Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2011
Síðastliðið haust komu til umræðu, og síðar atkvæða-
greiðslu, á Alþingi niðurstöður
og tillögur rannsóknarnefndar
Alþingis sem starfað hafði fyrri
hluta ársins samkvæmt ein-
róma samþykkt Alþingis frá 12.
desember 2008.
Niðurstaða meirihluta þess-
arar rannsóknarnefndar var sú
að látið skyldi á það reyna fyrir
Landsdómi hvort fjórir ráðherrar
hefðu rækt ráðherraábyrgð sína
í aðdraganda hrunsins. Niður-
staða meirihluta Alþingis varð
sú að þetta skyldi aðeins gilda um
einn ráðherra, fyrrum forsætis-
ráðherra Geir H. Haarde. Tillög-
urnar um hina þrjá voru felldar.
Um þessa atkvæðagreiðslu ræði
ég ekki frekar að sinni þótt tilefni
væri til. Þetta var meirihlutavilji
Alþingis.
Í fréttaviðtölum og í Kastljósi
Sjónvarps sagði Geir H. Haarde
að hann ætlaði að „láta það eftir
sér“ að nafngreina þá menn sem
bæru höfuðábyrgð á því hvernig
fyrir sér væri komið og þar með
„fyrstu pólitísku réttarhöldum
Íslandssögunnar“. Þetta voru Atli
Gíslason, Steingrímur J. Sigfús-
son og Ögmundur Jónasson, sá
sem þetta ritar.
„Ég læt það eftir mér.“
Fljótlega varð ég þess var að
forsætisráðherrann fyrrver-
andi hafði hitt í mark gagnvart
fólki sem gjarnan vildi sjá málin
þróast á þann veg sem hér var
lagt upp með. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, prófessor
við Háskóla Íslands, lét það nú
einnig eftir sér að tjá sig um þetta
mál og upplýsti, landsmönnum
til fróðleiks, að „Ögmundur er
raunar systursonur eins skel-
eggasta stalínista á Íslandi, Stef-
áns Ögmundssonar, sem hlaut
harðasta dóminn fyrir árásina á
Alþingishúsið 30. mars 1949 ...“.
Skilgreiningin á frænda mínum
og lífsviðhorfum hans er að sjálf-
sögðu prófessorsins en dómur-
inn sem þarna er vísað til fólst
í því að móðurbróðir minn var
dæmdur í 12 mánaða fangelsi
(18 mánuði í undirrétti) og svipt-
ur kjörgengi og kosningarétti
vegna þátttöku í mótmælum
gegn inngöngu Íslands í Atlants-
hafsbandalagið. Fangelsisdómn-
um var ekki framfylgt af ótta
við viðbrögð almennings og var
safnað 27.364 undir skriftum
til stuðnings þeim sem hlutu
dóma. Undirskriftalistarnir voru
afhentir forseta Íslands árið 1952
en það var ekki fyrr en 30. apríl
1957 sem sakaruppgjöf var veitt.
Þá höfðu sjö menn, ásamt Stefáni,
verið án kosningaréttar og kjör-
gengis í fimm ár.
„Dálítið“ en ekki fráleitt?
Í leiðara Fréttablaðsins 10. júní
sagði að ýmsir leiddu nú að því
getum að við, fyrrgreindir meintir
höfuðpaurar í Landsdómsmálinu,
værum „arftakar kommúnista-
hreyfingarinnar á Íslandi sem á
sínum tíma studdi sýndarréttar-
höld í Sovétríkjunum.“ Þetta segir
ritstjórinn vera „dálítið“ langsótt
en hitt sé þó ljóst að við stöndum
að því „að þverbrjóta ýmsar regl-
ur réttarríkisins til að koma höggi
á einn mann ...“.
Geir H. Haarde má að sjálf-
sögðu láta það eftir sér að vísa
stuðningsmönnum sínum á þá
sem hann telur vera sína verstu
óvildarmenn. Og Hannes Hólm-
steinn Gissurarson má mín vegna
láta það eftir sér að vera hann
sjálfur eins og við höfum kynnst
honum svo vel í gegnum árin.
Er ritstjóranum alvara?
En ég hefði haldið að Ólafur Þ.
Stephensen, ritstjóri Fréttablaðs-
ins og leiðarahöfundur, hefði
þurft að gera betur grein fyrir
grafalvarlegum ásökunum sínum
um að reglur réttarríkisins hafi
verið þverbrotnar, til að koma
höggi á einn mann. Eða hve vel
skyldi ritstjórinn hafa gaumgæft
orðaval sitt?
Vefmiðillinn Pressan telur að
Geir H. Haarde „hafi með snjöll-
um hætti snúið vörn í sókn í máls-
vörn sinni fyrir Landsdómi“.
Eflaust kann svo að vera ef menn
kjósa að færa málsvörn úr mál-
efnalegum farvegi frammi fyrir
Landsdómi yfir í farveg pólit-
ískra ærumeiðinga. Slíkur mála-
tilbúnaður hlýtur þó að vera fleir-
um en mér umhugsunarefni.
En ég hefði haldið að Ólafur Þ. Stephen-
sen, ritstjóri Fréttablaðsins og leiðarahöf-
undur, hefði þurft að gera betur grein
fyrir grafalvarlegum ásökunum sínum um að reglur
réttarríkisins hafi verið þverbrotnar, til að koma höggi
á einn mann.
Umhugsunarefni
Landsdómur
Ögmundur
Jónasson
innanríkisráðherra
ÚR ERLENDUM LEIÐURUM
Konur ráða enn klæðaburði sínum
Húmor er eitt sterkasta vopn sem til er. Einnig þegar takast þarf á jafnalvarlegt vandamál og ofbeldi gegn konum.
Þess vegna er ekki undarlegt að farið sé í druslugöngur víða um hinn vestræna heim. Þetta byrjaði í Toronto. Lög-
reglumaður hafði hvatt námsmeyjar til þess að klæða sig ekki eins og „druslur“ þar sem það yki hættuna á að þeim
yrði nauðgað.
http://hbl.fi /opinion
Úr leiðara Hufvudsstadsbladet
TILBOÐ AÐEINS
6.995,-
PAKKATILBOÐ AÐEINS
24.900,-
TILBOÐ AÐEINS
13.995,-
PAKKATILBOÐ AÐEINS
29.900,-
TILBOÐ AÐEINS
11.995,-
KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050
MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16
TILBOÐ AÐEINS
16.995,-
AÐEINS
24.900,-
AÐEINS
19.990,-
AÐEINS
5.995,-
AÐEINS
8.895,-
TILBOÐSVERÐ
11.895,-
AÐEINS
1.695,-
SILUNGAFLUGUR
STRAUMFLUGUR
SPÚNAR MAKRÍLL
OG ORMARAÐEINS
220,-
AÐEINS
290,-
AÐEINS FRÁ
299,-
Þu færð beituna í veiði-
ferðina í Sportbúðinni.
Venjulega kostar dagurinn
aðeins 25 kr./5 MB.
Netið í
símanum
er ódýrara en
þú heldur
Notkun á Ísl
andi
, 10
0 M
B i
nn
an
d
ag
si
ns
. G
re
id
d
er
u
m
án
.g
jö
ld
s
kv
. v
er
ðs
kr
á.Prófaðu
í dag á 0 kr.
ef þú ert
viðskiptavinur
Símans.