í ágúst á síðasta ári.
Maðurinn sem fyrir árásinni
varð krefst miskabóta samtals að
fjárhæð 300 þúsund krónur.
- jss
Sló í höfuð með glerglasi:
Ákærður fyrir
hættulega árás
Í SPEGLI ÓLAFS EGILSSONAR Þarna
sést ein kona horfa í margbrotinn
spegil, listaverk eftir Ólaf Egilsson, á
sýningu í Hong Kong. NORDICPHOTOS/AFP
Þessi rannsókn
staðfestir þær vís-
bendingar að Íslendingar
treysti skólakerfinu.
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
MENNTA- OG
MENNINGARMÁLARÁÐHERRA