Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 38

Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 38
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR30 folk@frettabladid.is Nýjasta lag rapparans Eminem hefur farið fyrir brjóstið á að- dáendum Lady Gaga, en í lag- inu „A Kiss“ segir rapparinn að söngkonan sé í raun karlmaður. Hann segir þetta þó allt í gríni gert. „Stundum fæ ég bara ein- hvern brandara í kollinn og mig langar að deila honum með heim- inum, ef þið skiljið mig,“ sagði Eminem og bætir því við að hann hafi ennþá mikið dálæti á Lady Gaga. Grínast á kostnað Gaga ALLT Í GRÍNI GERT Eminem segir í nýjasta lagi sínu að Lady Gaga sé með kynfæri karlmanns. Hann segir þetta þó vera grín. SHEEN FÆR NÝJAN ÞÁTT Samkvæmt slúðursíðunni TMZ er von á nýjum sjón- varpsþætti með glaumgosanum Charlie Sheen. VIKUR eru síðan frumraun söngvarans Bruno Mars, Just the Way You Are, náði toppsætinu á Billboard-listanum. Ekkert lag hefur áður setið svo lengi á toppnum í fimmtíu ára sögu listans. Paul McCartney hefur viður- kennt að hann hafi ekki hugsað út í afleiðingarnar þegar hann lýsti því yfir fyrir fjörutíu árum að hann hygðist ekki semja fleiri lög með John Lennon. McCartney hefur almennt verið talinn sá sem leysti Bítlana upp árið 1970. Hann var í viðtali vegna fyrstu sólóplötu sinnar og sagðist ekki ætla að vinna með John Lennon aftur. Og þar með var Bítlaævintýrið úti. „Ég hef verið sagður vera mjög fljótfær. Ég verð mjög ákafur þegar ég fæ hluti á heilann og það er yfirleitt gott, þá kemur maður hlutunum í verk. Öðru hvoru getur þetta hins vegar valdið ákveðnum vand- ræðum af því að maður hugs- ar ekki út í afleiðingarnar. Og á þessum tíma hugsaði ég ekkert út í þær, ég var bara að gefa út plötu með efni sem ég kunni ákaflega vel við.“ Paul segir að hann hafi hitt hina meðlimi Bítlana mánuði áður og þar hafi John lýst því yfir að hann ætlaði að yfirgefa hljóm- sveitina. Sambandsslit Bítlanna vörpuðu skugga á útgáfu sóló- skífu Pauls en sjálfur kveðst hann vera stoltur af henni, hún hafi rutt brautina fyrir heima- gerðar plötur. Paul var upptöku- stjórinn á henni og lék á nánast öll hljóð færin sjálfur. „Þegar maður hugsar um það eru ótrú- lega margar plötur gerðar á þennan hátt í dag af því tækninni hefur fleygt mikið fram. Og í raun og veru var ég hálfgerður brautryðjandi á þessu sviði án þess að gera mér grein fyrir því.“ Hugsaði ekki út í afleiðingarnar ENDALOK BÍTLANNA Paul McCartney rifjaði það upp á dögunum þegar Bítlarnir hættu störfum. Charlie Sheen er í samninga- viðræðum við sjónvarpsmenn ytra um að fara með aðalhlut- verk í nýjum gamanþætti. Sheen fór með aðalhlutverkið í gaman- þáttunum Two and a Half Men en var rekinn fyrr á árinu og leikarinn Ashton Kutcher ráðinn í hans stað. Samkvæmt slúður- síðunni TMZ á þátturinn að vera skrifaður sérstaklega fyrir Sheen og fer beint í almennar sýningar, án þess að gera þurfi sérstakan prufuþátt eða „pilot“. Von á nýjum þætti með Charlie Sheen 20

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.