Fréttablaðið - 30.05.2011, Page 17
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Árný Lúthersdóttir áhugakona um hönnun býr yfir skemmtilegum hugmyndum og lausnum á heimilinu.
Hönnunarmiðstöð , Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins
og Nýsköpunarmiðstöð auglýsa eftir hönnuðum til
samstarfs í þróunarverkefni. Umsóknarfrestur rennur
út föstudaginn 3. júní. www.honnunarmidstod.is
Þ
etta er sjónvarps skápur
sem ég keypti í lélegu
ástandi og lét sprautu-
lakka rauðan,“ segir Árný
Lúthersdóttir, sem heldur úti síð-
unni Punkturinn yfir I-ið á Face-
book. Á síðunni kynnir Árný snið-
ugar hugmyndir fyrir heimilið.
„Í gamla daga var sjónvarp inni í
þessum skáp, en nú er búið að taka
það úr og setja hillu í staðinn.“
Árný segist skreyta mikið með
myndum og ofan á gamla sjón-
varpsskápnum stendur myndasería
af henni frá því hún var þriggja
ára. „Ég átti eina gamla mynd og
aftan á henni var númer,“ segir
Árný, en hún gat haft uppi á ljós-
myndaranum, sem fletti upp mynd-
unum og lét framkalla fleiri.
Árný segist hafa búið til rauða
myndarammann fyrir ofan skáp-
inn. „Þetta er MDF-plata sem ég
lét saga og sprautulakka rauða,“
upplýsir Árný, sem segir sniðugt
að setja myndir á MDF-plötu til
að halda þeim beinum á veggnum.
„Ég festi plötuna á vegginn og svo
eru skrúfur fyrir hverja og eina
mynd.“
Undir MDF-plötuna setti Árný
tvær tegundir af veggfóðri. „Þarna
setti ég saman tvo ólíka liti til þess
að ramma veginn inn,“ útskýr-
ir Árný og bætir við að hún hafi
einnig viljað ramma inn dúkkurn-
ar sem hún keypti í Prag. „Fyrst
hengdi ég þær bara upp á hvítan
vegginn. Mér fannst þær svolítið
berar þannig, svo ég málaði vegg-
inn fyrir aftan þær.“
martaf@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listh
Nýir svefnsófar - margar gerðir
12 mánaða vaxtalausar greiðslur
Rammar inn með litum
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík
S: 58 58 900-www.jarngler.is
Fyrirtæki - Húsfélög
Við bjóðum upp á
sjálfvirkan hurða -
opnunarbúnað ásamt
uppsetningu og
viðhaldi.
Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir
aðgengi fatlaðra.
Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin.