Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 10
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR10 FRÉTTASKÝRING Hvernig var starfi háttað á nýafstöðnu þingi? Alþingismenn slógu ekki slöku við á síðustu dögum þings frekar en venjulega. Frá 7. til 11. júní komu fram 27 þingmál sem urðu að nýjum lögum. Þar kennir ýmissa grasa, bæði stór mál og smærri fengu þinglega meðferð og eru nú þjóðinni lög. Nokkuð vel af sér vikið ef haft er í huga að á yfirstandandi þingi voru samþykkt 104 lög og var fyrsta þing- skjalið lagt fram 7. októ- ber 2010. Meðal þeirra mála sem urðu að lögum á síðustu metrunum má nefna kvótafrumvarpið hið minna. Það kveður á um aukinn kvóta til strandveiða, færslu veiði heimilda í pott og hækkun veiðileyfisgjalds. Breytingarnar urðu þó ekki eins róttækar og ríkisstjórnin hafði stefnt að. Þegar til þess er litið að stóra frumvarpið um fiskveiði- stjórnun var sett í nefnd fram á haustið má segja að ríkisstjórnin hafi verið gerð afturreka með rót- tækar breytingartillögur og þurft að sættast á málamiðlun. Merkilegar breytingar Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir mikil tíma- mót hafa orðið á starfsháttum Alþingis þegar lög um breytingar á þingsköpum voru samþykkt. Þau muni hafa mikil áhrif á þingstörfin til hins betra. „Lögin styrkja eftir- litshlutverk Alþingis og bæta alla lagasetningu,“ segir Ásta Ragn- heiður. Samkvæmt lögunum fækkar nefndum þingsins umtalsvert og skilyrt er að enginn þingmaður eigi sæti í fleiri en tveimur fasta- nefndum. Ásta Ragnheiður segir að lögin muni auka eftir- litshlutverk þingsins með framkvæmdarvaldinu og styrkja minnihluta á þingi. Full samstaða var um breytingarnar og er Ásta Ragnheiður sérstaklega ánægð með það, enda sé mjög mikilvægt að sátt sé um breytingar á þingsköp- um. Unnið hefur verið að þeim undanfarin tvö ár. Af öðrum lögum nefnir Ásta sérstaklega lög um rann- sóknarnefndir, en slíka lagsaetn- ingu hafi algjörlega vantað hér á landinu. Mörg þingmannafrumvörp Ásta Ragnheiður segir að hún hafi unnið að því frá því að hún varð þingforseti að bæta starfshætti þingsins. Hún hafi verið mjög iðin við að reka á eftir framkvæmdar- valdinu og hvetja ráðherra til að koma fyrr með mál inn á Alþingi. „Ég vonast til að það verði minna um að mál komi seint fram. Inn í þingsköpin sé verið að setja ákvæði sem geri ráðherrum það erfiðara fyrir, mál þurfi að liggja frammi í að minnsta kosti fimm daga áður en þau verða tekin fyrir og aukinn meirihluta þurfi til að það sé gerlegt. „Það hefur viljað brenna við að mál hafa komið of seint inn og gagnrýni á það er réttmæt. Ég hef hvatt ráðherra til að koma fyrr inn með málin, enda eru þau oft til- búin og hafa kannski ekki fengist afgreidd á síðasta þingi.“ Ásta segir það eiga við um þó nokkur mál núna sem geti farið á dagskrá strax í september, en þing kemur saman að nýju 2. septem- ber. „Á þriðja tug stjórnarfrum- varpa eru nánast tilbúin, allavega komin úr nefnd og ættu að geta farið strax á dagskrá. Síðan eru mál í nefndum sem þarf að leggj- ast yfir,“ segir Ásta, en nefndirnar hefja vinnu sína strax í ágúst. Óvenju mörg þingmannafrum- vörp urðu að lögum núna, eða 25. Það er mikil breyting frá því sem var fyrir nokkrum árum þegar aðeins eitt eða tvö frumvörp þing- manna urðu að lögum. Þá voru 43 þingmannatillögur samþykktar, sem er einnig óvenju mikill fjöldi. 27 ný lög á 5 starfsdögum Fjöldi laga var samþykktur á síðustu starfsdögum þings fyrir sumarfrí. Ber þar hæst minna kvótafrum- varpið, bandorm um ríkisfjármál og lög um þingsköp. Eftirlitshlutverk gegn framkvæmdarvaldi aukið. ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR ALÞINGI Alþingismenn afgreiddu fjölda mála á nýafstöðnu þingi. Ný lög um þing- sköp eiga að bæta starfshætti þingsins og auka eftirlitshlutverk þess gagnvart fram- kvæmdarvaldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ 104 frumvörp urðu að lögum ■ 25 þeirra voru þingmannafrum- vörp ■ 346 skriflegar fyrirspurnir ■ 41 á enn eftir að svara ■ 112 munnlegar fyrirspurnir ■ 43 tillögur til þingsályktunar samþykktar Tölfræði dagskrá fyrir alla sem vilja brjóta upp daginn í góðum félagsskap Tilbreyting í júlí fyrir eldri borgara DAGSKRÁ TILBREYTINGAR: Afþreying; Skemmtun; í heimsókn) Raggi Bjarna Sigurður Guðmundsson Þórarinn Eldjárn Kristín Marja Baldursdóttir Nánari upplýsingar eru veittar á www.sinnum.is eða í síma 770 2221. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst með því að senda tölvupóst á sinnum@sinnum.is eða hringja í síma 770 2221. sinnu m Meðal þeirra frumvarpa sem urðu að lögum á síðasta starfsdegi þingsins má nefna bandorm um ríkisfjármál. Frumvarpið var eitt þeirra sem komu fram eftir að framlagningarfrestur rann út, en það skýrist fyrst og fremst af því að í því er að finna aðgerðir sem samið var um í kjarasamningum. Í frumvarpinu er að finna breytingar á lögum um tekjuskatt, persónu- afslátt, starfshætti Ríkisskattstjóra, virðisaukaskatt, gjald á áfengi og tóbaki, sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, skyldutryggingu lífeyrisréttinda og stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Víðfeðmur bandormur um ríkisfjármál Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is SAMGÖNGUMÁL Ferðum Herjólfs seinkaði í gærmorgun vegna bil- unar. Herjólfur bilaði á mánudag og þurfti að fella niður ferðir skipsins. Unnið var að viðgerðum aðfaranótt þriðjudags og fyrsta ferð var farin klukkan 11 í gær- morgun. Bæta þurfti við tveimur ferðum í gær til að koma skipinu aftur á áætlun. Eimskip baðst í gær velvirðingar á töfum. - þeb Aukaferðum var bætt við: Seinkun á ferð- um Herjólfs HERJÓLFUR Bilun í skipinu varð til þess að áætlun raskaðist í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Skólar sameinaðir í Garði Bæjarstjórn Garðs samþykkti á síðasta fundi sínum að sameina grunnskóla og tónlistarskóla bæjarins. Skólarnir verða í sama húsnæði og verður einn skólastjóri ráðinn. REYKJANES FEÐGAR VERJAST ÖSKU Maður ber son sinn á öxlunum í gegnum öskumistur í bænum Villa La Angostura í suður- hluta Argentínu í gær. Askan kemur úr eldfjallinu Puyehue-Cordon Caulle í Síle, sem gaus fyrir tæpum hálfum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Engar breytingar verða á samsetningu OMX Iceland 6-hlutabréfavísitölunnar, sem tekur gildi um mánaðamótin. Í vísitölunni eru sex skráð fyrir- tæki sem mest er verslað með á hlutabréfamarkaði. Samsetning vísitölunnar er endurskoðuð á sex mánaða fresti og tekur ný samsetning almennt gildi um áramót og 1. júlí ár hvert. Í Úrvalsvísitölunni verða sem fyrr færeysku fyrirtækin Atlantic Petroleum, Atlantic Airways og Bank Nordik (áður Færeyjabanki). Íslensku félögin eru Icelandair Group, Marel og Össur. - jab Engar breytingar á vísitölunni: Þrjú færeysk félög á aðallista KAUPHÖLLIN ÞVEGIN Samsetning Úrvalsvísitölunnar er endurskoðuð tvisvar á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Vélarvana við Garðskaga Björgunarsveitin Suðurnes kom tveimur mönnum í vélarvana báti til hjálpar undan ströndum Garðskaga í hádeginu í gær. Mennirnir voru við sjóstangveiðar á litlum báti sem gekk fyrir utanborðsmótor. REYKJANES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.