Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 48
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýtt myndband á leiðinni
Von er á nýju myndbandi frá
hljómsveitinni Hjaltalín á allra
næstu dögum. Myndbandið er við
lagið Feels Like Sugar af síðustu
plötu sveitarinnar, Terminal. Það var
leikstjórinn Rúnar Ingi Einarsson
sem gerði myndbandið. Tökum á
myndbandinu lauk reyndar fyrir
nokkrum mánuðum,
áður en sveitin hélt
í tónleikaferðalag
um Evrópu í
mars, en það
hefur tafist í
eftirvinnslu. Nú
stendur hins
vegar til að frum-
sýna það formlega í
næstu viku.
Bestur í Rúmeníu
Rúnar Rúnarsson heldur áfram
að sanka að sér verðlaunum á
kvikmyndahátíðum. Nú síðast var
hann valinn besti leikstjórinn á
alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Transsylvaníu fyrir kvikmynd sína
Eldfjall. Stuttmyndir Rúnars voru
allar verðlaunaðar í bak og fyrir og
leikstjórinn getur vel á sig blómum
bætt á næstunni því Eldfjall verður
næst sýnt á Era New Horizons-
hátíðinni í Póllandi, Karlovy
Vary í Tékklandi og á alþjóðlegu
kvikmynda hátíðinni í
München í Þýska-
landi. Þá verða
stuttmyndir Rún-
ars allar sýndar
næstkomandi
föstudagskvöld
á RÚV. - þeb, fgg
1 Leikkona hélt dauða mömmu
sinnar leyndum og hirti
ellilífeyrinn
2 Spelling reyndi að flýja en ók
á vegg
3 Séra Karl situr áfram -
þykir leitt að hafa brugðist
„væntingum“
4 Biskup rýfur þögnina
5 Sér Ólaf í Karli
Hjónin Lárus og Stefanía létu langþráðan draum rætast
árið 2003 um búskap í sveit og keyptu Garðyrkjustöðina Reykjaflöt.
Þar sinna þau garðyrkjunni af natni og sérhæfa sig í ræktun paprikna.
Lárus og Stefanía vinna hlið við hlið við ræktunina og á sumrin
vinna börnin þeirra þrjú einnig á staðnum.