Fréttablaðið - 05.08.2011, Side 4
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
27°
24°
22°
25°
26°
21°
21°
26°
21°
30°
28°
34°
18°
26°
21°
22°
Á MORGUN
5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
Hæg norðaustlæg eða
breytileg átt.
10
13
11
14
17
8
16
13
14
14
12
8
5
8
8
9
7
8 12
13
7
8
13
10
17
17
13 14 14
14
10
17
BATNAR UM
HELGINA Eftir
þungbúna viku
tekur við bjartari
kafl i um helgina.
Það dregur veru-
lega úr úrkomu til
morguns og léttir
víða til er líður á
morgundaginn.
Hitinn verður áfram
með ágætum eink-
um vestanlands en
svalara við austur-
ströndina.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 04.08.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,0716
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,45 116,01
188,37 189,29
164,26 165,18
22,049 22,179
21,258 21,384
17,983 18,089
1,4432 1,4516
183,98 185,08
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Vax upp að hnjám á snyrtistofunni Amiru
Hjá Amiru er boðið upp á allar þær
meðferðir sem við teljum
árangursríkar fyrir okkar
viðskiptavini og leggjum mikinn
metnað í að fylgjast með því
nýjasta hverju sinni.
www.amira.is
30 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
1.990 kr. GILDIR 24 TÍMA
4.500 kr.
Verð
56%
Afsláttur
2.510 kr.
Afsláttur í kr.
LÖGREGLUMÁL Sauma þurfti sextán
spor í handlegg tólf ára stúlku eftir
að Rottweiler-hundur réðst á hana í
Innri-Njarðvík í fyrrakvöld. Faðir
stúlkunnar, Ingi Þór Þórisson, segir
hana felmtri slegna eftir árásina.
Stúlkan var úti að ganga með
tveimur vinkonum sínum í nýja
hverfinu í Innri-Njarðvík eftir
kvöldmat í fyrrakvöld.
„Þær mættu konu með hund í
bandi,“ lýsir Ingi Þór atvikinu.
„Hún virtist ekki ráða við hann en
sagði við stelpurnar að þær skyldu
vera alveg rólegar, þetta væri allt í
lagi. Stelpurnar litu engu að síður
við til að fullvissa sig um að þeim
stafaði engin hætta af hundinum,
en þá skipti engum togum að hann
var búinn að rífa sig lausan og kom
æðandi til þeirra.“
Að sögn Inga Þórs stökk hund-
urinn fyrst á vinkonu dóttur hans
en náði ekki að bíta hana. Því næst
réðst hann á dóttur hans, glefsaði
fyrst í fótinn á henni og beit hana
svo í handlegginn. Það bjargaði
því að ekki fór verr að maður í rað-
húsalengju í næsta nágrenni heyrði
ópin í stúlkunum og þaut út um leið
og hann kallaði til stúlknanna. Við
það kom hik á hundinn og gátu þær
notað tækifærið og þotið inn í húsið,
ásamt manninum. Hann rétt náði að
skella hurðinni áður en hundurinn
kom þjótandi og henti sér á hana.
Eigandi hans var þá á bak og burt.
Stúlkan sem fyrir árásinni varð
var tafarlaust flutt undir læknis-
hendur, þar sem tveir læknar þurftu
að sauma sextán spor á og við oln-
boga hennar til að loka bitsárunum.
Hún er enn undir eftirliti læknis.
Sextán spor eftir bit
Rottweiler-hunds
Rottweiler-hundur réðst á tólf ára stúlku í Innri-Njarðvík í fyrrakvöld og beit
hana svo illa að sauma þurfti sextán spor í handlegg hennar. Stúlkan er felmtri
slegin eftir árásina. Hundinum hefur verið lógað. Sleit sig lausan frá eiganda.
„Það er mín trú að hundum,
sem sýna svona hegðun,
eigi að lóga undantekningar-
laust,“ segir Magnús H. Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Suður-
nesja, og kveður heilbrigðis-
eftirlitið hafa fengið skýrslu
lögreglu í Innri-Njarðvík um
málið.
„Hundaeign hefur almennt
aukist og því miður velur fólk
oft hunda eftir útliti fremur
en hvort þeir henti fyrir við-
komandi heimilislíf eður
ei. Margir standa því uppi
með mjög erfi ða hunda sem
þurfa mjög strangt og mark-
visst uppeldi. Þá fara hlutirnir
greinilega úr böndunum,
eins og þetta dæmi sannar.
Við berum öll ábyrgð á
börnunum í kringum okkur,
ekki bara eigin börnum,
heldur öðrum börnum
einnig. Fólk þarf því að sýna
skynsemi og ábyrgð þegar
það fer út í að fá sér hund
og halda hann. Það á eng-
inn að halda hund nema
hann hafi fullkomna stjórn á
dýrinu undir öllum kringum-
stæðum.“
Á undantekningarlaust að lóga
Í grein í Fréttablaðinu síðastliðinn
þriðjudag urðu mér á þau mistök að
segja að eftir seinni heimsstyrjöld
hefðu látist í Sachsenhausen-búð-
unum 20 þúsund pólitískir fangar og
stríðsfangar af þeim 60 þúsundum
sem þar voru hýstir. Hið rétta er að
tala þeirra sem létust meðan búðirnar
voru undir sovéskri stjórn var 12 þús-
und. Árið 1950 var fangelsið lagt niður
en lögregla og her Austur-Þýskalands
tóku við svæðinu. Ef til vill mátti skilja
greinina sem svo að dauðsföllin hefðu
einnig verið á þessu síðara tímabili
austur-þýsku lögreglunnar. Svo var
ekki. Beðist er velvirðingar á þessu.
Margrét S. Björnsdóttir
LEIÐRÉTTING
Lögreglunni var gert viðvart um
árás hundsins og hafði hún fljót-
lega uppi á honum og tók hann í sína
vörslu. Honum hefur nú verið lógað.
„Dóttir mín slasaðist ekki bara
á líkama heldur einnig á sálinni,“
segir Ingi Þór. „Hún svaf eiginlega
ekkert nóttina eftir árásina og er
mjög skelkuð ennþá.“
jss@frettabladid.is
SLÖSUÐ Sauma þurfti sextán spor í handlegg
tólf ára stúlku eftir hrottalega árás hundsins á
hana.
KJARAMÁL Forstöðumenn ríkis-
stofnana hafa leitað til umboðs-
manns Alþingis vegna deilna við
kjararáð og íhuga að fara með
málið fyrir dómstóla. Deilan
snýst um það að árið 2008 voru
laun þeirra lækkuð og síðar
var ákveðið með bráðabirgða-
ákvæði að þessi lækkun ætti að
gilda til 1. desember síðastlið-
ins. Magnús Guðmundsson, for-
maður Félags forstöðumanna
ríkisstofnana, sagði á frétta-
vef Vísis að þar sem setja hefði
þurft lög um þessa tímabundnu
launalækkun hefðu launin átt
að hækka aftur að þessu tíma-
bili loknu. Hann telur að lækk-
unin hafi numið á bilinu 9 til 15
prósent. - jse
Forstöðumenn ríkisstofnana:
Úrsérgengin
launalækkun
LÖGREGLUMÁL Tvær nauðganir sem
áttu sér stað um verslunarmanna-
helgina voru kærðar í gær. Kona á
þrítugsaldri kærði mann til lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir
nauðgun og hefur hann verið yfir-
heyrður. Nauðgunin er sögð hafa átt
sér stað í heimahúsi, en maðurinn
og konan þekkjast. Maðurinn ber
fyrir sig minnisleysi, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu.
Þá barst lögreglu önnur kæra
vegna nauðgunar á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Selfossi,
sem gat ekki veitt viðtal vegna
anna, eru nú fjögur nauðgunarmál
til rannsóknar þar eftir Þjóðhátíð,
en þar af hafa tvær verið kærðar.
Einn maður situr í gæsluvarð-
haldi og rennur úrskurðurinn út í
dag. Maðurinn kærði gæsluvarð-
haldsúrskurðinn til Hæstaréttar,
þar sem hann var staðfestur.
Lögreglan á Selfossi lýsir nú eftir
vitnum að síðari nauðguninni sem
var kærð í gær, en hún mun hafa
átt sér stað aðfaranótt mánudags-
ins 1. ágúst á tímabilinu frá klukk-
an 1.30 til 2 við hljóðskúr í Herjólfs-
dal. Lýst er eftir vitnum að átökum
manns eða tveggja manna við konu
á þrítugsaldri á þessum stað á þess-
um tiltekna tíma.
Neyðarmóttökum sjúkrahúsa
víðs vegar um landið hafa borist
tilkynningar um að minnsta kosti
tíu nauðganir eftir helgina, sam-
kvæmt fréttum RÚV í gærkvöld.
Þar af voru sex á Þjóðhátíð í Eyjum.
Páll Scheving Ingvarsson, for-
maður Þjóðhátíðarnefndar, vill
láta setja upp eftirlitsmyndakerfi
í Herjólfsdal fyrir næstu hátíð. Þá
hafa Stígamót og Nei-hópurinn sagt
að ekki sé útilokað að samtökin hafi
sjálfboðaliða í Eyjum á næsta ári,
verði þess óskað. - sv
Enn bætast við nauðgunartilkynningar eftir síðustu verslunarmannahelgi eftir því sem líður á vikuna:
Tvær nauðganir til viðbótar kærðar
EFTIR ÞJÓÐHÁTÍÐ Lögreglan á Selfossi
rannsakar nú fjórar nauðgunartilkynn-
ingar. Þar af hafa tvær verið kærðar
formlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
HAÍTÍ, AP Öldungadeild þingsins
á Haítí hafnaði nýverið ráðn-
ingu Bernards Gousse í embætti
forsætisráð-
herra lands-
ins. Gousse var
hafnað vegna
þátttöku hans
í ofsóknum á
hendur stuðn-
ingsmönnum
Jean Bertrand
Aristide, fyrr-
verandi for-
seta.
Þetta er í annað sinn sem
þingið hafnar tilnefningu frá
forsetanum Michel Martelly,
sem tók við völdum fyrir um
þremur mánuðum. Mun það
eflaust tefja enn frekar fyrir
myndun ríkisstjórnar og endur-
reisnarstarfi eftir jarðskjálft-
ann sem skók eyjuna í fyrra. - þj
Stjórnarkreppa á Haítí:
Tilnefningu for-
setans hafnað
MICHEL MARTELLY
HJÁLPARSTARF Meira en 29 þúsund
börn undir fimm ára aldri eru
látin eftir þurrka og hungursneyð
í Sómalíu síðustu þrjá mánuði.
Sameinuðu þjóðirnar segja að
640 þúsund börn í landinu séu
vannærð, sem bendir til þess að
tala látinna barna muni hækka.
Stofnunin stækkaði í gær svæðið
þar sem hungursneyð ríkir. Af
þeim 7,5 milljónum manna sem
þar búa þurfa nú 3,2 milljónir
Sómala á bráðahjálp að halda.
Að sögn Sameinuðu þjóðanna
þarf hundruð milljóna dollara til
viðbótar til að koma til móts við
ástandið í Austur-Afríku. - þeb
Hungursneyð í Austur-Afríku:
29 þúsund börn
látin í Sómalíu
VIÐ FLÓTTAMANNABÚÐIR Mikill fjöldi
fólks hefur flúið yfir til nágrannalanda
í von um mat. Þessi fjölskylda kom til
Keníu eftir átta daga göngu.
NORDICPHOTOS/AFP