Fréttablaðið - 30.05.2011, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 30. maí 2011 15
AF NETINU
Vanhæfi og stjórnlagaráð
Nú veit ég að reglur stjórnsýslunnar um vanhæfi gilda ekki
tæknilega séð um störf stjórnlagaráðs.
En trúverðugleiki nýrrar stjórnarskrár hlýtur að minnka
verulega ef meðlimir stjórnlagaráðs skauta yfir þær van-
hæfisreglur sem settar hafa verið um aðkomu einstaklinga
að málum sem snerta þá og afkomu þeirra með beinum
hætti.
Tilefnið þessara vangaveltna er að stjórnlagaráð er að fjalla um hvort
ákvæði um þjóðkirkju eigi að vera í nýrri stjórnarskrá. Og í stjórnlagaráðinu
situr til að mynda einn prestur og muni ég rétt annar sem tengist presti
nánum fjölskylduböndum.
Ég ætti kannski ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu, því þó ég sé trúlaus
og utan trúfélaga og vilji losna við tengingu ríkis og kirkju – þá hef ég ekki
(amk. persónulega) reynt kirkjunnar þjóna að öðru en heiðarleika og heil-
indum.
Eða er nokkur hætta á að einstaklingar með ríka persónulega hagsmuni í
einstökum málum taki þátt í umræðum og atkvæðagreiðslum um þau?
http://blog.eyjan.is/valgardur
Valgarður Guðjónsson
Hvað á að gera við kirkjuna?
Á morgun förum við í A-nefnd stjórnlagaráðs að ræða það
ákvæði í núgildandi stjórnarskrá, þar sem kveðið er á um
þjóðkirkju. Þá blasa strax við tvær spurningar. Á eða má
íslenska ríkið styrkja og styðja eitt trúfélag umfram önnur –
sem virðist óneitanlega vera hægðarleikur að túlka sem það
sé andstætt ákvæði stjórnarskrár um algjört trúfrelsi? Og er
yfirleitt ástæða til að fjalla um trúfélög í stjórnarskrá?
http://blog.eyjan.is/illugi
Illugi Jökulsson
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
FLUGAKADEMÍAN
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 6. JÚNÍ Nánari upplýsingar er að finna á www.keilir.net
Leiðandi í flugkennslu
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 111141
Í Flugakademíu Keilis er lögð áhersla á nútímalega
kennsluhætti og kennsluumhverfi. Flugfloti Keilis er
bæði nýstárlegur og hátæknilegur.
EINKAFLUG
Námið veitir réttindi til að fljúga einshreyfils flugvél í flestum
Evrópulöndum. Námið hentar bæði áhugamönnum og þeim
sem hyggja á nám í atvinnuflugi.
FLUGUMFERÐARSTJÓRN
Námið undirbýr nemendur undir ábyrgðarmikið starf flug-
umferðar stjóra. Flugumferðarstjórar starfa í flugturnum og
flugstjórnarmiðstöðvum og starfið felur meðal annars í sér að
sjá um samskipti við flugmenn og tryggja öryggi flugvéla.
ATVINNUFLUG
Námið undirbýr nemendur undir að stjórna farþegaflugvélum
víðs vegar um heiminn og tekur mið af námsskrá sem er gefin
út af JAA/EASA samkvæmt samevrópskri útgáfu flugskírteina.
NÝTT: Staðnám hefst haustið 2011.
FLUGÞJÓNUSTA
Námið veitir vottun á grunnþjálfun flugfreyja og flugþjóna
í samræmi við kröfur EASA (EU-OPS1.1005) og er viðurkennt
af Flugmálastjórn Íslands. Fyrir þá sem vilja auka atvinnu-
möguleika sína í ferðageiranum enn frekar bætist við þjálfun í
ýmsum greinum ferðaþjónustu, þ.á m. innritun og afgreiðslu.
Auðlindir samfélagsins er ýmsar: fiskurinn sem sumir
telja sig eiga óveiddan; orkan
sem við lærum vonandi einhvern
tímann að hagnýta okkur á sjálf-
bæran og arðbæran og frábæran
hátt; tign fjallanna svo óumræði-
leg; öll þekkingin; listin sem
gefur okkur ný augu þegar hún
tekst og getur verið svo spaugileg
og skemmtileg þegar hún tekst
ekki; hjálpsemin og náungakær-
leikurinn; hugvitið, verksvitið,
mannvitið – og – síðast en ekki
síst – rétturinn til að láta skoðan-
ir sínar í ljós, hversu andstæðar
sem þær kunna að vera þeim sem
með völdin fara hverju sinni.
Þetta er dýrmæt auðlind: Hið
almenna samkomulag sem ríkir í
samfélaginu um að sannleikurinn
sé ekki einn heldur margur, ekki
einvíður heldur margræður, ekki
í eigu neins heldur sérstakur. Og
að hver og einn megi stíga fram
nokkurn veginn óáreittur og bera
sínum sannleika vitni.
Það eru mannréttindi. Það er
annars fallegt orð mannrétt-
indi, svolítið þungt og ábúðar-
mikið. Í orðinu felst sú hugsun
líka að við eigum að fá að standa
upprétt sem menn en ganga ekki
álút eða skríða á vegferð okkar.
Það kemur fyrst fyrir árið 1848
í Norðurfara, tímariti sem Gísli
Brynjúlfsson gaf út og er þar
tengt öðru fallegu orði: mann-
helgi.
Gísli Brynjúlfsson þótti sér vitur
og naumast með öllum mjalla því
að hann orti opinskátt um tilfinn-
ingar sínar og var ósammála sjálf-
um Jóni Sigurðssyni í þjóðfrelsis-
málunum. Hann bar óhræddur
sínum sannleika vitni.
Skál fyrir frelsinu
Amnesty International eru sam-
tök fólks sem finnst því koma við
hvernig aðrir menn eru leiknir;
það skynjar að það sem gert er
einum manni er um leið gert öllu
mannkyninu – það finnur til með
öðru fólki eins og okkur er af
einhverjum ástæðum flestöllum
eigin legt að gera, séum við
nokkurn veginn heilbrigð.
Þessari mannhelgisgæslu var
komið á fót fyrir fimmtíu árum
– samtökin urðu fimmtug nú um
helgina. Þau urðu til árið 1961
þegar enski lögfræðingurinn
Peter Benenson hafði veður af
því að tveir portúgalskir stúd-
entar voru fangelsaðir fyrir að
skála fyrir frelsinu – þá ríkti
enn í Portúgal einræðisstjórn
fasista – raunverulegra fasista.
Peter Benenson skrifaði grein í
blaðið Observer sem bar heitið
„Fangarnir gleymdu“ og hratt í
kjölfarið af stað alþjóðlegri her-
ferð undir heitinu „Appeal for
Amnesty 1961“ eða „Ákall um
sakaruppgjöf“. Sama ár voru
síðan formleg samtök stofnuð
með þetta markmið og nú er á
þriðju milljón manna um heim
allan félagar.
Æ síðan hafa samtökin notað
ákveðið vinnulag við að rétta
hjálparhönd samviskuföngum
víða um heim, sem hnepptir hafa
verið í varðhald vegna skoðana
sinna.
Aðferðin er einföld, snjöll og
áhrifamikil: að skrifa bréf. Að
sem flestir skrifi bréf. Að yfir
einræðisherrana rigni bréfum
sem öll gegna sama hlutverki: Við
látum vita af okkur; látum vita
að við vitum. Segjum: Við sjáum
til þín.
Ljós heimsins
Einræðisherrum er illa við
ljósið. Þeir þola ekki að láta
ljós heimsins skína á sig. Veldi
þeirra byggir ekki síst á vand-
legum umsnúningi sannleikans
og allra gilda; þeir láta sem þeir
séu sérstakir varðmenn lýðræðis
og hvers kyns réttinda sem séu
raunar svo þróuð að ekki verði
lengra komist og því séu nú allir
á einu máli ágæti þeirra; önnur
sjónarmið séu geðbilun og glæp-
samleg. Einræðiskerfi 20. aldar-
innar, hvort sem þau kenndu sig
við kommúnisma eða fasisma
eða trúræði af einhverjum toga,
áttu það ævinlega sammerkt að
vera reist á einhverri einni frem-
ur einfaldri höfuðlygi sem svo
gegnsýrði allt þjóðfélagið og allir
urðu að taka þátt í svo að öll sam-
skipti og tengsl manna byggðust
á stórkostlegum óheilindum: Ég
veit að þetta er þvæla sem þú ert
að segja og þú veist það að ég veit
það – en við skulum samt halda
þvælunni áfram því að annars er
hægt að fangelsa okkur.
Slíkar spilaborgir sem reistar
eru á lygum eru merkilega
rammgerðar – vegna þess að
þrátt fyrir allt geta mennirnir
aðlagast ótrúlegustu kringum-
stæðum og gengist fáránlegustu
orðræðu á hönd – og veikbyggðar,
því eins og dæmin sanna um
þessar mundir í arabalöndunum
þarf fólk ekki nema að safnast
saman úti á götum og krefjast
réttar síns til að allt riði til falls.
Stundum þarf ekki annað en
að láta ljósið skína inn í skúma-
skotin. Amnesty International
hefur eitt vopn og aðeins eitt og
beitir því kænlega: Kertið, ljós
heimsins: upplýsingar. Reglulega
senda samtökin frá sér skýrslur
um ástand mannréttindamála í
einstökum löndum sem byggðar
eru á nákvæmri og vandaðri upp-
lýsingaöflun og þessar skýrslur
eru þá jafnframt ljóskastari sem
beinist að viðkomandi ríkjum: því
að ævinlega eru einhverjir sem
reiðubúnir eru til að bera sann-
leika sínum vitni þrátt fyrir allt.
Til hamingju með afmælið,
fimmtugi ljósberi.
Mannhelgisgæslan
Amnesty International eru samtök fólks
sem finnst því koma við hvernig aðrir
menn eru leiknir; það skynjar að það
sem gert er einum manni er um leið gert öllu mann-
kyninu – það finnur til með öðru fólki eins og okkur
er af einhverjum ástæðum flestöllum eiginlegt að
gera, séum við nokkurn veginn heilbrigð.
Auglýsingasími