Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 10
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING
Hvernig var starfi háttað á nýafstöðnu
þingi?
Alþingismenn slógu ekki slöku við
á síðustu dögum þings frekar en
venjulega. Frá 7. til 11. júní komu
fram 27 þingmál sem urðu að
nýjum lögum. Þar kennir ýmissa
grasa, bæði stór mál og smærri
fengu þinglega meðferð og eru nú
þjóðinni lög. Nokkuð vel
af sér vikið ef haft er í
huga að á yfirstandandi
þingi voru samþykkt 104
lög og var fyrsta þing-
skjalið lagt fram 7. októ-
ber 2010.
Meðal þeirra mála
sem urðu að lögum á
síðustu metrunum má
nefna kvótafrumvarpið
hið minna. Það kveður
á um aukinn kvóta til
strandveiða, færslu veiði heimilda
í pott og hækkun veiðileyfisgjalds.
Breytingarnar urðu þó ekki eins
róttækar og ríkisstjórnin hafði
stefnt að. Þegar til þess er litið
að stóra frumvarpið um fiskveiði-
stjórnun var sett í nefnd fram á
haustið má segja að ríkisstjórnin
hafi verið gerð afturreka með rót-
tækar breytingartillögur og þurft
að sættast á málamiðlun.
Merkilegar breytingar
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, segir mikil tíma-
mót hafa orðið á starfsháttum
Alþingis þegar lög um breytingar
á þingsköpum voru samþykkt. Þau
muni hafa mikil áhrif á þingstörfin
til hins betra. „Lögin styrkja eftir-
litshlutverk Alþingis og bæta alla
lagasetningu,“ segir Ásta Ragn-
heiður.
Samkvæmt lögunum fækkar
nefndum þingsins umtalsvert og
skilyrt er að enginn þingmaður
eigi sæti í fleiri en tveimur fasta-
nefndum. Ásta Ragnheiður segir
að lögin muni auka eftir-
litshlutverk þingsins með
framkvæmdarvaldinu og
styrkja minnihluta á þingi.
Full samstaða var um
breytingarnar og er Ásta
Ragnheiður sérstaklega
ánægð með það, enda sé
mjög mikilvægt að sátt sé
um breytingar á þingsköp-
um. Unnið hefur verið að
þeim undanfarin tvö ár.
Af öðrum lögum nefnir
Ásta sérstaklega lög um rann-
sóknarnefndir, en slíka lagsaetn-
ingu hafi algjörlega vantað hér á
landinu.
Mörg þingmannafrumvörp
Ásta Ragnheiður segir að hún hafi
unnið að því frá því að hún varð
þingforseti að bæta starfshætti
þingsins. Hún hafi verið mjög iðin
við að reka á eftir framkvæmdar-
valdinu og hvetja ráðherra til að
koma fyrr með mál inn á Alþingi.
„Ég vonast til að það verði
minna um að mál komi seint fram.
Inn í þingsköpin sé verið að setja
ákvæði sem geri ráðherrum það
erfiðara fyrir, mál þurfi að liggja
frammi í að minnsta kosti fimm
daga áður en þau verða tekin fyrir
og aukinn meirihluta þurfi til að
það sé gerlegt.
„Það hefur viljað brenna við
að mál hafa komið of seint inn og
gagnrýni á það er réttmæt. Ég hef
hvatt ráðherra til að koma fyrr inn
með málin, enda eru þau oft til-
búin og hafa kannski ekki fengist
afgreidd á síðasta þingi.“
Ásta segir það eiga við um þó
nokkur mál núna sem geti farið á
dagskrá strax í september, en þing
kemur saman að nýju 2. septem-
ber. „Á þriðja tug stjórnarfrum-
varpa eru nánast tilbúin, allavega
komin úr nefnd og ættu að geta
farið strax á dagskrá. Síðan eru
mál í nefndum sem þarf að leggj-
ast yfir,“ segir Ásta, en nefndirnar
hefja vinnu sína strax í ágúst.
Óvenju mörg þingmannafrum-
vörp urðu að lögum núna, eða 25.
Það er mikil breyting frá því sem
var fyrir nokkrum árum þegar
aðeins eitt eða tvö frumvörp þing-
manna urðu að lögum. Þá voru 43
þingmannatillögur samþykktar,
sem er einnig óvenju mikill fjöldi.
27 ný lög á 5 starfsdögum
Fjöldi laga var samþykktur á síðustu starfsdögum þings fyrir sumarfrí. Ber þar hæst minna kvótafrum-
varpið, bandorm um ríkisfjármál og lög um þingsköp. Eftirlitshlutverk gegn framkvæmdarvaldi aukið.
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
ALÞINGI Alþingismenn afgreiddu fjölda mála á nýafstöðnu þingi. Ný lög um þing-
sköp eiga að bæta starfshætti þingsins og auka eftirlitshlutverk þess gagnvart fram-
kvæmdarvaldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ 104 frumvörp urðu að lögum
■ 25 þeirra voru þingmannafrum-
vörp
■ 346 skriflegar fyrirspurnir
■ 41 á enn eftir að svara
■ 112 munnlegar fyrirspurnir
■ 43 tillögur til þingsályktunar
samþykktar
Tölfræði
dagskrá fyrir alla sem vilja brjóta upp daginn í góðum félagsskap
Tilbreyting í júlí
fyrir eldri borgara
DAGSKRÁ TILBREYTINGAR:
Afþreying;
Skemmtun;
í heimsókn)
Raggi Bjarna
Sigurður Guðmundsson
Þórarinn Eldjárn
Kristín Marja Baldursdóttir
Nánari upplýsingar eru veittar á www.sinnum.is eða í síma 770 2221. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem
fyrst með því að senda tölvupóst á sinnum@sinnum.is eða hringja í síma 770 2221.
sinnu m
Meðal þeirra frumvarpa sem urðu að lögum á síðasta starfsdegi þingsins
má nefna bandorm um ríkisfjármál. Frumvarpið var eitt þeirra sem komu
fram eftir að framlagningarfrestur rann út, en það skýrist fyrst og fremst af
því að í því er að finna aðgerðir sem samið var um í kjarasamningum.
Í frumvarpinu er að finna breytingar á lögum um tekjuskatt, persónu-
afslátt, starfshætti Ríkisskattstjóra, virðisaukaskatt, gjald á áfengi og tóbaki,
sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, skyldutryggingu lífeyrisréttinda og
stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
Víðfeðmur bandormur um ríkisfjármál
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
SAMGÖNGUMÁL Ferðum Herjólfs
seinkaði í gærmorgun vegna bil-
unar.
Herjólfur bilaði á mánudag
og þurfti að fella niður ferðir
skipsins. Unnið var að viðgerðum
aðfaranótt þriðjudags og fyrsta
ferð var farin klukkan 11 í gær-
morgun. Bæta þurfti við tveimur
ferðum í gær til að koma skipinu
aftur á áætlun. Eimskip baðst í
gær velvirðingar á töfum. - þeb
Aukaferðum var bætt við:
Seinkun á ferð-
um Herjólfs
HERJÓLFUR Bilun í skipinu varð til þess
að áætlun raskaðist í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Skólar sameinaðir í Garði
Bæjarstjórn Garðs samþykkti á
síðasta fundi sínum að sameina
grunnskóla og tónlistarskóla bæjarins.
Skólarnir verða í sama húsnæði og
verður einn skólastjóri ráðinn.
REYKJANES
FEÐGAR VERJAST ÖSKU Maður ber son
sinn á öxlunum í gegnum öskumistur
í bænum Villa La Angostura í suður-
hluta Argentínu í gær. Askan kemur
úr eldfjallinu Puyehue-Cordon Caulle
í Síle, sem gaus fyrir tæpum hálfum
mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Engar breytingar verða
á samsetningu OMX Iceland
6-hlutabréfavísitölunnar, sem
tekur gildi um mánaðamótin. Í
vísitölunni eru sex skráð fyrir-
tæki sem mest er verslað með á
hlutabréfamarkaði.
Samsetning vísitölunnar er
endurskoðuð á sex mánaða fresti
og tekur ný samsetning almennt
gildi um áramót og 1. júlí ár
hvert. Í Úrvalsvísitölunni verða
sem fyrr færeysku fyrirtækin
Atlantic Petroleum, Atlantic
Airways og Bank Nordik (áður
Færeyjabanki). Íslensku félögin
eru Icelandair Group, Marel og
Össur. - jab
Engar breytingar á vísitölunni:
Þrjú færeysk
félög á aðallista
KAUPHÖLLIN ÞVEGIN Samsetning
Úrvalsvísitölunnar er endurskoðuð
tvisvar á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vélarvana við Garðskaga
Björgunarsveitin Suðurnes kom
tveimur mönnum í vélarvana báti til
hjálpar undan ströndum Garðskaga
í hádeginu í gær. Mennirnir voru við
sjóstangveiðar á litlum báti sem gekk
fyrir utanborðsmótor.
REYKJANES