Fréttablaðið - 15.06.2011, Qupperneq 36
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR28 28
menning@frettabladid.is
Heimildarmyndahátíðin
Skjaldborg var haldin í
fimmta sinn á Patreksfirði
um helgina og heppnaðist
vel. Jón og séra Jón eftir
Steinþór Birgisson hreppti
áhorfendaverðlaunin.
Rúmlega þrjú hundruð gestir
lögðu leið sína á heimildarmynda-
hátíðina Skjaldborg, sem haldin
var á Patreksfirði fimmta árið í
röð um hvítasunnuhelgina.
Á dagskrá voru um 20 myndir
og verk í vinnslu. Efnistök voru
fjölbreytt en bændur og bænda-
menning voru algengt stef á dag-
skránni. Í ljósi þess fór því vel á að
Ómar Ragnarsson væri heiðurs-
gestur hátíðarinnar, en hann hefur
gert aragrúa kvikmynda um fólk
á landsbyggðinni. Andri Freyr
Viðars son útvarpsmaður spjall-
aði við Ómar í Skjaldborgarbíói á
laugardags kvöld. Ómar leit þar yfir
farinn veg og sýndi brot út gömlum
verkum eftir sig og væntanlegum.
Gæði myndanna á hátíðinni í
ár voru óvenju mikil og að öðrum
ólöstuðum þóttu fimm myndir
einna sigurstranglegastar í keppn-
inni um áhorfendaverðlaunin: Jón
og séra Jón eftir Steinþór Birgis-
son; Paradox eftir Sigurð Skúlason
og Hafstein Gunnar Sigurðsson;
Ge9n eftir Hauk Má Helgason;
Bakka Baldur eftir Þorfinn Guðna-
son og Land míns föður eftir Ólaf
de Fleur. Allt merkilegar mynd-
ir sem vonandi verða teknar til
almennra sýninga áður en langt
um líður.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
á lokaballi í félagsheimilinu á
Patreksfirði að mynd Steinþórs,
Jón og séra Jón, hefði orðið hlut-
skörpust í kosningunni. Myndin,
sem jafnframt var opnunarmynd
hátíðarinnar, fjallar um séra Jón
Ísleifsson, sérlundaðan prest og
búskussa sem hraktist úr embætti
í Árnesi á Ströndum 2003, vegna
deilna við söfnuðinn.
Steinþór heimsótti séra Jón
reglulega og fylgdist með honum
áður en hann yfirgaf sóknina.
Myndin veitir merkilega innsýn
í sálarlíf óvenjulegs manns, erf-
iða sambúð hans við sóknarbörn
í fámennri sveit og vinnubrögð
kirkjunnar svo nokkuð sé nefnt.
Sérstakur Skjalborgartími, sem
tekinn var upp á föstudeginum,
var misráðinn og ruglaði margan
hátíðargestinn í ríminu. Á heild-
ina litið var hátíðin hins vegar
vel heppnuð; dagskráin var þétt
en ekki ofhlaðin og samkomur á
kvöldin sköpuðu indæla samkennd
og kunningsskap meðal sýningar-
gesta og heimilislegan brag, sem
erfiðara væri að ná fram á sam-
bærilegri hátíð í höfuðborginni.
Á fimm árum hefur Skjaldborg
náð að festa sig í sessi sem einn
af athyglisverðari menningarvið-
burðum.
bergsteinn@frettabladid.is
SKJALDBORG FESTIR SIG Í SESSI
MYND SEM GERJAÐIST Í TÆP ÁTTA ÁR
„Jón sýndi mér mikinn trúnað og hreinskilni og opnaði sig á hátt sem er
sjaldgæft að fólk geri fyrir framan myndavél,“ segir Steinþór Birgisson,
leikstjóri myndarinnar Jón og séra Jón. Hann kynntist séra Jóni Ísleifssyni í
gegnum sameiginlegan vin, Tuma Magnússon myndlistarmann. Eftir að hafa
frétt af deilunum við söfnuðinn fékk
Steinþór þá hugmynd að gera mynd
um prestinn í Árnesi.
Tökum lauk 2003. Steinþór segir
ýmislegt hafa valdið því að eftivinnsl-
an dróst á langinn í hjartnær átta ár.
„Jafnvel ákveðinn verkkvíði: ég
vissi að þetta væri afar sérstakt efni
og viðkvæmt. Ég hef alltaf unnið að
myndinni með hléum en tókst aldrei
að fara með hana í þá átt sem ég
vissi að hún yrði að fara til að heppnast. Kannski var ég ómeðvitað að hafa vit
fyrir sjálfum mér því ég var hreinlega ekki nógu þroskaður til að klára. Þetta
var verk sem þurfti að gerjast. En það var líka lán í óláni í ljósi tíðarandans.
Ég held að það sé miklu frjórri jarðvegur fyrir svona mynd eftir hrun en fyrir.“
Jón tók ekki þátt í eftirvinnslunni en Steinþór rak smiðshöggið á myndina
aðeins hálfum sólarhring fyrir frumsýningu á Skjaldborg og horfði á hana
ásamt söguhetjunni.
„Hann var hæstánægður, faðmaði mig og kyssti.“
Steinþóri þykir vænt um þau góðu viðbrögð sem myndin fékk um helgina
og ætlar að reyna að nýta sér þau.
„Það eru uppi hugmyndir um að sýna hana með viðhöfn í Reykjavík í haust
og láta síðan á reyna hvort nokkur sé reiðubúin að borga sig inn á hana.“
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 15. júní 2011
➜ Tónleikar
20.00 Friðrik Ómar og Jógvan
Hansen flytja Vinalög í Keflavíkurkirkju.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
20.00 Emil Friðfinnsson hornleikari og
Þórarinn Stefánsson píanóleikari leika á
Kammertónleikum í Norræna húsinu.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 en kr. 1.000
fyrir eldri borgara, öryrkja og félags-
menn FÍT. Ókeypis aðgangur fyrir fólk
yngra en 21 árs.
21.00 Rafhljómsveitin Captain Fufanu
heldur styrktartónleika á Faktorý fyrir
tónleikaferð sína. Einnig spila Dj Mar-
geir og Stefán Finnboga. Aðgangseyrir
er kr. 1.000.
22.00 Tónlistarkonan María
Magnús dóttir heldur tónleika á
veitingastaðnum Kryddlegnum hjörtum
við Skúlatún. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
LEIÐSÖGN UM VERK BARBÖRU ÁRNADÓTTUR Guðbjörg Kristjánsdóttir lóðsar
gesti um yfirlitssýningu Barböru Árnason í Gerðasafni klukkan 15 í dag. Þetta er síðasti sýningar-
dagur sýningarinnar Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Átján myndir eru á dagskrá hinna
árlegu Stuttmyndadaga í Reykja-
vík, sem fara fram í Bíói Paradís
í dag og á morgun. Hér gefst ein-
stakt tækifæri til að sjá það fersk-
asta í grasrót íslenskra kvik-
mynda.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir
bestu myndirnar auk áhorfenda-
verðlauna. Verðlaunamyndirnar
verða sýndar á Rúv. Aðgangur er
ókeypis en dagsrkána má finna á
bioparadis.is. - bs
Stuttmynda-
dagar hefjast
Úr myndinni Jón og séra Jón.
STEINÞÓR BIRGISSON
Mynd hans Jón og séra
Jón hlaut áhorfenda-
verðlaun Skjaldborgar.
Steinþór lauk tökum
á myndinni 2003 en
lauk eftirvinnslu tólf
stundum fyrir frum-
sýningu.
SKJALDBORGAR-
BÍÓ Rúmlega
þrjú hundruð
gestir voru á
hátíðinni í ár,
sem þótti hepp-
anast afar vel.
MYND/BJÖRN ÓMAR GUÐMUNDSSON
MYND/ARRÓ STEFÁNSSON
• Léttur og þægilegur ferðafélagi
sem er auðveldur í notkun og
eyðir litlu.
• 50cc fjórgengismótor sem
skilar 2,2 Kw/8000 rpm og er
með rafstarti og sparkstarti.
• Hámarkshraði er 45 km/klst
og ökumaður þarf annað hvort
léttbifhjólapróf eða bílpróf til
að stjórna hjólinu.
• Hjólið eyðir 2lt/100km og er
með 5,9 lítra bensíngeymir
• Eiginþyngd er 93 kg
• Aukabúnaður
-10” álfelgur
-samlit farangursbox á
bögglabera
• Númer og nýskráning
innifalin í verðinu
Linhai Prince LH-50QT
229.999kr
SPARAÐU BENSÍN!
EYÐIR AÐEINS 2LT/100KM