Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2011 31
Hin unga Elle Fanning fer með
eitt aðalhlutverkið í kvikmynd-
inni Super 8 sem frumsýnd var
vestanhafs á dögunum. Fanning
er dugleg að veita viðtöl til að
kynna kvikmyndina og í einu
slíku segist hún líta á leikstjór-
ann Francis Ford Coppola sem
afa sinn.
„Mér finnst eins og hann sé
ítalski afi minn. Hann hefur gefið
mér nokkur góð ráð og eitt þeirra
var að elska það sem ég geri.
Hann sagði að maður geti ekki
leikið fyrir neinn nema sjálfan
sig. Og það er satt!“ sagði Fann-
ing.
Coppola eins
og afi minn
HÆFILEIKARÍK Elle Fanning, til vinstri,
lítur á Francis Ford Coppola sem afa
sinn. Hér er hún með Sofiu Coppola.
NORDICPHOTOS/GETTY
Victoria Beckham hefur beðið
Evu Longoria um að vera guð-
móðir ófæddrar dóttur sinnar.
Beckham-hjónin eiga von á
stúlku í júlí en fyrir eiga þau
þrjá stráka, hinn tólf ára gamla
Brooklyn, hinn átta ára Romeo
og hinn sex ára Cruz. „Victoria
stakk upp á þessu við David og
þau vilja bæði að Eva verði guð-
móðirin. Henni finnst þetta mik-
ill heiður,“ sagði vinur hjónanna
við dagblaðið The Sun.
Eva verður
guðmóðir
MIKILL HEIÐUR Victoria Beckham hefur
beðið góðvinkonu sína, Evu Longoria,
um að vera guðmóðir dóttur sinnar sem
fæðist í júlí. NORDICPHOTOS/GETTY
Breskir og bandarískir fjöl-
miðlar eru eins og mý á
mykjuskán þegar Pippa
Middleton og ástamál henn-
ar eru annars vegar. Nýlega
var greint frá því að ungfrú
Middleton væri hætt með
bankastarfsmanninum Alex
Loudon en fjölmiðlar voru
ekki lengi að þefa hana uppi
á fínum veitingastað með
George Percy, syni hertog-
ans af Norðymbralandi.
Samkvæmt tímaritinu
US Weekly átti parið inni-
lega stund yfir glæsilegum
málsverði en þau færðu sig
síðan yfir í íbúð hertogason-
arins. Pippa yfirgaf hana
snemma um morguninn
eftir að hafa kvatt Percy með
kossi ef marka má sjónar-
votta. Pippa og Percy eru
reyndar vinnufélagar um
þessar mundir og ef marka
má orð eins vinar Pippu svíf-
ur engin rómantík yfir vötn-
um þegar Percy og hún eru
annars vegar. „Henni þykir
mjög vænt um George en
aðeins sem vin. Þau hafa allt-
af verið félagar.“
Ástamál Pippu í brennidepli
EFTIRSÓTT Pippa Middleton er sennilega
ein eftirsóttasta einhleypa kona Bretlands
um þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY
Það er engin önnur en leikkonan Angelina
Jolie sem er andlit nýrrar auglýsingaher-
ferðar tískuhúss Louis Vuitton.
Myndatakan fór fram í Kambódíu og var
ljósmyndarinn Annie Leibovitz bak við lins-
una. Það sem vekur athygli er að Jolie klæð-
ist sínum eigin fatnaði, er með gamla tösku
á arminum og nánast ómáluð á myndinni.
Myndin er hluti af auglýsingaherferð
tískuhússins sem ber nafnið Core Values
og á að endurspegla persónulegar sögur
myndefnisins. Jolie ættleiddi sinn fyrsta
son, Maddox, frá Kambódíu og því engin til-
viljun að föðurland hans varð fyrir valinu.
Söngvarinn Bono og Keith Richards, gítar-
leikari Rolling Stones, eru meðal þeirra
sem taka þátt í herferðinni ásamt Jolie.
Nýtt andlit Vuitton
ÓMÁLUÐ FYRIR LOUIS VUITTON Það er
ekki mikið um glamúr í nýrri auglýsinga-
herferð Louis Vuitton tískuhússins sem
skartar meðal annars Angelinu Jolie.
FRÁBÆRT
KYNNINGARTILBOÐ
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
INTRA STÁLVASKUR UNIVERSO 100D
STÆRÐ: 790 X 500 MM
INTRA UNIVERSO 150 STÁLVASKUR
STÆRÐ: 580 X 500 MM
FMM ELDHÚSTÆKI
Verð kr. 11.500.-
INTRA UNIVERSO 150D STÁLVASKUR
STÆRÐ: 1000 X 500 MM
Smiðjuvegi 76 Kópavogi S ími 414 1000 w w w.tengi . is
Baldursnesi 6 Akureyr i S ími 414 1050 tengi@tengi . is
Opið virka daga frá 8 -18
Til
bo
ðs
ver
ð:
18
.90
0,-
kr
Til
bo
ðs
ver
ð:
21
.90
0,-
kr
Til
bo
ðs
ver
ð:
24
.90
0,-
kr
Allar vörur frá Intra - Teka eru
unnar úr hágæða stálblöndu
(18/10 ryðfríu stáli).
Hágæðavörur á lágu verði