Fréttablaðið - 29.07.2011, Side 38

Fréttablaðið - 29.07.2011, Side 38
29. júlí 2011 FÖSTUDAGUR26 FÖSTUDAGSLAGIÐ „Ég hlakka mikið til að takast á við þetta nýja verk- efni,“ segir Erla Hlynsdóttir blaðamaður, en hún tekur við af fréttamanninum Heimi Má Péturssyni á fréttastofu Stöðvar 2. Erla hefur mikla reynslu í fjölmiðlun en hún hefur unnið á Mannlífi, DV, Vísi og Bylgjunni. „Það má segja að ég sé búin að prófa allar hliðar fjöl- miðlunar. Prentmiðla, netið, útvarp og nú sjónvarp.“ Erla er ekkert stressuð fyrir frumraun sína á skjánum en hún tekur við starfinu á næstunni. Henni finnst fyndið hversu mikill stjörnuljómi virð- ist fylgja sjónvarpsstarfinu. Sjálf ætlar hún ekki að ráðast í neinar útlitsbreytingar né byrja að æfa sig fyrir framan spegilinn. „Nei nei, ég tek þessu öllu með ró og var einmitt að hugsa um það um dag- inn þegar ég uppgötvaði að fólkinu í kringum mig fannst þetta merkilegri tíðindi en ef ég hefði byrjað að skrifa á blaði,“ segir Erla, sem gerir sér þó grein fyrir því að starfshættirnir eru öðruvísi í sjón- varpi. „Ég er glöð yfir að geta farið út úr húsi og hitt fólk. Tekið viðtöl á vettvangi í stað þess að vera fyrir framan tölvuna og í símanum allan daginn,“ segir Erla að lokum. - áp Full tilhlökkunar á skjáinn TIL LIÐS VIÐ STÖÐ 2 Erla Hlynsdóttir tekur við af fréttamanninum Heimi Má á fréttastofu Stöðvar 2. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Þetta hefur verið draumur hjá mér frá því ég byrjaði að læra förðun“ segir Eygló Ólöf Birgis- dóttir sem nýverið opnaði förðun- arskólann Mood Make Up School ásamt Magneu Elínardóttur og Díönu Björk Eyþórsdóttur. „Þegar ég sagði Magneu frá þessum draumi mínum kom í ljós að hún gekk með sama draum í maganum. Við ákváðum að sam- eina krafta okkar og höfum verið að undirbúa opnun undanfarið ár.“ Eygló hefur unnið í faginu frá því að hún útskrifaðist árið 2006, meðal annars við kennslu, sem verslunarstjóri hjá MAC og er sminka hjá Ríkissjónvarpinu. Einnig hefur hún gert fjöldann allan af auglýsingum og tísku- þáttum. Magnea hefur svipaða ferilskrá en þær tvær sjá um alla kennslu í skólanum. Díana Björk sér svo um allan rekstur en hún er menntaður förðunar- og við- skiptafræðingur. Frá því að stöllurnar opnuðu vefsíðu skólans moodschool. is fyrir stuttu hefur áhuginn verið mikill og þó nokkrir búnir að skrá sig á námskeið í haust. Kennt verður á snyrtivörur frá MAC og fá nemendur vörupakka þaðan. „Við ætlum að einbeita okkur að því að kenna nemendum okkar að vinna við fagið og leggjum áherslu á tísku, ljósmyndir og sjónvarp,“ segir Eygló en einnig verðu kennt á „airbrush” og förð- un fyrir háskerpulinsu. „Við Magnea erum á kafi í þessu og vinnum við förðun á hverjum degi. Þess vegna finnst okkur gaman að geta miðlað ein- hverju áfram til nemenda. Við höfum allar mikinn metnað og ástríðu fyrir faginu sem á eftir að endurspeglast í skólanum og kennslunni,“ segir Eygló en fyrsta námskeiðið hefst í byrjun september og eru bæði kvöld- og morgunnámskeið í boði. - áp Láta drauminn rætast og opna förðunarskóla SAMEINA KRAFTA SÍNA Þær Eygló Ólöf Birgisdóttir, Díana Björk Eyþórsdóttir og Magnea Elínardóttir eru að opna nýjan förðunarskóla sem nefnist Mood. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ísland er mjög frábrugðið Hol- landi. Það er áskorun að koma hingað,“ segir sjónvarpsframleið- andinn Barbara frá Hollandi. Hún verður stödd hér á landi fram á miðvikudag við upptökur á sjón- varpsþættinum Holland´s Next Top Model ásamt hópi Hollend- inga. Um er að ræða hollenska útgáfu af hinum vinsæla bandaríska þætti, America´s Next Top Model, sem ofurfyrirsætan Tyra Banks stjórnar. Sjö fyrirsætur eru eftir í hollenska þættinum en upphaf- lega sóttu um sex þúsund stúlkur til að fá að taka þátt. Stjórnandi er fyrirsætan fyrrverandi, Daphne Deckers. Hún lék í James Bond- myndinni Tomorrow Never Dies sem kom út 1997. „Við erum vön því að fara á hlýja og sólríka staði og höfum meðal annars farið til Suður-Afríku og Mexíkó. Hugmyndin um að heim- sækja Ísland kom upp nokkrum sinnum og á endanum ákváðum við að skella okkur hingað,“ segir Barbara en núna er verið að taka upp sjöttu þáttaröðina. „Við vorum mjög forvitin að sjá landslagið og íslensku náttúruna.“ Stúlkurnar hafa í nógu að snú- ast meðan á dvöl þeirra stendur. Í gærmorgun fóru þær í köfun, þar sem Deckers var með í för, og einnig heimsækja þær nettímarit- ið Nude Magazine, tískufyrirtæk- ið Spaksmannsspjarir og Andreu Brabin hjá Eskimo Models. Ljós- myndarinn Baldur Kristjáns- son ætlar að mynda þær, eins og Monitor greindi frá í fyrradag. Á sunnudaginn verður svo tískusýn- ing á Ingólfstorgi milli kl. 15 og 18. Þar sýna stúlkurnar föt frá tísku- hönnuðinum Steinunni Sigurðar- dóttur. „Við erum mjög stoltar að fá að vera í fötum frá henni,“ segir Barbara. Tvö ár eru liðin síðan þátttak- endur í fimmtu þáttaröð af Brit- ain´s Next Top Model komu hingað til lands. Þá hittu þær einnig And- reu Brabin, sátu fyrir í Bláa lón- inu og borðuðu þorramat í Fjöru- kránni í Hafnarfirði. Þá var hin íslenska Huggy Ragnarsson í dóm- nefndinni og sá hún einnig um að mynda stúlkurnar. freyr@frettabladid.is FRAMLEIÐANDINN BARBARA: VIÐ ERUM VÖN ÞVÍ AÐ FARA Á HLÝJA OG SÓLRÍKA STAÐI HOLLENSKAR FYRIRSÆTUR MEÐ TÍSKUSÝNINGU Á INGÓLFSTORGI Á ÍSLANDI Daphne Deckers er stödd hér á landi vegna þáttarins Holland´s Next Top Model. NORDICPHOTOS/GETTYHOLLENSKIR ÞÁTTTAKENDUR Sjö þátttakendur eru eftir í Holland´s Next Top Model. „Það er Rocket Man eins og William Shatner flytur það. Það er tímamótaverk.“ Vilhelm Anton Jónsson, Naglbítur og fjöl- miðlamaður. Kvikmyndin Contraband, í leik- stjórn Baltasars Kormáks, verður frumsýnd á næsta ári. Kvikmyndaeftirlit Bandaríkjanna hefur þegar tekið myndina til skoðunar og gefið henni stimpilinn R, en það þýðir að myndin er ekki ætluð fólki undir 17 ára aldri. Þetta þykir rétt metið hjá eftirlitinu sem kallar ekki allt ömmu sína og ræður oft úrslitum um aðsókn með ákvörðunum sínum. Spennandi verður að sjá útkomuna, en eins og fram hefur komið í Frétta- blaðinu fara Mark Wahlberg, Kate Beckinsale og Giovanni Ribisi með hlutverk í þessari endurgerð íslensku hasar- myndar- innar Reykja- vík Rotter- dam. Íslensku sumarþættirnir á RÚV virðast falla vel í kramið hjá sjón- varpsáhorfendum. Gulli byggir, Andri á flandri og Popppunktur eru allir í röð inni á topp tíu lista yfir vinsælustu þætti RÚV og ekki nóg með það, þá eru þeir nánast allir með jafn mikið áhorf: Rúm- lega 23 prósent. Kynjahlutfallið er þó frekar skakkt þar sem karl- menn stýra öllum þáttunum, en RÚV hlýtur að laga það fyrir næsta sumar. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI krakkar@frettabladid.is Krakkasíðan er í helgarblaði Fréttablaðsins Helgi Jónsson skrifar hinar frægu gæsahúðar- bækur, en er samt hræddur við ýmislegt sjálfur. Hryllingssögur sem geta ekki gerst í veruleikanum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.