Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 8
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR8 1. Hvar á að vera hlýjast í veðri á næstu dögum? 2. Hvar á höfuðborgarsvæðinu á að opna nýjan English Pub? 3. Hvaða leikmaður Íslands fékk rautt spjald í fyrsta leiknum á EM U-21 í fótbolta? SVÖR 1. Á suðvesturlandi 2. Í Hafnarfirði 3. Aron Einar Gunnarsson VELKOMIN Á BIFRÖST Umsóknarfrestur rennur út í dag Skilaðu umsókn núna á bifrost.is Háskólasamfélagið á Bifröst er einstakt samfélag sem sameinar vandað nám og frábært umhverfi fyrir börn og fullorðna. Við leggjum áherslu á að undirbúa nemendur fyrir atvinnulífið með markvissri kennslu og raunhæfum verkefnum. Markmið okkar er háskóli í tengslum við raunveruleikann. FRUMGREINANÁM GRUNNNÁM MEISTARANÁM Frumgreinanám í stað- og fjarnámi HHS – heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði Viðskiptafræði í stað- og fjarnámi Viðskiptafræði í fjarnámi með áherslu á markaðssamskipti Viðskiptalögfræði MA í menningarstjórnun MA í menningarfræði MS í alþjóðaviðskiptum DÓMSMÁL Landsdómur hafnaði fyrir síðustu helgi kröfu Geirs H. Haarde þess efnis að átta þing- kjörnir fulltrúar í dómnum vikju sæti við meðferð máls Alþingis á hendur honum. Geir krafðist þess að þeir vikju, enda mætti draga hæfi þeirra í efa þar sem Alþingi hefði ákveðið að framlengja skipunartíma þeirra eftir að málareksturinn hefði verið farinn af stað. Dómurinn fellst ekki á þennan málatilbúnað. Dómararnir átta hefðu verið kjörnir í dóminn mörg- um árum áður en ákveðið var að sækja Geir til saka og ekki þyrfti að efast um hæfi þeirra þótt tím- inn hefði verið framlengdur. Ekki verður frekari mála- rekstur fyrir landsdómi fyrr en í haust, þegar tekist verður á um frávísunar kröfu Geirs. Hann skilar greinargerð sinni í ágúst og í kjöl- farið vinnur saksóknar- inn greinargerð um kröf- una. Málflutningur um hana er áætlaður 5. september. Búast má við að dómurinn taki sér nokkrar vikur í að úrskurða um frávísunar- kröfuna. Verði henni hafnað fær Geir nokkrar vikur til að skila greinargerð um efnisatriði máls- ins, og verjandinn í kjölfarið tíma til að skila sinni greinargerð. Ekki má því búast við að mál- flutningur í málinu sjálfu hefjist fyrr en á nýju ári, fari það á annað borð alla leið. - sh Ekki útlit fyrir aðalmeðferð fyrir landsdómi fyrr en á nýju ári: Landsdómur hafnar kröfu Geirs GEIR H. HAARDE Landsdómur hafnar málatilbúnaði hans. LÖGREGLUMÁL Sparkað var í höfuð lögreglumanns sem reyndi að stöðva hópslagsmál á Akranesi um helgina. Slagsmál brutust út fyrir utan veitingastaðinn Breiðina. Lög- reglan greip inn í slagsmálin með aðstoð frá lögreglumönnum á frívakt. Þá var kallað eftir aðstoð lögreglunnar í Borgarnesi. Frá þessu er greint á vefnum Skessu- horn.is. Nokkrir voru handteknir og færðir í fangageymslu. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi meiðst alvarlega. - þeb Hópslagsmál á Akranesi: Sparkað í lög- reglumann KJARAMÁL Leikskólakennarar hafa samþykkt að boða til verkfalls hinn 22. ágúst ef ekki tekst að ljúka kjarasamningum við sveitar- félögin fyrir þann tíma. Haraldur Freyr Gíslason, for maður Félags leikskólakennara, segir að mikill samhugur sé í stéttinni, sem sjáist vel í eindreginni niður- stöðu atkvæða- greiðslu félags- manna. 84,7 prósent félagsmanna tóku þátt í kjör- inu og 96 pró- sent þei r ra greiddu atkvæði með verkfalls- aðgerðum. „ Ég var búinn að finna mikinn kraft í leikskólakennurum undanfarið og þeir sætta sig ekki við sinn hlut lengur,“ segir Har- aldur í samtali við Fréttablaðið og bætir því við að grunnkrafan sé að kjör leikskólakennara verði gerð sambærileg við aðrar stéttir sem þeir miði sig við. „Við höfum verið að dragast aftur úr viðmiðunarstéttum frá árinu 2008 og erum nú á eftir þeim svo talsverðu munar. Við höfðum fengið viðurkennt að sömu laun ættu að gilda fyrir sömu mennt- un og þannig var það. Svo er hins vegar ekki lengur og við viljum leiðréttingu á okkar kjörum.“ Haraldur segir að byrjunar- laun leikskólakennara séu nú um 247 þúsund krónur á mánuði, fyrir skatt, sem sé fjarri því að vera boðlegt eftir fimm ára háskóla- nám til að ljúka mastersgráðu. „Það bara gengur ekki. Við erum bara ekki samkeppnishæf á markaði.“ Spurður hvort mikið beri á milli aðila í kjaraviðræðunum segir hann að sveitarfélögin hafi hingað til aðeins viljað bjóða leik- skólakennurum álíka hækkanir og fengust í nýgerðum samningum á almennum vinnumarkaði. „En það erum við ekki tilbúin að sætta okkur við,“ segir Haraldur en vill ekki gefa upp hverjar kröfur þeirra séu nákvæmlega. Hann bætir því við að verði kjör leikskólakennara ekki leið- rétt muni það koma niður á sókn í námið. „Sókn í staðnámið hefur verið í sögulegu lágmarki þar sem nú eru níu nemar, þó að enn sé ágæt sókn í fjarnámið. En ef fram fer sem horfir á staðan aðeins eftir að versna.“ Þó að enn sé drjúgur tími þar til boðað verkfall hefst segist Har- aldur vonast til þess að samningar takist fljótlega. „Ég ætla bara að vona að við- semjendur okkar ætli ekki að reyna að tefja málið. Það væri verulega hallærislegt að reyna þann leik og við sættum okkur ekki við slíkt.“ thorgils@frettabladid.is Boða verkfall á leikskólum Leikskólakennarar samþykktu með miklum meiri- hluta að boða til verkfalls í ágúst. Vilja leiðréttingu á kjörum sínum í samræmi við viðmiðunarstéttir. HARALDUR F. GÍSLASON BOÐA VERKFALL Leikskólakennarar samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta að boða til verkfalls í ágúst. Þeir vilja sambærileg kjör og viðmiðunarstéttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.