Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 24
15. JÚNÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR2 ● golf ● kynning
Steve Williams, sem hefur verið
kylfusveinn Tigers Woods á
þrettán stórmótum, verður kylfu-
sveinn Adams Scott það sem eftir
lifir af U.S. Open, þar sem Woods
er meiddur.
Woods dró sig úr keppni á U.S.
Open í síðustu viku vegna meiðsla
og óvíst er hvenær hann verður
fær um að keppa að nýju. Fljótlega
eftir að ljóst var að hann yrði ekki
meðal keppenda fékk kylfusveinn
hans, Steve Williams, upphringingu
frá hinum þrítuga Ástrala Adam
Scott, sem nýlega sleit samstarfi
við kylfusvein sinn Tony Navarro.
Ekki er ljóst hversu lengi sam-
starf þeirra Williams og Scotts
varir, því enn er óvíst hve lengi
Woods verður frá keppni, en haft er
eftir Mark Steinberg á vef síðunni
golfchannel.com að alveg eins
og Woods sé ósáttur við að missa
af stórmóti þá gildi það sama um
Williams, sem hafi því gripið tæki-
færið fegins hendi. - fsb
● Líkt og í öðrum boltaíþróttum
gildir sú gullna regla í golfi að
missa ekki sjónar á kúlunni. Slíkt
hefur mikið að segja upp á hversu
löng höggin eru en reynsla kylf-
inga er sú að höggin eru styttri ef
einbeitingin er ekki í lagi.
● Það er ekki sjálfgefið að menn
kunni þá list að horfa á kúluna.
Að tileinka sér þá tækni er hins
vegar afar mikilvægt og skiptir
ekki máli hvort kúlan er í grasi,
glompu, brekku eða annars stað-
ar, kylfingurinn þarf alltaf að sjá
kúluna fullkomlega. Talið er að
flest mistök í golfi megi rekja til
þess að kylfingurinn missir ein-
beitinguna og þar með sjónar á
kúlunni, jafnvel bara eitt augna-
blik.
● Þótt kylfingum þyki það eflaust
mun skemmtilegra að spila golf
í félagsskap getur hringur þar
sem golfarinn er einn með sjálf-
um sér skilað honum miklu betri
árangri í að fínpússa ýmis tækni-
leg atriði. Gott er að velja tíma
dags þar sem lítil umferð er á
golfvellinum og hægt er að rölta
um völlinn í rólegheitum.
● Algengt er að golfarar noti
ekki rétt grip, jafnvel reyndir
golfarar. Það getur haft veruleg
áhrif og jafnvel lækkað forgjöf-
ina á stuttum tíma ef gripið er
leiðrétt. Ráð er að leita til golf-
kennara ef kylfingar eru í vand-
ræðum með gripið.
● Þurfi að betrumbæta púttið er
gott að yfirfara nokkur einföld
en þýðingarmikil atriði, sem geta
haft mikla þýðingu inni á flötun-
um. Eitt veigamesta atriðið þar
er gripið, sem þarf að vera létt
og mun léttara en í öðru spili í
golfinu. Annað ekki síður mikil-
vægt atriði er að gefa sér tíma
og vera tilbúinn þegar kemur að
manni að gera. Slíkt flýtir fyrir
leik.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
s. 512 5462 og Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is s. 512 5439.
Golfarar um allt land hópast nú út á græna velli, leggja alúð við
að fullkomna sveifluna og pútt á flötum. Nokkrir voru fengnir til
að veita eftirfarandi ráð.
Ráð fyrir golfglaða nýliða
Steve Williams hefur verið kylfusveinn Tigers Woods á þrettán stórmótum, en er nú
tímabundið genginn til samstarfs við Adam Scott.
Kylfusveinn Woods með Scott
Til að ná góðum tökum á golfíþróttinni
skiptir máli að gefa sér tíma og spila í
rólegheitum, sérstaklega til að byrja
með.
Ef kylfingar eru í vandræðum með
gripið, sveifluna eða annað sem þeir
halda að þeir þurfi leiðsögn með er
hægt að leita til golfkennara og skrá
sig hjá honum í eina eða fleiri kennslu-
stundir.
www.golfkortid.is
23 golfvellir
eitt kort
9.000 kr. einstaklingskort
14.000 kr. fjölskyldukort
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI m.visir.isFáðu Vísi í símann!
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.