Fréttablaðið - 29.07.2011, Qupperneq 10
29. júlí 2011 FÖSTUDAGUR10
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Thomas Brorsen Smidt í NEI-hreyfi ngunni
Lífræn og
sykurlaus
tómatsósa
Fæst í öllum helstu verslunum á höfuðborgarsvæðinu
Hún er frábær með grillmatnum og
hollt meðlæti fyrir alla, unga sem aldna.
Þegar þú vilt sameina gæði, hollustu og
gott bragð, veldu þá Rapunzel.
N
EI-hreyfingin sem berst
gegn kynbundnu ofbeldi
hefur verið áberandi síð-
ustu vikur. Hreyfing-
in hefur í sumar unnið að átaki
undir yfirskriftinni: Ef þú fékkst
ekki samþykki – þá ertu nauðgari,
og heimsótti meðal annars Bestu
útihátíðina til að vekja hátíðar-
gesti til umhugsunar um kyn-
bundið ofbeldi. Finnborg Salome
Steinþórsdóttir og Thomas Bror-
sen Smidt taka þátt í starfi hreyf-
ingarinnar sem er allt unnið í
sjálfboðavinnu og fjármagnað
með styrkjum. Þá verður hreyf-
ingin sýnileg um verslunarmanna-
helgina þótt hún heimsæki engar
útihátíðir í þetta skiptið.
„Okkar forgangsatriði er að
berjast gegn þeirri hugmynd að
fórnarlömb nauðgana geti á ein-
hvern hátt sjálfum sér um kennt.
Ábyrgð á nauðgunum er alfarið hjá
gerandanum en því miður virðist
fókusinn í almennri umræðu oft
verða á hegðun fórnarlambsins.
Nú fyrir verslunarmannahelgina
hafa skilaboð okkar verið að á
útihátíð, rétt eins og annars stað-
ar, hefurðu rétt á því að verða
ekki fyrir ofbeldi,“ segir Finnborg
Salome, sem er 25 ára gömul og
stundar mastersnám í kynjafræði
við Háskóla Íslands.
Nauðgarar ekki skrímsli
NEI-hreyfingin var stofnuð árið
2003 og var lengst eingöngu skip-
uð körlum en það var karlahópur
Femínistafélagsins sem stofnaði
hreyfinguna. Á síðasta ári var
áherslunum í starfi hreyfingar-
innar hins vegar breytt og nú er
hún opin áhugasömum af báðum
kynjum. Thomas segir hreyf-
inguna reyna að vinna gegn öllum
birtingarmyndum kynbundins
ofbeldis. Thomas er 26 ára, hann
flutti til Íslands frá Danmörku til
að fara hér í háskólanám en hann
stundar mastersnám í kynjafræði
með Finnborgu í Háskóla Íslands.
Spurður hvers vegna ekki megi
hafa orð á ráðum til kvenna um
hvernig minnka megi líkurnar
á nauðgun svarar Thomas: „Það
er tvíþætt. Í fyrsta lagi má segja
að að baki þessu sjónarmiði sé sú
hugsun að nauðgarar séu á ein-
hvern hátt skrímsli. Þeir bara
nauðgi án þess að nokkuð sé hægt
að gera í því og menning og and-
rúmsloft skipti engu máli. Málið
er það að nauðgarar eru sjaldnast
einhver ópersónuleg skrímsli,“
segir Thomas og Finnborg bætir
við: „Fólk hugsar oft um einhvern
skuggalegan mann í húsasundi
þegar hugsað er um nauðgara en
flestar nauðganir eiga sér stað
inni á heimilum og gerendur eru í
langflestum tilfellum einhver sem
þolandinn þekkir, oft vinur eða
fjölskyldumeðlimur. Við teljum
því mikilvægara að tala til mögu-
legra gerenda og samfélagsins
alls um hvernig við getum breytt
menningunni til að minnka vand-
ann.“
Thomas segir allt eins hægt að
segja konum að eignast ekki vini
eða fara ekki út á meðal fólks, sé
hugsunin að stinga upp á leiðum
til að verjast nauðgunum. „Það er
mjög stutt í skilaboðin: Ekki sýna
þig meðal fólks, ekki klæða þig
eins og þú vilt, vertu hrædd. Og
með því að setja þá byrði á konur
ertu í raun að hefta frelsi þeirra,“
segir Thomas.
„Ég las einu sinni um fræði-
mann frá Sádí-Arabíu sem er
auðvitað ríki þar sem konum er
eingöngu leyft að hafa augu sín
sjáanleg. Þessi fræðimaður sagði
að vildu konur koma í veg fyrir
nauðganir ættu þær að hylja
annað augað. Hugmyndin var sú
að konur gætu daðrar með tveim-
ur augum en ekki einu. Þessi hug-
mynd er bara ekki í lagi, nauðgun
er aldrei fórnarlambinu að kenna,“
segir Thomas.
Boðskapnum vel tekið
NEI-hreyfingunni var boðið að
taka þátt í Bestu útihátíðinni og
þáði boðið með þökkum. Finn-
borg og Thomas segja viðbrögð-
in við boðskap þeirra hafa verið
mjög jákvæð meðal hátíðargesta.
„Upp til hópa fengum við mjög
góð viðbrögð frá bæði gestum og
auðvitað skipuleggjendunum sem
buðu okkur ásamt Quarashi. Það
vildu allir spjalla við okkur sem
var voða gaman. Og við lögðum
áherslu á þetta sem við erum allt-
af að tala um að þú hafir rétt á því
að verða ekki fyrir ofbeldi á útihá-
tíð. Að gerandinn sé sá eini sem
ber ábyrgð á nauðgunum,“ segir
Finnborg.
Spurð hvort þau lendi ekki í
fólki sem sé ósammála þeim svar-
ar Thomas: „Nei, mjög sjaldan.
Ég held að það hafi kannski eitt-
hvað með það að gera að fólk sem
er sammála okkur og opið fyrir
boðskapnum, vill gjarnan tala við
okkur en hinir kannski halda sig
til hlés. En á Bestu útihátíðinni
stoppuðum við í raun alla og þar
sem fólk var ekki að flýta sér neitt
þá var það meira en til í að tala
við okkur.“
NEI-hreyfingin heimsótti
nokkrar útihátíðir sumrin 2007 og
2008 en hyggst halda sig í Reykja-
vík um þessa verslunarmanna-
helgi.
„Okkur finnst að frumkvæð-
ið eigi að koma frá mótshaldara.
Allt okkar starf byggir á sjálf-
boðavinnu og styrkjum. Þótt við
glöð vildum væri það einfaldlega
of dýrt að fjölmenna á einhverjar
útihátíðir. Fjármagn okkar fer í að
búa til og skipuleggja herferðir og
við teljum því betur varið þannig,“
segir Finnborg og bætir við að í
haust sé von á nýrri herferð frá
hreyfingunni sem verði beint að
grunn- og framhaldsskólanemum.
Um síðustu helgi fór hin svo-
kallað Drusluganga fram á fjór-
um stöðum á landinu en boðskapur
hennar er hinn sami og NEI-
hreyfingin hefur boðað. Hreyf-
ingin tók þátt í göngunni en Tho-
mas segir hana umdeilda meðal
femínista.
„Druslugangan er nokkuð
umdeild. Allir femínistar eru auð-
vitað sammála boðskapnum, að
hegðun og klæðaburður kvenna
komi kynferðisofbeldi ekki við.
En sumir hér, og einnig erlendis
þar sem þetta hefur verið gert,
eru efins um nafnið. Að það setji
fókusinn á ákveðinn hóp kvenna;
ungar, millistéttarkonur. Sumum
finnst því að verið sé að gleyma
öðrum hópum en konur á öllum
aldri og úr öllum stéttum verða
fyrir kynferðisofbeldi,“ segir
Thomas en bætir við að hann telji
áberandi skilaboð eins og druslu-
gönguna vera réttu leiðina til að
hafa áhrif á þankagang fólks.
Menningin hefur áhrif
NEI-hreyfingin hefur verið gagn-
rýnd fyrir að leggja alla áherslu
á kynferðisofbeldi karla gagnvart
konum í ljósi þess að konur séu jú
líka gerendur í ofbeldismálum.
„Málið er það að í rúmlega 90
prósentum nauðgana er karlmað-
ur gerandinn. Meðan svo er teljum
við fullkomlega réttlætanlegt að
tala um þetta sem fyrst og fremst
vandamál karla. Þar með erum við
ekki að segja að það séu ekki til
kvenkyns gerendur og alls ekki
að gera lítið úr slíku. En að horfa
á þetta sem vandamál sem teng-
ist ekki kynjunum, ég tel það bara
ekki ganga upp,“ segir Thomas.
Spurð af hverju þau haldi að
áherslan í opinberri umræðu sé
oft á þolandann segir Finnborg:
„Við eigum auðvitað pínu bágt
með að skilja það. Ég held hins
vegar að það hafi eitthvað að gera
með það sem hefur verið kall-
að nauðgunarmenningin. Það að
menningin geri að ákveðnu leyti
lítið úr nauðgunum. Það er í raun
þetta sem við viljum vekja fólk til
umhugsunar um. Getur verið að
nauðganir séu aðeins algengari en
þær ella væru vegna þess að ekki
sé litið á nauðgun sem þann ógeðs-
lega og óæskilega atburð sem hún
er? Er það í lagi að það þyki eðli-
legt að karlar horfi á gróft klám,
að gert sé grín að nauðgunum og
sagðir klámbrandarar á kostnað
kvenna?“
Thomas bætir við að það sé auð-
vitað ekki orsakasamband þarna
á milli en að menningin hafi samt
sem áður áhrif. Hann segir nauðg-
anir og kynbundið ofbeldi mikið
vandamál á Íslandi en einhverra
hluta vegna sé það of sjaldan tekið
jafn alvarlega og ætti að gera.
„Jafnvel þótt eingöngu sé litið
á tölfræði lögreglunnar eru töl-
urnar í raun sláandi. Tölur Stíga-
móta eru svo aftur mun hærri sem
bendir til þess að þetta sé verulega
stórt vandamál,“ segir Thomas og
Finnborg bætir við: „Nýverið kom
út skýrsla um kynbundið ofbeldi á
vegum félagsmálaráðuneytisins.
Þar voru birtar niðurstöður rann-
sóknar sem gerð var haustið 2008.
Þar kemur í ljós að um 24 pró-
sent kvenna á Íslandi hafa orðið
fyrir einhvers konar kynbundnu
ofbeldi; nauðgun, kynferðislegri
áreitni og svo framvegis. Þá hafa
13 prósent orðið fyrir nauðgun eða
þá nauðgunartilraun. Það er auð-
vitað bara rosalegt.“
Að lokum segir Finnborg að svo
virðist sem lögregla og réttar-
kerfið beini áherslunni því miður
of oft að þolendunum. Þá sé ein-
kennilegt að skipuleggjendum
útihátíða finnist bara í lagi að
það eigi sér stað fjöldi nauðgana
á sömu hátíðunum ár eftir ár og
komi svo í fjölmiðla og segi að allt
hafi gengið vel.
„Við áttum okkur samt á því að
við komum boðskapnum ekki bara
fyrir í hausnum á fólki. Við getum
hins vegar vonandi vakið fólk til
umhugsunar og fengið það til að
hugsa öðruvísi um kynferðis-
ofbeldi. Takist okkur það höfum
við náð árangri.“
Vekjum fólk vonandi til umhugsunar
NEI-hreyfingin gegn kynbundnu ofbeldi hefur verið áberandi í sumar. Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Thomas Brorsen
Smidt starfa í hreyfingunni en þau hafa áhyggjur af því hve oft þolendur kynferðisbrota eru gerðir ábyrgir fyrir brotunum í
opinberri umræðu. Magnús Þorlákur Lúðvíksson tók þau tali.
ÚTBREIÐA BOÐSKAPINN NEI-hreyfingin verður sýnileg í Reykjavík um verslunarmannahelgina og mun reyna að koma boðskap
sínum áleiðis á Reykjavíkurflugvelli og víðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Nú fyrir verslunarmannahelg-
ina hafa skilaboð okkar verið að
á útihátíð, rétt eins og annars
staðar, hefurðu rétt á því að
verða ekki fyrir ofbeldi.“ FINNBORG SALOME STEINÞÓRSDÓTTIR