Fréttablaðið - 22.06.2011, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2011
Nýverið var undirritaður sótt-ur heim að morgni og færður í
yfirheyrslu af starfsmönnum emb-
ættis sérstaks saksóknara (ESS) í
tengslum við rannsókn embættisins
á starfsemi VÍS. Handtakan kom
mér verulega á óvart, enda var ég
fullviss þá og er enn að ekkert ólög-
legt átti sér stað í starfsemi VÍS
þau ár sem ég tengdist félaginu.
Við skýrslutöku hjá ESS voru born-
ar á mig fjarstæðu kenndar sakir,
í raun svo fráleitar að ég get ekki
orða bundist.
Á hrunárinu 2008 skilaði VÍS
242 milljóna króna hagnaði eftir
skatta. Til samanburðar þá tapaði
Tryggingamiðstöðin 17,6 milljörð-
um og Sjóvá tapaði 30,2 milljörðum.
Ástæða þessa mikla munar er ekki
tilviljun. Þegar Exista keypti allt
hlutafé í VÍS á árinu 2006 átti VÍS
fyrir stóran eignarhlut í Kaupþingi
banka. Eftir kaupin var ákveðið
að geyma öruggustu eignir sam-
stæðunnar í VÍS en áhættusamari
eignir (t.d. hlutabréf í Kaupþingi) í
móðurfélaginu Exista. Lögum sam-
kvæmt þurfa tryggingafélög alltaf
að eiga næga sjóði til að geta mætt
framtíðartjónum. VÍS átti eftir
þessa breytingu öruggar eignir
til að mæta öllum skuldbindingum
vegna áætlaðra tjóna. Til viðbótar
átti VÍS tæpa 10 milljarða króna í
eiginfé í árslok 2008. Öldungis frá-
bær staða eftir mesta eignahrun í
sögu þjóðarinnar.
Umboðssvik gegn sjálfum mér
Þótt stefna VÍS um fjárfestingar
hafi í raun aðeins fylgt erlendum
viðmiðum taldi Fjármálaeftirlitið
(FME) rétt að rannsaka hvort góð
afkoma VÍS á árinu 2008 byggðist
á hagnýtingu innherjaupplýsinga.
Þeirri rannsókn var sjálfhætt.
FME var þó ekki af baki dottið
og nú stend ég í þeim sporum að
vera sakaður um hið gagnstæða
– að hafa misbeitt stöðu minni
hjá VÍS þannig að fjármunir hafi
tapast. ESS tók svo við keflinu af
FME og gerði lýðum ljóst að meint
brot mín vörðuðu hvorki meira né
minna en við allan auðgunarbrota-
kafla hegningar laga. Mátti ég láta
segja mér tíðindin þrisvar eins og
Njáll forðum enda hljóma sakirnar
fyrir mér, ólöglærðum manni, líkt
og ég hafi stolið peningum VÍS.
Stað reyndin er þó sú að meint brot
lúta ekki að því að ég hafi hagnast
persónu lega heldur er ég sakaður
um að hafa ekki gætt hagsmuna
VÍS sem stjórnarformaður, sem
heitir í lögfræði umboðssvik. Mér
finnst þessi ásökun galin enda var
Exista eigandi alls hlutafjár VÍS
og ég var stærsti eigandi Exista.
Með því að gæta ekki hagsmuna
VÍS hefði ég því skaðað sjálfan
mig mest.
Ruglið úr rannsóknarskýrslunni
FME er fullkunnugt um þessa for-
sögu málsins enda hafa henni verið
gerð rækileg skil í bréfa skiptum
við stofnunina. Samt er ákveðið
að leggja upp í það sem Ólafur
Hauksson, sérstakur saksókn-
ari, kallaði svo ósmekklega í við-
tali við mbl.is 1. júní „óvissuferð“.
ESS réttlætti ferðalagið með því
að fyrir lægi kæra frá FME. Emb-
ættinu ber engu að síður, áður en
lagt er upp í slíka „óvissuferð“,
að huga að réttmæti kærunnar og
hvort hún eigi við einhver rök að
styðjast. Í yfirheyrslunni varð mér
fljótt ljóst að þetta hafði ESS ekki
gert. Margar spurningar sem fyrir
mig voru lagðar voru mér óskiljan-
legar og það sem verra var spyrj-
andinn virtist ekki átta sig á þeim
heldur. Á einum tímapunkti í yfir-
heyrslunni var Rannsóknarskýrsla
Aþingis dregin upp og spurt beint
upp úr henni, eins og hún væri
hluti af rannsóknargögnunum.
Þótt væni sjúkustu sófa saksóknarar
þjóðarinnar hafi keppst við að lofa
skýrsluna fyrir „mikil gæði“, sumir
jafnvel sama dag og þessi mörg
þúsund blaðsíðna doðrantur kom
út, þá var aldrei rætt við mig né
nokkurn hjá Exista við gerð henn-
ar. Það er vitaskuld með ólíkindum
miðað við hve miklu rými er varið
í Exista í skýrslunni. Og hvað við
kemur Exista er skýrslan morandi
í villum og röngum ályktunum og
því frábað ég mér með öllu að þurfa
sitja undir slíku rugli í yfirheyrslu.
Uppgjör án fordæma
FME stærir sig af því hafa sent
nálega 70 mál til ESS frá því að
nýr forstjóri tók við. Margir hrapa
sjálfsagt að þeirri ályktun að þetta
sé til merkis um að hér hafi verið
rekið fjármálakerfi sem byggð-
ist almennt á óheiðarlegu fólki
sem skirrðist ekki við að ganga á
svig við lög. Mér finnst blasa við
að þetta séu merki um að rann-
sóknin sé komin í ógöngur. Því til
enn frekari staðfestingar nefni ég
þá staðreynd að 216 manns höfðu
réttarstöðu sakbornings í málum
sem ESS hafði til meðferðar í mars
2011. Eflaust hefur þeim fjölgað
eitthvað síðan.
„Uppgjörið“ hér á landi við
hrunið á sér engin fordæmi
erlendis. Ekkert sambærilegt á sér
stað á Írlandi eða Grikklandi svo
dæmi séu tekin. Þá hefur enginn
forstjóri banka á Wall Street verið
ákærður í kjölfar hrunsins, þótt þar
hafi allir fjárfestingar bankarnir í
raun orðið gjaldþrota. Enginn hefur
verið ákærður vegna hinna svo-
kölluðu undirmálslána í Bandaríkj-
unum, en almennt eru þau talin ein
helsta orsök þess óskapnaðar sem
skall á fjármálamörkuðum haustið
2008. Ástæðan er ekki að lögreglu-
yfirvöld í Bandaríkjunum hafi ekki
verið að skoða þessi mál, heldur að
illa hefur gengið að finna lögbrot.
Þar leyfast ekki „óvissuferðir“ eins
og ESS stundar hér. Þá má bæta því
við að enginn stjórnmálamaður í
heiminum hefur verðið ákærður í
tengslum við hrunið nema Geir H.
Haarde. Landsdómsmálið er vita-
skuld þjóðar skömm enda augljós-
lega pólitík í sinni ömurlegustu
mynd.
Óendanlega sárt
Mér gremst það mjög að horfa upp á
fyrrum samstarfsmenn mína missa
lífsviðurværi sitt og æru vegna
þess eins að þeir framfylgdu stefnu
og ákvörðunum stjórna fyrirtækja
þar sem ég var í fyrirsvari. Ég mun
standa reikningsskil gjörða minna
og óttast þau ekki. Ég hafði sjálf-
ur mikla persónulega hagsmuni af
rekstri og viðgangi þessara fyrir-
tækja. Mig tekur það óendanlega
sárt að sjá rannsakendur reyna að
flækja samstarfsmenn mína, fag-
menn með áratugareynslu á sínu
sviði, inn í rannsókn sem er byggð
á sandi. Þeir, eins og aðrir sakborn-
ingar, mega búast við því að hafa
stöðu sakbornings svo árum skipt-
ir. Óhjákvæmilega markar slíkt þá
og þeirra nánustu fyrir lífstíð. Og
þegar mál þeirra verða látin niður
falla þá mun hinn sérstaki saksókn-
ari eflaust bregða út af vananum og
sleppa því að hringja í fjölmiðla.
„Óvissuferð“ sérstaks saksóknara
Fjármál
Lýður
Guðmundsson
stjórnarformaður
Bakkavör Group
Landsdómsmálið er vitaskuld þjóðar-
skömm enda augljóslega pólitík í sinni
ömurlegustu mynd.
TILBOÐ AÐEINS
6.995,-
PAKKATILBOÐ AÐEINS
24.900,-
TILBOÐ AÐEINS
13.995,-
PAKKATILBOÐ AÐEINS
29.900,-
TILBOÐ AÐEINS
11.995,-
KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050
MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16
TILBOÐ AÐEINS
16.995,-
AÐEINS
24.900,-
AÐEINS
19.990,-
AÐEINS
5.995,-
AÐEINS
8.895,-
TILBOÐSVERÐ
11.895,-
AÐEINS
1.695,-
SILUNGAFLUGUR
STRAUMFLUGUR
SPÚNAR MAKRÍLL
OG ORMARAÐEINS
220,-
AÐEINS
290,-
AÐEINS FRÁ
299,-
Þu færð beituna í veiði-
ferðina í Sportbúðinni.
v
Gríptu tækifærið
og græjaðu þig
upp fyrir bústaðinn.
Magnaðir miðvikudagar!
4GB minnislykill
fylgir öllum
netlyklaáskriftum
í dag
Á m
eða
n b
irg
ðir
e
nd
as
t.