Fréttablaðið - 30.05.2011, Síða 35
MÁNUDAGUR 30. maí 2011 19
Tónlist ★★
Ojos de Brujo í Silfurbergi í
Hörpu á Listahátíð í Reykja-
vík.
Augu töframannsins sjá lengra.
Þau sjá undir yfirborðið.
Augu töframanns á spænsku er
„ojos de brujo“. Það er nafnið á
níu manna hljómsveit frá Barce-
lona sem hélt tónleika í Silfurbergi
í Hörpu á Listahátíð á föstudags-
kvöldið. Eitt af markmiðum hóps-
ins er að kafa undir yfirborðið,
fjalla um ástandið á Spáni eins og
það er í raun og veru. Ekki eins og
það birtist á póstkortum. Hópurinn
vill sjá sannleikann og opinbera
hann á tónleikum.
Fyrir þá sem ekki tala spænsku
fór þessi sannleikur fyrir ofan garð
og neðan. Söngkonan, Marina Abad,
sagði allt mögulegt á milli laga, en
það var ekki alltaf þýtt. Þýðingarn-
ar voru auk þess á lélegri ensku.
Þetta skipti þó ekki neinu sér-
stöku máli. Ojos de Brujo er fyrst
og fremst gleðisveit, sem byggir á
flamenco-tónlist. Við hana bland-
ast ýmsir stílar; reggí, fönk, rokk,
hipphopp, bítbox og fleira. Það
hefði samt verið gaman að skilja
hvað var sagt.
Lagalistinn á tónleikunum var
gríðarlega kraftmikill. Það átti
greinilega að fá Íslendingana til
að dansa strax frá byrjun. Á kynn-
ingarvef Listahátíðar segir einmitt
að Ojos de Brujo sé „ein af þeim
hljómsveitum sem þykja enn betri
á sviði en á plötu og smitandi spila-
gleði þeirra gerir það að verkum að
allir aldurshópar flykkjast á dans-
gólfið!“
Nánast hvert einasta atriði var
stuðlag. Það var engin stígandi í
dagskránni. Hún byrjaði á toppn-
um og var þar allan tímann. Það
virkaði ekki alveg. Neistann vant-
aði. Sárafáir virkilega töpuðu sér á
dansgólfinu, þótt stemningin væri
ágæt. Orðrómur er uppi um að
hljómsveitin sé í andarslitrunum,
flestir meðlimir hennar hyggist róa
á önnur mið. Maður hafði á tilfinn-
ingunni að hljómsveitin væri búin
að spila lögin sín aðeins of oft.
Samt var ekki hægt að kvarta
yfir spilamennskunni, öðru nær.
Flamenco-sóló-gítarleikurinn var
flottur, og söngkonan var glæsileg.
Bandið var prýðilega samtaka, ekk-
ert klúður, ekkert sem mistókst.
Nema kannski hljóðið. Ég var
ekki ánægður með hljóminn í
Silfur berginu. Mér skilst að þetta
sé algerlega dauður salur, sem
er fínt þegar rafmögnuð tónlist
er annarsvegar. Salur með engri
endurómun þýðir að hljóðstjórinn
hefur fullt vald yfir „sándinu“ og
getur gert það sem hann vill. Að
því gefnu auðvitað að hljóðkerfið sé
í lagi. Miðað við alla peningana sem
lagðir hafa verið í Hörpu þá trúi ég
ekki að hljóðkerfið þar sé lélegt.
Nei, sennilega var hljóðstjórnin
bara ekki nógu góð. Bassinn var
leiðinlega mattur; efsta tónsviðið
ekki nægilega tært og klingjandi.
Hugsanlega hefði mátt skapa ör-
lítið bergmál til að lífga hljóminn.
Útkoman á tónleikunum var ein-
kennileg litlaus og óspennandi.
Hér hefði þurft að gera betur.
Jónas Sen
Niðurstaða: Ojos de Brujo spilaði
vel, og tónlistin var skemmtileg. Hins-
vegar vantaði stígandina í lagalistann
og hljóðið í Silfurbergi var ekki nógu
gott.
Glansinn vantaði
Óp-hópurinn heldur tónleika í
annað sinn í Salnum á þriðju-
dag. Hópurinn flytur stutt atriði
úr ýmsum óperum og leggur
áherslu á léttar
sviðssetningar
og samsöng-
leik.
Á efnis-
skránni eru
atriði úr Sour
Angelica
eftir Puccini,
Carmen eftir
Bizet, Aida
eftir Verdi,
Spaðadrottningunni eftir Tsjaí-
kovský og atriði úr íslenskum
verkum eftir meðal annars Þór-
unni Guðmundsdóttur og Jón
Ásgeirsson.
Óp-hópurinn samanstendur
af þeim Braga Jónssyni, bassa,
Bylgju Dís Gunnarsdóttur sópr-
an, Erlu Björg Káradóttur sópr-
an, Hörn Hrafnsdóttur mezzó-
sópran, Jóhönnu Héðinsdóttur
mezzó-sópran, Magnúsi Guð-
mundssyni barítón og Rósalind
Gísladóttur mezzó-sópran, auk
Antoníu Hevesí á flyglinum.
Með þeim leikur einnig Gunn-
ar Kristmannsson á klarínett í
einu íslensku verkanna. Leik-
stjóri að þessu sinni er Jóhann
Smári Sævarsson. Tónleikarnir
hefjast klukkan 18 og eru
klukkutíma langir án hlés. Miða-
verð er 1.500 krónur.
Óp-hópurinn
í Salnum
BYLGJA DÍS
GUNNARSDÓTTIR
OJOS DE BRUJO Sveitin er ein vinsælasta hljómsveit Spánar og flytur tónlist sem er
blanda af flamenco, hipphoppi, rúmbu, reggí og danstónlist.