Fréttablaðið - 22.06.2011, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Miðvikudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Þjóðgarðar
22. júní 2011
143. tölublað 11. árgangur
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ | KYNNINGARBLAÐ
ÞJÓÐGARÐAR
Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður Evrópu og nær yfir þrettán prósent af yfirborði Íslands. Innan þjóðgarðsins er að finna rjómann af íslenskri náttúru, sem starfsfólk þjóðgarðsins kappkostar að gera fólki aðgengilega.
Vatnajökulsþjóðgarði er skipt niður í fjögur rekstrarsvæði en þjónusta við ferðamenn er að miklu leyti í höndum landvarða sem fara til að mynda í göngur með hópum. Þjón-ustan er þó mismunandi eftir svæð-um enda er þjóðgarðurinn afar stór. Auk þjónustu landvarða er upp-lýsingum miðlað til ferðamanna í gestastofum og á upplýsingaskilt-um. Regína Hreinsdóttir og Snorri Baldursson eru þjóðgarðsverðir í Vatnajökulsþjóðgarði, Regína á suðursvæðinu og Snorri á vestur-svæðinu.
„Suðursvæði nær frá Lómagnúpi að Lóni. Gestastofa er í Skafta-felli, sem jafnframt er vinsæl-asti ferðamannastaðurinn á þess-um slóðum,“ segir Regína og getur þess að árlega komi 200.000 gest-ir, langflestir á sumrin. „Svæðið er þó líka fjölsótt á veturna því hér er opið allt árið og aðgengi gott, og auðvitað er alltaf jafnt fallegt að ganga í Skaftafellinu,“ segir hún. Í Skaftafelli eru skipulagðar tvær gönguferðir á dag, ein undir ís-lenskri leiðsögn og önnur á ensku, og barnastund er á hverjum degi. Í júlí verður farið í lengri göngu-ferðir á laugardögum.Ný spennandi svæði er að finna innan suðursvæðisins, Heinabergs-svæði á Mýrum og tvö minni svæði, Hjallanes og Hoffellsfjöllin. „Þessi svæði eru innan þjóðgarðsins og þar eru mjög skemmtilegar göngu-leiðir. Þá má nefna að við erum með landvörslu í Lónsöræfum en Um-hverfisstofnun sér um það svæði að öðru leyti,“ segir Regína
Vestursvæði þjóðgarðsins nær frá Lómagnúpi í suðri, vestur fyrir jökul og norður fyrir Vonar skarð. „Á svæðinu eru margar þekktar eldstöðvar. Grímsvötn er þar sú virkasta á landinu öllu og Bárðar-bunga ein sú stærsta. Þá má ekki gleyma Lakagígum. „Af öðrum þekktum stöðum má nefna Vonar-skarð og Tungnár öræfi, Langasjó, Eldgjá og Skælinga en Skaftár-hreppur og umhverfis ráðuneytið náðu samkomulagi í vor um að bæta þremur síðastnefnd
og Eldgjá, sem er afar dýrmæt við-bót,“ segir Snorri.Landvörslustöðvar eru þrjár á Vestursvæðinu. Í Nýjadal, en landverðir þar hafa eftirlit með Sprengisandsleið og Vonarskarði, í Hólaskjóli, þar sem eftirlit er með Langasjó, Eldgjá og Skælingum og í Blágiljum, en landverðir þar hafa eftirlit með Lakagígum.„Nýmæli á þessu svæði er fjölg-un landvarða þar sem tveir eru á hverri stöð. Frá 10. júní til 15. ágúst er skipulögð fræðsludagskrá á öllum þessum stöðum. Sú dagskrá byggist á fastri viðveru landvarð-anna og skipulögðum gönguferð-um,“ segir Snorri. Meðal þess sem verður þar í boði eru laugardags-göngur í Vonarskarð frá Nýjadal, á Gjátind frá bílastæðinu í Eldgjá og á Kambana frá Lakagígum.Að lokum nefnir Snorri að alla laugardaga í sumar verður opið húsí Jökulhei
Margbrotinn þjóðgarður
Regína Hreins-dóttir, þjóðgarðs-vörður á suður-svæði.
Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður á vestursvæði.
Austursvæði Vatnajökulsþjóð-garðs nær frá Kverkfjöllum í vestri að Lónsöræfum í austri. „Í Kverkfjöllum er margt áhuga-vert að sjá, til dæmis háhitasvæði í jöklinum og hægt að ganga á fleiri spennandi svæði, til að mynda að upptökum Jökulsár,“ segir Agnes Brá Birgisdóttir þjóðgarðsvörður á svæðinu.
Hún bendir á að landvarsla sé í Hvannalindum. „Þar eru hvorki meira né minna en Eyvindar-rústirnar sem eru merkilegar þjóð-minjar sem Kristján Eldjárn rann-sakaði á sínum tíma. Þetta er sann-kölluð eyðimerkurvin og plöntu- og dýralíf fjölskrúðugt,“ segir hún og bætir við að fræðslugöngur séu í boði um svæðið daglega klukkan 11, „nema á þriðjudögum“.Agnes minnir á að svo sé hæsta fjall landsins, utan jökla, að finna á svæðinu. „Snæfellið er gríðar-lega skemmtilegt og upp á það liggja margar gönguleiðir, meðal annars ein auðveld sem hentar fyrir fjölskylduna.“ Getur þess að þar sé líka gestastofa, Snæfells-stofa, sem er opin daglega í sumar.Frítt er í allar fræðslu göngur nema í jöklagönguna í Kfj
Hentar vel fyrir fjölskylduna
Agnes segir margt skemmtilegt að sjá á
austursvæðinu.
Innan Vatnajökulsþjóðgarðs er að finna rjómann af íslenskri náttúru. Horft yfir Skaftafellsjökul af Kristínartindum.
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Bláa lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á árlega Jónsmessugöngu laugardagskvöldið 25. júní. Gangan hefst við Sundlaug Grindavíkur kl. 20.30 en sætaferðir verða frá BSÍ og Reykjanesbæ. Gengið verður á fjallið Þorbjörn, þar sem Hreimur Örn Heimisson og Vignir Snær Vigfússon leika tónlist við varðeld. Á eftir heldur dag-skráin áfram í Bláa lóninu. www.grindavik.is
Rithöfundarnir Tobba Marínós og Ármann Reynisson geta vel hugsað sér að ferðast saman.
Færu út með
tómar tö k
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara Am rísk
gæðavara
DÓMSMÁL Embætti sérstaks sak-
sóknara ber á Lýð Guðmundsson,
stjórnarformann Bakkavarar
Group,
fjarstæðu-
kenndar sakir,
svo mjög að
hann getur ekki
orða bundist.
Þetta segir
Lýður í grein í
Fréttablaðinu
í dag.
Lýður segir
ásakanir um
að hann hafi ekki gætt hags-
muna VÍS sem stjórnar formaður
vera „galnar“. Hann gagnrýnir
rannsókn sérstaks saksóknara
og segir einnig að rannsóknar-
skýrsla Alþingis sé „morandi í
villum“.
Þá segir Lýður að honum
gremjist að horfa upp á fyrr-
verandi samstarfsmenn flækta í
rannsókn sem sé byggð á sandi.
Uppgjörið hér á landi eigi sér
engin fordæmi, og ákæra á
hendur Geir H. Haarde sé þjóð-
arskömm. - ibs / sjá síðu 13
Lýður hjá Bakkavör Group:
Sakargiftir fjar-
stæðukenndar
NEYTENDAMÁL Fjölskylda sem ætlar
að aka hringveginn í sumar þarf
að greiða um sjötíu prósentum
meira fyrir aksturinn nú en fyrir
fjórum árum, að sögn Tryggva
Þórs Herbertssonar alþingis-
manns. Hann segir Íslendingum
gert ókleift að ferðast um landið
sökum ofurskattlagningar á elds-
neyti og að vísað verði til sumars-
ins 2011 sem ferðasumarsins litla.
Í júní 2007 kostaði lítrinn af
bensíni 124 krónur en nú kostar
hann 234 krónur. Skattar á bensín-
lítra voru 64 krónur árið 2007 en
114 krónur nú.
„Samkvæmt útreikningum
Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, FÍB, í febrúar 2010 nam
eldsneytis reikningur heimilanna
vegna fjölskyldubílsins um 275
þúsund krónum í fyrra. Þar af
voru skattar 136 þúsund krónur.
Sambærilegir útreikningar fyrir
2011 eru 453 þúsund krónur og þar
af eru skattar 225 þúsund krónur.
Ráðstöfunartekjur meðalheimilis,
og þar með neysla, minnka því um
178 þúsund krónur vegna hærra
eldsneytisverðs,“ segir Tryggvi
Þór.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir félagið
hafa beint því til stjórnvalda
að lækka skatta á eldsneyti.
„Hækkun in hefur skilað sér í því
að ríkið hefur orðið af tekjum
miðað við áætlanir fyrir utan þau
neikvæðu margföldunaráhrif sem
hún hefur á verslun og viðskipti
um allt land. Við lögðum þess
vegna til við stjórnvöld að skatt-
arnir yrðu lækkaðir tímabundið.
Það hefur verið gert áður, en ekki
voru taldar forsendur fyrir því
nú,“ segir Runólfur.
„Það er orðið svo að þeir efna-
meiri hafa helst ráð á því að heim-
sækja ættingja um langan veg.
Þetta viljum við helst ekki sjá ger-
ast á okkar litla landi,“ bætir Run-
ólfur við.
Í tillögu til breytinga á lögum
sem Tryggvi Þór setti fram ásamt
öðrum var bent á að skattalækkun-
in myndi leiða beint til hækkunar
ráðstöfunartekna, einkaneyslu og
hagvaxtar. - ibs
70% dýrara að aka hringinn
Lítrinn af bensíni kostaði 124 krónur árið 2007 en 234 krónur nú. Skattar á bensínlítra voru 64 krónur en
114 krónur nú. Ofurskattar á eldsneyti draga úr umferð um hringveginn, segir Tryggvi Þór Herbertsson.
Skemmtilegur ferðafélagi
www.ms.is
Nú í nýjum
umbúðum
með
skrúftapp
a
GRÓÐURMOLD - 50 LTR
Fáðu fjóra en borgaðu fyrir
þrjá. Stykkjaverð, kr 1290
4 fyrir 3
Gerum eitthvað
Sif Sigfúsdóttir hefur opnað
viðburðasíðu fyrir alla
fjölskylduna.
tímamót 14
júní ‘07 júní ‘08 júní ‘09 júní ‘10
Útsöluverð 124 170 178 195
Skattur á lítra 67 76 83 103
Bensínkostnaður alls 24.800 34.000 35.600 39.000
Skattur alls 13.400 15.240 16.580 20.600
Sumarfrí
Eknir km 2.000 km
Eyðsla á km 10/100 km
Eyðsla samtals 200 lítrar
Þróun bensínverðs og skatta á eldsneyti
Heimild: FÍB
Apar aftur í Eden
Von er á þremur prímötum
í Eden í Hveragerði í haust.
allt 3
SÆMILEGT Í dag verður bjart V-til
í fyrstu en gæti dregið fyrir eftir
hádegið. Hálfskýjað víða annars
staðar. Líkur á síðdegisskúrum S-
og SV-til.
VEÐUR 4
7
11
8
6
7
DORGAÐ Í VEÐURBLÍÐUNNI Um fjögur hundruð börn á aldrinum sex til tólf ára tóku þátt
í dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju í Hafnarfirði í gær. Dorgveiðikeppnin hefur verið haldin undanfarin
tuttugu ár í Hafnarfirði. Veitt voru verðlaun fyrir stærsta fiskinn, flesta fiska og furðulegasta fiskinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR „Ég tel að hagsmunir
neytenda af því að fá upplýsing-
ar um tíðni tafa og fjölmiðla fyrir
þeirra hönd vegi þyngra en við-
skiptahagsmunir fyrirtækja að
halda svona upplýsingum leynd-
um,“ segir Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda.
Fréttablaðið greindi frá því
í gær að flugfélagið Iceland
Express hefði staðist áætlun í
36,2 prósentum tilvika í fyrra-
sumar. Forstjóri Iceland Express
segir stundvísina hafa batnað.
Hann segir unnið hörðum hönd-
um að því að ná stundvísi upp í 75
prósent. Þó hefur flugi félagsins
seinkað mikið í þessum mánuði.
Talsmaður neytenda getur
lögum samkvæmt beðið Isavia,
sem annast rekstur flugvalla hér-
lendis, um upplýsingar um tafir
á áætlanaflugi neiti fyrirtækið
að birta þær. Kanna þarf hvort
málið tengist broti gegn neytend-
um ef krefja á fyrirtæki um upp-
lýsingar. Isavia er opinbert hluta-
félag.
Fréttablaðið hefur óskað eftir
því að fá aðgang að gögnum
Isavia um það hvernig öll flug-
félögin hafa staðist áætlun frá í
fyrrahaust. Upplýsingafulltrúi
Isavia segir tölfræðina ekki hafa
verið gerða opinbera til þessa.
- jab / sjá síðu 6
Talsmaður neytenda getur krafist gagna um seinkanir flugfélaga á áætlunarflugi:
Upplýsingar um tafir mikilvægar
LÝÐUR
GUÐMUNDSSON
Eyjamenn í stuði
ÍBV lagði Val öðru sinni í
sumar á Vodafone-vellinum
og Þróttur sló Fram óvænt
út úr Valitor-bikarnum.
sport 22 & 23