Fréttablaðið - 29.07.2011, Síða 14
29. júlí 2011 FÖSTUDAGUR14
timamot@frettabladid.is
Hópur íslenskra framhaldsskólanema tók þátt í Ólympíu-
keppninni í stærðfræði, IMO, sem haldin var í Amster-
dam í Hollandi dagana 16. til 24. júlí. Alls tók 101 þjóð
þátt og hlutu þrír íslensku keppendanna heiðursviður-
kenningu fyrir fullt hús stiga í dæmi. Áslaug Haralds-
dóttir var stigahæst þeirra.
„Þetta er auðvitað mjög fínt. Ég gat tvö dæmi af sex
sem voru lögð fyrir þátttakendur á tveimur dögum og
það þykir nokkuð góður árangur fyrir Íslending,“ segir
Áslaug, sem hlaut jafnframt flest stig sem íslensk stúlka
hefur fengið í keppninni. „Ég toppaði þannig eigin árang-
ur frá því á síðasta ári.“
Aðeins einu stigi munaði hins vegar að Áslaug fengi
bronsverðlaun. Henni finnst „hundfúlt“ að hafa séð á eftir
þeim. „Sérstaklega eftir á, þegar ég fattaði að mér yfir-
sást frekar augljóst atriði sem hefði gefið heil sex stig.“
Hún viðurkennir hins vegar fúslega að viðureignin hafi
verið erfið enda standist fæstir Asíuþjóðum snúning í
raunvísindum. „Það er til dæmis varla hægt að keppa við
Kínverjana sem hafa verið í einhverjum æfingabúðum
frá fimm ára aldri eða Bandaríkjamenn sem eru ótrúlega
góðir,“ bendir hún á en getur þess að í ár hafi þýsk stelpa
þó borið sigur úr býtum. „Sem sýnir að það er nú alveg
hægt.“
Telurðu að Íslendingar gætu bætt árangurinn með
annarri nálgun í stærðfræðikennslu? „Nei, það held ég
nú ekki enda er þetta öðruvísi stærðfræði en kennd er í
skólum. Gengur meira út á þrautir en venjuleg reiknings-
dæmi,“ útskýrir Áslaug sem hefur verið í æfingabúðum
frá því í júníbyrjun. „Við þjálfuðum stíft undir leiðsögn
margra góðra kennara úr HÍ og HR.“
Íslenska liðið skipuðu nemendur úr þremur framhalds-
skólum: Menntaskólanum í Reykjavík, Menntaskólanum
við Hamrahlíð og Verzlunarskóla Íslands og var Áslaug
eini fulltrúi hans. „Ég er reyndar fyrsti Verzlingurinn
sem hefur tekið þátt,“ segir hún og þvertekur fyrir að
nokkur skólarígur hafi verið milli félaganna þegar blaða-
maður spyr. „Nei, það var þá bara frekar í einhverju
gríni,“ segir hún létt í bragði.
Áslaug útskrifaðist af eðlisfræðibraut við Verzlunar-
skólann í vor og varð þá dúx, með 9,4 í meðaleinkunn.
Hvert skyldi leiðin liggja eftir það? „Ég ætla í biblíuskóla
í Fjellheim í Noregi, er kristin og langar að kynna mér
betur trúna,“ segir hún.
Áslaug segir síðan koma til greina að leggja frekari
stund á stærðfræði. „Hún liggur vel fyrir mér enda á ég
almennt frekar auðvelt með að læra. Það er nú ekki eins
og allur tíminn fari í nám. Ég á sko alveg vini!“
roald@frettabladid.is
ÁSLAUG HARALDSDÓTTIR: STIGAHÆST ÍSLENDINGA Í STÆRÐFRÆÐIKEPPNI
TOPPAÐI EIGIN ÁRANGUR
DUGNAÐARFORKUR Áslaug Haraldsdóttir tók nýverið þátt í Ólympíu-
keppni í stærðfræði. Auk hennar skipuðu liðið: Ásgeir Valfells, Benedikt
Blöndal, Haukur Óskar Þorgeirsson, Hólmfríður Hannesdóttir og
Sigurður Kári Árnason. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
BENITO AMILCARE ANDREA MUSSOLINI (1883-1945) stjórnmálamaður og einræðisherra fæddist þennan dag.
„Við verðum að vera svo sterkir að við getum horfst beint í augu við hvaða aðstæður sem vera
skal. Allt líf þjóðarinnar verður og mun verða að aðlaga sig þessu æðsta sjónarmiði.“
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Róbert Dan Jensson
frv. forstöðumaður Sjómælinga
Íslands,
andaðist á Sólvangi miðvikudaginn 27. júlí.
Kristbjörg Stefánsdóttir
Björg Dan Róbertsdóttir Oddur Kristján Finnbjarnarson
Sigrún Dan Róbertsdóttir Árni Dan Einarsson
Andri Dan Róbertsson Sigrún Eva Ármannsdóttir
Edda Dan Róbertsdóttir Kristján Jónas Svavarsson
barnabörn og barnabarnabarn
Okkar ástkæri,
Ólafur Donald Helgason
lést mánudaginn 25. júlí 2011. Jarðarförin fer fram
miðvikudaginn 3. ágúst í Fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á SÁÁ.
Hulda Ólafsdóttir
Svanhildur Tinna Ólafsdóttir
Dagmar Ólafsdóttir
Ólafur Helgi Ólafsson
Hafsteinn Óskarsson
Kristín Þorsteinsdóttir
og aðrir aðstandendur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Óskarsdóttir
Furugrund 60, Kópavogi,
lést á Landakotsspítala sunnudaginn 24. júlí.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Óskar Jónsson Hallfríður Eysteinsdóttir
Bjarni Dagur Jónsson Sólveig Magnúsdóttir
Dagur Jónsson Valdís Þórðardóttir
Rúnar Jónsson Elsa Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Ástþórs Sveins
Markússonar
Aðallandi 3, Reykjavík.
Halldóra Gísladóttir
Ólafur Svavar Ástþórsson Ásta Guðmundsdóttir
Anna Guðlaug Ástþórsdóttir Hallgrímur G. Magnússon
Ásta Ástþórsdóttir Gunnar Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Íris Sigurbjörg
Sigurðardóttir
Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum,
lést þriðjudaginn 26. júlí á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
Hafsteinn Ágústsson
Aðalheiður Hafsteinsdóttir Sigurður Ingi Ólafsson
Ágústa Hafsteinsdóttir Ástþór Jónsson
Lára Hafsteinsdóttir Einar Birgisson
Örn Hafsteinsson Sólveig Jónsdóttir
Árni Hafsteinsson
Sara Hafsteinsdóttir Þórólfur Guðnason
Svava Hafsteinsdóttir Ólafur H. Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir, mágur, afi og langafi,
Ragnar Elinórsson
Skarðshlíð 28 f, Akureyri,
andaðist laugardaginn 16. júlí á Dvalarheimilinu Hlíð.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og stuðning.
Erla Ívarsdóttir
Hanna Björk Ragnarsdóttir Páll Sigurvinsson
Ólafur Páll Ragnarsson Anna Sigríður Ragnarsdóttir
Pétur Ingi Ragnarsson Elín Þuríður Samúelsdóttir
Hjördís Elinórsdóttir Hörður Magnússon
barnabörn og langafabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Katrín Björgvinsdóttir
Þórsgötu 8, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 23. júlí. Útför hennar fer fram
í kyrrþey.
Jóhann Rúnar Sigurðsson Aðalbjörg Jónsdóttir
Björgvin Sigurðsson Ólafía Ragnarsdóttir
Vignir Sigurðsson Eyrún Valsdóttir
Svavar Sigurðsson Silvia Hromadko
barnabörn og barnabarnabarn
Merkisatburðir
1040 Stiklastaðaorrusta í Noregi. Ólafur digri veginn. Eftir
dauða sinn er hann nefndur Ólafur helgi.
1247 Hákon gamli er hylltur sem konungur Noregs bæði af
böglum og birkibeinum.
1693 Níu ára stríðið: Englendingar og Hollendingar bíða
ósigur fyrir Frökkum í orrustunni við Landen.
1858 Japanar undirrita Harris-samkomulagið sem kveður á
um vinskap og viðskipti við Bandaríkjamenn.
1900 Úmbertó 1. konungur Ítalíu er myrtur af stjórnleysingj-
anum Gaetano Bresci. Viktor Emmanúel 3. tekur við
völdum.
1907 Friðrik 8. Danakonungur kemur í heimsókn til Íslands.
Konungur ferðast víða um landið.
1934 Ríkisstjórn Hermanns Jónassonar tekur við völd-
um. Fjármálaráðherra er Eysteinn Jónsson og er hann
yngstur allra sem gegnt höfðu ráðherraembætti, 27
ára.
1957 Alþjóða kjarnorkumálastofnunin er stofnuð af Samein-
uðu þjóðunum.
1977 Þýskur bankaræningi, sem er eftirlýstur erlendis, er
handtekinn í Reykjavík með 277 þúsund mörk.
1981 Karl Bretaprins og lafði Díana Spencer ganga í það heil-
aga. Athöfnin er sýnd í beinni útsendingu um allan
heim.
1996 Windows NT 4.0 kemur út.