Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2011 Síðastliðið haust komu til umræðu, og síðar atkvæða- greiðslu, á Alþingi niðurstöður og tillögur rannsóknarnefndar Alþingis sem starfað hafði fyrri hluta ársins samkvæmt ein- róma samþykkt Alþingis frá 12. desember 2008. Niðurstaða meirihluta þess- arar rannsóknarnefndar var sú að látið skyldi á það reyna fyrir Landsdómi hvort fjórir ráðherrar hefðu rækt ráðherraábyrgð sína í aðdraganda hrunsins. Niður- staða meirihluta Alþingis varð sú að þetta skyldi aðeins gilda um einn ráðherra, fyrrum forsætis- ráðherra Geir H. Haarde. Tillög- urnar um hina þrjá voru felldar. Um þessa atkvæðagreiðslu ræði ég ekki frekar að sinni þótt tilefni væri til. Þetta var meirihlutavilji Alþingis. Í fréttaviðtölum og í Kastljósi Sjónvarps sagði Geir H. Haarde að hann ætlaði að „láta það eftir sér“ að nafngreina þá menn sem bæru höfuðábyrgð á því hvernig fyrir sér væri komið og þar með „fyrstu pólitísku réttarhöldum Íslandssögunnar“. Þetta voru Atli Gíslason, Steingrímur J. Sigfús- son og Ögmundur Jónasson, sá sem þetta ritar. „Ég læt það eftir mér.“ Fljótlega varð ég þess var að forsætisráðherrann fyrrver- andi hafði hitt í mark gagnvart fólki sem gjarnan vildi sjá málin þróast á þann veg sem hér var lagt upp með. Hannes Hólm- steinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, lét það nú einnig eftir sér að tjá sig um þetta mál og upplýsti, landsmönnum til fróðleiks, að „Ögmundur er raunar systursonur eins skel- eggasta stalínista á Íslandi, Stef- áns Ögmundssonar, sem hlaut harðasta dóminn fyrir árásina á Alþingishúsið 30. mars 1949 ...“. Skilgreiningin á frænda mínum og lífsviðhorfum hans er að sjálf- sögðu prófessorsins en dómur- inn sem þarna er vísað til fólst í því að móðurbróðir minn var dæmdur í 12 mánaða fangelsi (18 mánuði í undirrétti) og svipt- ur kjörgengi og kosningarétti vegna þátttöku í mótmælum gegn inngöngu Íslands í Atlants- hafsbandalagið. Fangelsisdómn- um var ekki framfylgt af ótta við viðbrögð almennings og var safnað 27.364 undir skriftum til stuðnings þeim sem hlutu dóma. Undirskriftalistarnir voru afhentir forseta Íslands árið 1952 en það var ekki fyrr en 30. apríl 1957 sem sakaruppgjöf var veitt. Þá höfðu sjö menn, ásamt Stefáni, verið án kosningaréttar og kjör- gengis í fimm ár. „Dálítið“ en ekki fráleitt? Í leiðara Fréttablaðsins 10. júní sagði að ýmsir leiddu nú að því getum að við, fyrrgreindir meintir höfuðpaurar í Landsdómsmálinu, værum „arftakar kommúnista- hreyfingarinnar á Íslandi sem á sínum tíma studdi sýndarréttar- höld í Sovétríkjunum.“ Þetta segir ritstjórinn vera „dálítið“ langsótt en hitt sé þó ljóst að við stöndum að því „að þverbrjóta ýmsar regl- ur réttarríkisins til að koma höggi á einn mann ...“. Geir H. Haarde má að sjálf- sögðu láta það eftir sér að vísa stuðningsmönnum sínum á þá sem hann telur vera sína verstu óvildarmenn. Og Hannes Hólm- steinn Gissurarson má mín vegna láta það eftir sér að vera hann sjálfur eins og við höfum kynnst honum svo vel í gegnum árin. Er ritstjóranum alvara? En ég hefði haldið að Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðs- ins og leiðarahöfundur, hefði þurft að gera betur grein fyrir grafalvarlegum ásökunum sínum um að reglur réttarríkisins hafi verið þverbrotnar, til að koma höggi á einn mann. Eða hve vel skyldi ritstjórinn hafa gaumgæft orðaval sitt? Vefmiðillinn Pressan telur að Geir H. Haarde „hafi með snjöll- um hætti snúið vörn í sókn í máls- vörn sinni fyrir Landsdómi“. Eflaust kann svo að vera ef menn kjósa að færa málsvörn úr mál- efnalegum farvegi frammi fyrir Landsdómi yfir í farveg pólit- ískra ærumeiðinga. Slíkur mála- tilbúnaður hlýtur þó að vera fleir- um en mér umhugsunarefni. En ég hefði haldið að Ólafur Þ. Stephen- sen, ritstjóri Fréttablaðsins og leiðarahöf- undur, hefði þurft að gera betur grein fyrir grafalvarlegum ásökunum sínum um að reglur réttarríkisins hafi verið þverbrotnar, til að koma höggi á einn mann. Umhugsunarefni Landsdómur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ÚR ERLENDUM LEIÐURUM Konur ráða enn klæðaburði sínum Húmor er eitt sterkasta vopn sem til er. Einnig þegar takast þarf á jafnalvarlegt vandamál og ofbeldi gegn konum. Þess vegna er ekki undarlegt að farið sé í druslugöngur víða um hinn vestræna heim. Þetta byrjaði í Toronto. Lög- reglumaður hafði hvatt námsmeyjar til þess að klæða sig ekki eins og „druslur“ þar sem það yki hættuna á að þeim yrði nauðgað. http://hbl.fi /opinion Úr leiðara Hufvudsstadsbladet TILBOÐ AÐEINS 6.995,- PAKKATILBOÐ AÐEINS 24.900,- TILBOÐ AÐEINS 13.995,- PAKKATILBOÐ AÐEINS 29.900,- TILBOÐ AÐEINS 11.995,- KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050 MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16 TILBOÐ AÐEINS 16.995,- AÐEINS 24.900,- AÐEINS 19.990,- AÐEINS 5.995,- AÐEINS 8.895,- TILBOÐSVERÐ 11.895,- AÐEINS 1.695,- SILUNGAFLUGUR STRAUMFLUGUR SPÚNAR MAKRÍLL OG ORMARAÐEINS 220,- AÐEINS 290,- AÐEINS FRÁ 299,- Þu færð beituna í veiði- ferðina í Sportbúðinni. Venjulega kostar dagurinn aðeins 25 kr./5 MB. Netið í símanum er ódýrara en þú heldur Notkun á Ísl andi , 10 0 M B i nn an d ag si ns . G re id d er u m án .g jö ld s kv . v er ðs kr á.Prófaðu í dag á 0 kr. ef þú ert viðskiptavinur Símans.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.