Fréttablaðið - 22.06.2011, Side 30
22. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR18
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars -
dóttur
Fáir þora að segja nokkuð um það upp-hátt af ótta við að vera uppnefndir
kald rifjaðir markaðsdýrkendur og frjáls-
hyggjublesar – eða jafnvel bara almennir
lúsablesar. En það er hvíslað í myrkustu
skúmaskotum samkvæma, á kaffistofunni
í gætilega völdum félagsskap, í heita pott-
inum eftir að óþekktu andlitin fara upp úr.
Spurningin liggur í loftinu: Hvað er málið
með landsbyggðina?
HÓPUR hagfræðinga felldi áfellisdóm yfir
frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra um breytingar á lögum um stjórn
fiskveiða. Stjórnarflokkarnir, einkum
þingmenn Vinstri grænna, virðast ætla að
afskrifa gagnrýnina á þeim forsendum að
málið snúist ekki aðeins um „hagfræði“
heldur einnig „byggðasjónarmið“. Það hrikt-
ir í stoðum heimsmyndar okkar einfeldning-
anna sem héldum að verið væri að endur-
skoða lögin um þessa helstu náttúruauðlind
okkar Íslendinga til að hámarka tekjur
ríkisins af fiskinum og þar með tryggja að
almenningur allur nyti góðs af honum en
ekki aðeins fáir útvaldir.
ÞESSI ósiður Alþingis að nota
óskylda málaflokka í einhvers konar
byggðastefnulegum tilgangi keyrir
fram úr öllu hófi. Alþingi samþykkti
á dögunum að stofna nýja prófess-
orstöðu við fjársveltan Háskóla
Íslands kennda við Jón Sigurðsson.
En í stað þess að láta Háskólanum
eftir að ákvarða hvar starfskrafturinn yrði
best nýttur ákvað Alþingi einhliða að starfs-
skyldur hans skyldu vera við Rannsóknar-
setur Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
AÐ troða byggðastefnu inn í alla skapaða
hluti og reyna þar með að slá tvær flug-
ur í einu höggi grefur undan upphaflega
ætlunar verkinu; að nýta fiskinn í sjónum
sem best; að efla menntakerfið. Meira að
segja nýsköpunin sem fjálglega er talað um
á tyllidögum að eigi að vera bjarg vættur
knésettrar þjóðar í kjölfar kreppu er ekki
undanskilin banvænu daðri við lands-
byggðina. Flestir sem komið hafa nálægt
sprotageiranum hér á landi hafa fengið
eftirfarandi ráð: „Flyttu höfuðstöðvar fyrir-
tækis þíns út á land“. Hvers vegna? Jú, þar
er miklu auðveldara að fá nýsköpunarstyrki.
Sjö af níu styrkjum Impru á Nýsköpunar-
miðstöð eru fráteknir fyrir landsbyggðina.
Þegar kemur að styrk til atvinnumála
kvenna sem auka á hlut kvenfólks í við-
skiptum hafa konur utan af landi forgang
fram yfir konur af höfuðborgarsvæðinu. Að
dæma starfsemi út frá staðsetningu fremur
en verðleikum getur ekki talist árangursrík
leið til að efla nýsköpun.
ÞAÐ má vel reyna að halda hverju einasta
krummaskuði með íbúafjölda teljandi á
fingrum annarrar handar í byggð. Það þarf
hins vegar að gera með hagnaðinum sem
hlýst af fiskveiði, menntun og nýsköpun en
ekki á kostnað hans.
Banvænt daður
Allt sem þú þarft
*Meðan birgðir endast
Þú færð Fréttablaðið á 26 stöðum á Suðurlandi.
Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er aðgengilegt
um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á kjarnadreifingarsvæði okkar.
Auk þess er það selt í lausasölu á kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt.
Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna eða
spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða fengið það sent
með tölvupósti daglega.
Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing.
Það fá allir afmælisblöðru*
á sölustöðum Fréttablaðsins
um land allt.
Fjöldi lausasölustaða á Suðurlandi
Jákvæðar fréttir
fyrir sumarið
Olís, Höfn
N1, Höfn
Nettó, Höfn
N1 Fossnesti, Selfossi
Minni Borg, Selfossi
Bónus, Selfossi
Olís, Selfossi
Krónan, Selfossi
Samkaup Úrval, Selfossi
Litla Kaffistofan, Ölfusi
Þrastalundur, Selfossi
Verslunin Árborg N1, Selfossi
N1, Hveragerði
Bónus, Hveragerði
Samkaup Strax, Laugarvatni
Samkaup Strax, Flúðum
Olís, Hellu
Söluskálinn Landvegamótum, Hellu
N1, Hvolsvelli
N1, Vík
N1, Vestmannaeyjum
Olís, Vestmannaeyjum
Skýlið ehf, Vestmannaeyjum
Vöruval ehf, Vestmannaeyjum
Krónan, Vestmannaeyjum
Kjarval, Vestmannaeyjum
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. ónæði, 6. átt, 8. keyra, 9. festing,
11. fisk, 12. einkennis, 14. telja, 16.
tveir eins, 17. aur, 18. frændbálkur,
20. tveir eins, 21. sleit.
LÓÐRÉTT
1. gösla, 3. samtök, 4. stífa, 5. óvild,
7. flæmi, 10. mas, 13. tilvist, 15. ögn,
16. hreinn, 19. í röð.
LAUSN
Þetta er mjög fínt en það
er eilítið einkennileg lykt...
áttirðu einhvern tímann
gæludýr?
LÁRÉTT: 2. rask, 6. sv, 8. aka, 9. lím,
11. ál, 12. aðals, 14. álíta, 16. tt, 17.
for, 18. ætt, 20. ðð, 21. rauf.
LÓÐRÉTT: 1. ösla, 3. aa, 4. skástoð,
5. kal, 7. víðátta, 10. mal, 13. líf, 15.
arða, 16. tær, 19. tu.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Geisp! Góðan... Bíddu aðeins..
Góðan daginn,
elskan.
Kannski ég ætti að
fara í bað um leið og
ég vakna.
Þá GOTT UPPELDI Nú
Hérna er bolti og
hanski og farðu
svo út að leika
þér.
Vá!
Við erum búin að skrá
þig á hafnaboltanám-
skeið og þú verður með
þinn eigin þjálfara til
að þróa hæfileika
þína og íþrótta-
anda.
Til
sölu