Fréttablaðið - 30.05.2011, Qupperneq 40
30. maí 2011 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
PÁLMI RAFN PÁLMASON og Björn Bergmann Sigurðarson skoruðu báðir tvö mörk fyrir lið sín í norska fótboltanum um
helgina, Pálmi í 4-2 útisigri Stabæk á Start og Björn í 4-2 sigri Lilleström á Sarpsborg. Veigar Páll Gunnarsson skoraði eitt marka
Stabæk og hefur því skorað 7 mörk í 9 leikjum á tímabilinu. Sara Björk Gunnarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir voru báðar á
skotskónum í Svíþjóð, Sara í 5-0 sigri Malmö á Dalsjöfor en Margrét Lára í 1-3 tapi Kristianstad fyrir Umeå.
b
m
va
ll
a
.is
Smellinn
forsteyptar einingalausnir frá BM Vallá
BM Vallá ehf.
Bíldshöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 412 5000
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
Helstu kostir SMELLINN
húseininga:
Styttri byggingartími
Steypt við bestu aðstæður
Yfirborð frágengið
Gott einangrunargildi
Minni fjármagnskostnaður
24.–26. júní Hvammstanga Húnaþingi vestra
www.landsmotumfi50.is
HANDBOLTI Guðmundur Guð-
mundsson og lærisveinar hans
í Rhein-Neckar Löwen töpuðu
báðum leikjum sínum á úrslita-
helgi Meistaradeildarinnar um
helgina og þurftu að sætta sig við
fjórða sætið í keppninni. Löwen
tapaði 28-30 fyrir Barcelona í
undanúrslitaleiknum á laugardag
og svo 31-33 fyrir þýsku meistur-
unum í Hamburg í leiknum um
um 3. sætið í gær.
Ólafur Stefánsson skoraði 4
mörk í undanúrslitaleiknum en
var síðan markahæsti maðurinn
á vellinum í leiknum um þriðja
sætið, þar sem hann skoraði 7
mörk. Róbert Gunnarsson og
Guðjón Valur Sigurðsson fengu
bara að spila á móti Hamburg
þar sem Guðjón skoraði 2 mörk
en Róbert komst ekki á blað.
Spænska liðið Barcelona
tryggði sér sigur í Meistaradeild-
inni eftir 27-24 sigur á Ciudad
Real í úrslitaleiknum. - óój
Barcelona vann Meistaradeild Evrópu í handbolta:
Tvö töp hjá Löwen
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið tapaði, 22-20, gegn Svíþjóð í
Vodafone-höllinni en leikurinn var
hluti af undirbúning liðsins fyrir
umspilsleikina gegn Úkraínu í
næstu viku.
Jafnræði var á með liðunum
allan leikinn og skiptust þau á að
hafa eins til tveggja marka for-
ystu. Svíar voru skrefinu á undan
síðustu tíu mínútur leiksins og
náðu að innbyrja sigur. Rakel Dögg
Braga dóttir var atkvæðamest fyrir
Ísland með sex mörk og Guðný
Jenný Ásmundsdóttir var frábær í
markinu og varði 18 skot. Isabelle
Gulldén skoraði 8 mörk fyrir Svía
auk þess sem hún stjórnaði leik
gestanna óaðfinnanlega.
„Ég er bara hundfúll að hafa ekki
náð að vinna þennan leik,“ sagði
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Íslands,
eftir tapið í gær.
„Leikurinn var jafn nánast allan
tíman, en um miðbik síðari hálf-
leiksins náðum við að komast yfir
og áttum fínan möguleik á því að
vinna leikinn. Stelpurnar gerðu
sig sekar um of mörg tæknimistök
og þær hefðu átt að skjóta betur
á markið á köflum, en það erfitt
á móti jafn góðu liði og Svíþjóð.
Við hefðum þurft að fá mun fleiri
hraðaupphlaupsmörk hér í dag.
Varnarleikurinn hjá okkur var heilt
yfir mjög góður og sóknarlega var
liðið að sýna nokkuð fína takta. Það
er gríðarlega mikilvægt að fá þessa
leiki á móti Svíþjóð fyrir liðið, en
þær urðu í öðru sæti á síðasta Evr-
ópumóti og eru með virkilega gott
lið,“ sagði Ágúst.
„Það var margt jákvætt í okkar
leik en ég hefði viljað sigra,“ sagði
Rakel Dögg Bragadóttir eftir leik-
inn í gær.
„Við eigum alveg góðan mögu-
leika á móti þessu liði og klúðr-
uðum þessu í raun á síðustu fimm
mínútum leiksins, þar gerum við
of dýrkeypt mistök. Við erum að
spila mjög góða vörn allan leik-
inn og nokkuð agaðan og skipu-
lagðan sóknarleik. Við þurfum
að nýta færin okkar betur á móti
svona liðið og skjóta betur á mark-
ið. Markvörðurinn þeirra var okkur
erfiður og við þurfum að skoða
hana vel fyrir leikinn á morgun.“
- sáp
Stelpurnar stóðu í silfurliðinu
Íslenska kvennalandsliðið tapaði, 22-20, fyrir Svíum í vináttulandsleik í Vodafone-höllinni í gær. Guðný
Jenný Ásmundsdóttir átti stórleik í íslenska markinu en það dugði ekki til. „Ég er bara hundfúll að hafa
ekki náð að vinna þennan leik,“ sagði Ágúst Jóhanns- son, þjálfari Íslands.
SAMEINAÐAR STOPPUM VIÐ ÞÆR Rakel
Dögg Bragadóttir og Stella Sigurðar-
dóttir reyna hér að stoppa hina frábæru
Isabellu Gulldén. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vináttulandsleikur í handb.
Ísland - Svíþjóð 20-22 (10-11)
Mörk Íslands (skot): Rakel Dögg Bragadóttir
6/2 (12/4), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3
(5), ), Rut Jónsdóttir 3 (4), Hrafnhildur Ósk
Skúladóttir 2 (5/1), Stella Sigurðardóttir 2 (2),
Brynja Magnúsdóttir 2 (0/2), Karen Knútsdóttir
1 (2), Rebekka Skúladóttir 1 (1), Ásta Birna
Gunnarsdóttir 1 (1).
Varin skot: Jenný Ásmundsdóttir 18 (40/4, 45%)
Mörk Svíþjóðar (skot): Isabelle Gulldén 8/4
(20/4), Jamina Roberts 3 (5), Annika Fredén
2 (2), Anna-Maria Johansson 2 (3), Therese
Helgesson 2 (7), Jessica Helleberg 2 (3), Matilda
Boson 1 (4), Angelica Wallén 1 (2), Kristina
Flognman 1 (1).
Varin skot: Cecilla Grubbström 14/2 (34/3, 41%).
Örninn Golf mótið
KARLAR
1. Axel Bóasson, GK -7
2. Arnar Snær Hákonarson, GR Par
3. Stefán Már Stefánsson, GR +2
4. Helgi Birkir Þórisson, GSE +3
4. Örvar Samúelsson, GA +3
6. Haraldur Franklín Magnús, GR +5
7. Hlynur Geir Hjartarson, GOS +6
7. Sigmundur Einar Másson, GKG +6
7. Sigurjón Arnarsson, GR +6
10. Örn Ævar Hjartarson, GS +7
KONUR
1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +4
2. Signý Arnórsdóttir, GK, +6
3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, + 8
3. Heiða Guðnadóttir, GKj., +8
5. Nína Björk Geirsdóttir, GKj. +9
6. Sunna Víðisdóttir, GR +11
7. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, +12
8. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG, +14
8. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, +14
10. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK, +15
ÚRSLIT Í GÆR
GOLF Ungt Keilisfólk, Axel Bóasson
og Guðrún Brá Björgvins dóttir,
fagnaði sigri á fyrsta stigamóti
sumarsins á Eimskipsmótaröðinni
sem fram fór á Garðavelli á Akra-
nesi um helgina.
Axel Bóasson fagnar tvítugs-
afmæli sínu í næstu viku og hann
hélt upp á afmæli sitt með viðeig-
andi hætti. Axel lék frábærlega um
helgina og lék hringina tvo á sjö
höggum undir pari. Hann
var öruggur sigurvegari
á mótinu og lék alls á sjö
höggum betur en Arnar
Snær Hákonar son úr
GR sem varð í öðru
sæti. Axel endaði í 10.
sæti á stigalistanum á
Eimskipsmótaröðinni
í fyrra og er þetta
fyrsti sigur hans á
stigamótaröðinni.
S t e f á n M á r
Stefáns son úr GR
varð í þriðja sæti
en hann var með eins högg for-
skot á Axel eftir fyrri daginn þar
sem hann lék á fimm
höggum undir pari.
Stefán Már lék hins
vegar á sjö höggum
yfir pari í gær.
G u ð r ú n B r á
Björgvinsdóttir, sigurvegarinn
í kvennaflokki, er aðeins sautj-
án ára gömul en hún lék hringina
tvo á 148 höggum eða 4 yfir pari.
Guðrún Brá var í þriðja sæti eftir
fyrri daginn en lék langbest í gær
eða á þremur höggum yfir pari.
Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún
Brá sigrar á stigamóti í fullorðins-
flokki en hún er dóttir Björgvins
Sigurbergssonar, fyrrum Íslands-
meistara í golfi.
Signý Arnórsdóttir úr Keili varð
önnur, en hún lék á 150 höggum,
eða 6 yfir pari. Heimastúlkan Val-
dís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og
Heiða Guðnadóttir úr Kili urðu
jafnar í þriðja sæti en þær voru
jafnar eftir fyrri daginn. - óój
Ungt Keilisfólk í sviðsljósinu á fyrsta stigamóti sumarsins á Eimskipsmótaröðinni:
Axel og Guðrún Brá góð í gær
MEISTARARNIR Á SKAGANUM
Axel Bóasson og Guðrún Brá
Björgvinsdóttir eru bæði í Keili.
MYND/STEFÁN GARÐARSSON