Fréttablaðið - 15.06.2011, Page 46
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR38
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér alltaf Cheerios.
Hunangs-Cheerios með mjólk.“
Níels Thibaud Girerd eða „Nilli“,
þáttastjórnandi og leikstjóri.
„Ef það kemur eitthvað fyndið þá
verður það soðið saman á staðn-
um. Við erum ekkert plana það.
Við erum auðvitað bara fengin til
að sjá um þetta vegna vitsmuna
okkar og út af því hversu glæsi-
leg við erum,“ segir Gunnar
Hansson leikari.
Gunnar og Katla Margrét
Þorgeirs dóttir verða kynnar
á leikhúsverðlaununum Grím-
unni sem afhent verða í Borgar-
leikhúsinu en sýnt verður frá
athöfninni í beinni útsendingu
á Stöð 2 annað kvöld. Gunnar er
nú á RÚV með golfþætti sína og
Katla Margrét var síðast einn af
stjórnendum Hringekjunnar á
sömu stöð en sjónvarps maðurinn
segir það ekkert tiltökumál. „Ég
er náttúrulega að harka og tek
bara þau verkefni sem mér bjóð-
ast. Ég hugsaði nú ekkert út í það
að þetta væri að skarast eitthvað.
Ég á góða vini á mörgum stöð-
um.“
Gunnar telur kynnishlutverk-
ið vera eina möguleika hans á að
komast í tæri við Grímuna eins
og sakir standi í dag, hann hafi
jú ekki staðið á leiksviði í þrjú
ár. „Með þessu kemst ég bak-
dyramegin inn og get baðað mig
í ljóma verðlaunanna.“ Hann
treystir sér hins vegar ekki
til að segja um hvor verð-
launin séu stærri í hugum
leikara; Eddan eða Grím-
an, úrvalið sé meira í Grím-
unni en þar standa til boða 77
verk miðað við kannski 5
kvikmyndir. „Ann-
ars eru leikarar
svo „hógværir“ að
þeim þykir bara
voðalega gott og
gaman þegar
þeir fá klapp á
bakið eða bara
einhvers konar
verðlaun.“ - fgg
Gunni Hans fer bakdyramegin á Grímuna
„Þessi hátíð flokkast undir svo-
kallaða A-hátíð, svo þetta er mik-
ill heiður fyrir mig,“ segir Marsi-
bil Sæmundardóttir, en hún gerði
nýverið stuttmynd sem rataði á
Palm Springs Internatinoal Short-
fest, þriðju stærstu stuttmynda-
hátíð í heimi.
Marsibil hefur lokið einu ári í
Kvikmyndaskóla Íslands og var
stuttmyndin lokaverkefni hennar á
seinni önninni. „Það er ansi magn-
að að hafa komist inn á þessa hátíð
því aðeins kvikmyndahátíðirnar í
Cannes og Sundance eru taldar
stærri,“ segir Marsibil, en myndin
ber nafnið Freyja og skartar leik-
konunni Sólveigu Arnars dóttur
í aðalhlutverki. Marsibil seg-
ist einnig hafa sent myndina inn
í aðra keppni, þar sem hún hlaut
eins konar heiðursverðlaun. „Á
þeirri hátíð má senda inn allt frá
stuttmyndum til tónlistarmynd-
banda eða heimilidarmynda, svo
framarlega sem efnið er minna en
57 mínútur. Það eru alltaf nokkr-
ir sem vinna í hverjum flokki og
myndin mín hlaut verðlaun sem
er alveg frábært,“ segir Marsibil.
Marsibil var varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins um nokk-
urt skeið en ákvað að söðla um
og hóf nám við Kvikmyndaskól-
ann. „Ég var búin að vera í pólitík
í átta ár, svo það var bara komið
fínt af henni í bili. Þegar ég var
í menntaskóla langaði mig alltaf
í einhvers konar listnám, en lífið
dró mig annað. Ég ákvað loks-
ins að fara í Kvikmyndaskólann
og þetta á virkilega vel við mig,“
segir Marsibil, en bætir þó við að
hún hafi ekki getað sinnt náminu
í vetur þar sem það sé dýrt. „Það
verður mjög gaman að komast í
skólann aftur og klára námið. Ég
er að vinna að nokkrum verkefn-
um en skólinn er dýr, svo ég veit
ekki hvenær ég næ að klára hann,“
segir Marsibil.
-ka
Stuttmynd Marsibilar vekur athygli
MARSIBIL SÆMUNDARDÓTTIR Vara-
borgarfulltrúinn sneri sér að kvikmynda-
gerð og hefur vakið athygli fyrir fyrstu
stuttmynd sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég ætla bara byrja líf mitt upp á
nýtt og stefni ótrauður á nám. Nú
er þessi tími að baki og ég ætla
bara að horfa fram á veginn,“
segir Karl Magnús Grönvold. Þrjár
vikur eru liðnar síðan Karl Magn-
ús sneri aftur heim til Íslands eftir
erfið fjögur ár í Brasilíu.
Eins og Karl greindi frá í bók-
inni Brasilíufanginn eftir Jóhann-
es Kr. Kristjánsson sem kom út í
fyrra sat hann inni í tæp fjögur ár
í rammgerðu fangelsi í Sao Paulo
fyrir kókaínsmygl. Karl var grip-
inn með sex kíló af eiturefninu og
þurfti að dúsa á bak við lás og slá
meðal glæpamanna frá 74 lönd-
um. Karl losnaði úr fangelsinu í
febrúar á síðasta ári en varð engu
að síður að halda skilorð í heilt ár,
mátti ekki yfirgefa Brasilíu né fá
sér vinnu. Hann eyddi því tím-
anum í að útvega sér ígripastörf,
meðal annars við smíðar og að
setja upp hljóðkerfi á bar. En nú er
hann loksins kominn heim, heim til
móður sinar sem studdi hann með
ráðum og dáð öll árin. „Hún er búin
að vera mamma ársins í fjögur ár!“
Karl var á leiðinni með strætó
frá Hveragerði til Reykjavíkur
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. Hann er nýkominn úr með-
ferð þar sem fólkið inni á Vogi las
bókina um dvöl hans í Brasilíu.
„Það var þarna strákur sem var
lesblindur og hafði varla opnað
bók frá því í 7. bekk en lét bókina
ekki frá sér,“ segir Karl, sem gerir
sér vonir um að geta unnið við for-
varnastarf í framtíðinni, bókin
hafi verið fyrsta skrefið á þeirri
vegferð. Hún verði vonandi öðrum
víti til varnaðar. „Það gefur auga
leið að þetta er reynsla sem ég óska
engum að upplifa.“
Karl hugðist mæta á æfingu
hjá meistaraflokki Gróttu í hand-
bolta í gærkvöldi og hafði fengið
grænt ljós hjá íþróttastjóra félags-
ins. Hann lék með félaginu í eitt
ár áður en lífið tók kollsteypu.
„Ég var mjög feginn að hafa loks-
ins fengið jákvæð viðbrögð,“ segir
Karl sem gerir sér fyllilega grein
fyrir aðstæðum sínum, það verði
til að mynda ekki hlaupið að því að
fá vinnu miðað við orðspor hans
sem sé í molum. „Maður verður
samt bara að halda áfram og ég
vil enga vorkunn. Ég ætla mér að
vinna fyrir öllu mínu.“
freyrgigja@frettabladid.is
KARL MAGNÚS GRÖNVOLD: FÓR Á FYRSTU ÆFINGUNA HJÁ GRÓTTU
ÉG VIL ENGA VORKUNN
AFTUR Í HANDBOLTANN Karl Magnús þótti ákaflega liðtækur handboltamaður og lék um tíma með bæði meistaraflokki Víkings
og Gróttu. Hann mætti í gærkvöldi á sína fyrstu meistaraflokksæfingu hjá Gróttu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
KYNNAR Gunnar Hansson og Katla
Margrét verða kynnar á Grímunni
í ár en verðlaunin verða veitt á
fimmtudagskvöld.
1. vinningur:
Volkswagen Polo 1.2 TDI diesel Trendline, 70 hestöfl,
5 gíra beinsk. frá HEKLU.
Verðmæti kr. 2.390.000
37294
2.-35. vinningur:
Utanlandsferð að eigin vali fyrir 2 eða fleiri með
Heimsferðum.
Hver að verðmæti kr. 300.000
749 13996 18051 23439 35845 43125
790 14729 18121 26942 37635 44465
5678 15127 18434 27430 38690 46134
7701 15414 19873 30063 38743 49681
9837 16468 21244 31308 39363
13095 17823 22183 33537 39620
36.-100. vinningur:
Gisting ásamt morgunverði í tvær nætur fyrir 2 auk
kvöldverðar annað kvöldið hjá einhverju Fosshótelana.
Hver að verðmæti kr. 60.000
361 5269 7667 9977 16659 21197 28046 38211 46019 50024
391 6761 7878 10454 17026 21685 28782 40416 46406 50471
688 6848 8125 12129 17488 25153 29824 40620 46465
1599 6909 8834 12148 17537 25561 34426 42491 46854
3492 6969 8908 13262 18163 25641 34902 43085 46972
4113 7005 9067 13932 20594 26191 35353 45004 48010
5227 7551 9085 14114 21193 26944 36897 45068 48648
Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindraafélagsins,
Hamrahlíð 17. Upplýsingasími 525 0000.
Birt án ábyrgðar
VINNINGASKRÁ
Vinningaskrá - vorhappdrætti 2010. Dregið 10. júní 2011