Fréttablaðið - 05.08.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.08.2011, Blaðsíða 42
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR30 sport@frettabladid.is GRINDAVÍK hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í Iceland Express-deild kvenna og Lengjubikarkeppni kvenna. Í stað þess hefur liðið verið skráð til þátttöku í 1. deildinni. Fjölnir, sem féll úr úrvalsdeildinni í vor, tekur sæti Grindavíkur í deildinni og verða því átta lið í henni sem fyrr. Grindvíkingar stefna á að byggja upp nýtt lið á næstu árum. HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn Logi Geirsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra axlarmeiðsla. Þetta tilkynnti hann í gær. „Síðastliðin tvö ár hef ég verið að glíma við meiðsli í hægri öxl sem hafa gert mér erfitt fyrir að spila handbolta af fyrri krafti, þá íþrótt sem ég hef elskað frá barnsaldri,“ skrifaði Logi, sem segir að ferill sinn hafi farið fram úr hans björtustu vonum. Tvívegis varð hann EHF-bikar- meistari með Lemgo auk þess sem hann vann tvívegis til verð- launa á stórmótum með íslenska landsliðinu. Nú síðast varð hann Íslands- meistari með FH en Logi er einungis 28 ára gamall. - esá Logi Geirsson hættur: Hættur vegna meiðslanna LOGI Hér í leik með FH á síðasta keppnistímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Pepsi-deild kvenna Stjarnan - Valur 2-1 0-1 Laufey Ólafsdóttir (23.), Ásgerður Baldurs- dóttir, víti (67.), 2-1 Helga Franklínsdóttir (90.+1) ÍBV - Breiðablik 2-2 0-1 sjálfsmark (38.), 1-1 Danka Podovac (50.), 1-2 Petra Rut Ingvadóttir (65.), 2-2 Danka Podovac, víti, (84.) Fylkir - Þór/KA 3-1 1-0 Heiða Dröfn Antonsdóttir (10.), 1-1 Manya Makoski (25.), 2-1 Fjolla Shala (30.), 3-1 Fjolla Shala (35.) Grindavík - Afturelding 2-1 1-0 Shanika Gordon (25.), 1-1 Sjálfsmark (26.), 2-1 Shanika Gordon (87.) KR - Þróttur 3-0 (1-0 Katrín Ásbjörnsdóttir (7.), 2-0 Keli M Mclaughlin (24.), 3-0 Sigrún Inga Ólafsdóttir (57.) Upplýsingar að hluta frá Fótbolti.net STAÐAN Stjarnan 12 11 0 1 35-10 33 Valur 12 9 1 2 34-10 28 Þór/KA 12 7 1 4 24-24 22 ÍBV 12 6 3 3 21-9 21 Fylkir 12 6 1 5 18-21 19 Breiðablik 12 5 2 5 21-22 17 Afturelding 12 3 2 7 13- 26 11 KR 12 2 4 6 12-17 10 Þróttur R. 12 1 3 8 13-28 6 Grindavík 12 1 1 10 10-33 4 1. deild karla Selfoss - Leiknir 1-0 1-0 Ibrahima Ndiaye (63.) ÚRSLIT HANDBOLTI Íslenski landsliðs- maðurinn Ingimundur Ingimund- arson gekk í gær til liðs við Fram. Ingimundur skrifaði undir eins árs samning en hann mun einnig koma að þjálfun hjá yngri flokkum félagsins. „Framararnir höfðu samband við mig og ég ákvað að setjast niður með þeim um helgina. Síðan gerðist þetta fljótt og ég er mjög ánægður með þetta,“ sagði Breið- hyltingurinn. Ingimundur hefur leikið erlend- is frá árinu 2005 og komið víða við. Hann hefur leikið í Sviss, Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Hann var síðast á mála hjá AaB í Álaborg. „Í byrjun var stefnan að vera áfram úti. Ég gerði ákveðnar kröf- ur þarna úti en var ekki að detta í neitt nógu spennandi. Mér fannst fín tímasetning að koma heim. Ég er mjög ánægður með að vera búinn að ljúka þessu.“ Ingimundur hefur verið sterklega orðaður við l ið Akureyrar í sumar og gerðu norðanmenn sér góðar vonir um að fá Ingimund. „Ég sé enga ástæðu til þess að ræða það eitthvað. Ég var vissu- lega búinn að ræða við þá en er búinn að ganga frá eins árs samn- ingi við Fram núna. Hef ekkert meira um það að segja,“ sagði Ingimundur. Ásamt því að spila fyrir meist- araflokk félagsins mun Ingimund- ur þjálfa 3. flokk karla. Þá verður hann öðrum þjálfurum félagsins innan handar varðandi varnarleik. Ingimundur hefur leikið 94 landsleiki fyrir Ísland og verið lykilmaður í varnarleik liðsins undanfarin ár. Landslið Íslands hefur nær eingöngu verið byggt upp af atvinnumönnum erlendis undanfarin ár. Ingimundur hefur ekki áhyggjur af sæti sínu í lands- liðinu. „Í rauninni ekki. Það er undir sjálfum mér komið að halda mér í góðu formi. Æfingakúltúrinn á Íslandi er mjög góður og betri en á mörgum stöðum erlendis. Það verður að koma í ljós hvort ég verð áfram í landsliðinu eða ekki. Stefnan er að sjálfsögðu að halda mér þar inni,“ segir Ingimundur, sem var í silfurliðinu í Peking 2008. Hann segir eina af ástæðunum fyrir því að hann valdi Fram að þar fái hann tækifæri til þess að æfa og halda sér í toppstandi. Ingimundur spilaði vinstri skyttu á sínum tíma en hefur und- anfarin ár fyrst og fremst getið sér gott orð fyrir góðan varnar- leik. Hann segist ekki vita hvaða hlutverk hann muni spila í sóknar- leiknum með Fram. „Það verður að koma í ljós. Ég er búinn að standa á teig í þrjú ár og spila vörn og hef þannig séð varla fengið að kasta bolta á æfingu. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Þetta kemur með tímanum,“ sagði Ingimundur, sem segir sleggjuna enn vera til staðar. „Já, já, hún er kannski smá ryðguð en það þarf bara að smyrja hana.“ - ktd Landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson hefur skrifað undir eins árs samning við Fram: Þarf bara að smyrja ryðgaða sleggjuna FLOTTUR Í BLÁU OG HVÍTU Ingimundur kann vel við sig í bláu og hvítu. Upp- eldisfélag hans, ÍR, spilar í sömu litum og sömuleiðis íslenska landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI KR er úr leik í Evrópu- deild UEFA eftir að hafa tapað fyrir Dinamo Tbilisi frá Georgíu, 6-1 samanlagt, í þriðju umferð forkeppninnar. Liðin mættust ytra í gær og unnu Georgíumenn 2-0 sigur. Eftir 4-1 tap í fyrri viðureign- inni var ljóst að möguleikar KR yrðu ekki miklir og ákvað Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, að gefa leikmönnum tækifæri í gær sem lítið hafa spilað með liðinu í sumar. Alberto Yague og Giorgi Kak- helishvili skoruðu mörk Dinamo í upphafi síðari hálfleiks og Jam- bul Jigauri fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins. - esá Evrópudeild UEFA: KR tapaði í Georgíu FÓTBOLTI Stjarnan er komin með aðra höndina á Íslandsmeistara- titilinn í knattspyrnu kvenna eftir dramatískan 2-1 sigur á Val í Garðabænum í gærkvöldi. Valskon- ur voru með yfirburði á vellinum fyrstu 60 mínútur leiksins en rautt spjald Caitlin Miskel gaf Stjörnu- stelpum líflínu sem þær nýttu til fullnustu. Valskonur komu mun ákveðn- ari til leiks í Garðabænum í gær- kvöldi. Þær höfðu yfirburði á öllum sviðum í fyrri hálfleik sem fór að mestu fram á vallarhelm- ingi heimaliðsins. Íslandsmeistar- arnir voru grimmir, brutu á and- stæðingnum þegar þess þurfti og unnu alla seinni bolta. Einkenni liðs sem ætlar sér sigur. Stjörnu- stúlkur voru í hlutverki áhorfenda og til marks um baráttuleysi brutu þær aðeins einu sinni af sér í hálf- leiknum. Valur fékk fjölmörg færi í hálf- leiknum en náði aðeins einu sinni að skora. Eftir hornspyrnu barst boltinn út í teig á aldursforset- ann Laufeyju Ólafsdóttur. Laufey tók boltann á lofti og sendi í fjær- hornið. Markið kom á 23. mínútu og óhætt að segja að það hafi legið í loftinu. Valskonur voru 1-0 yfir í hálf- leik og Stjörnukonur heppnar að vera enn inni í leiknum. „Vals- liðið spilaði gríðarlega vel í fyrri hálfleik og við vorum óöruggar og hræddar. Svo eins og vanalega kemur liðið sterkara til liðs í seinni hálfleik,“ sagði Þorlákur Árnason þjálfari Stjörnunnar. Upphafsmínútur síðari hálfleiks- ins voru rökrétt framhald þess fyrri. Gunnhildur Yrsa átti reynd- ar skot af 30 metra færi sem small í slánni snemma í hálfleiknum en annars sóttu Valskonur stíft en voru klaufar í vítateig Stjörnunnar. Það átti eftir að reynast dýrkeypt. Á 62. mínútu lágu Caitlin Miskel og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir út við hliðarlínu eftir baráttu. Mis- kel virtist sparka í Ásgerði þegar boltinn var víðs fjarri og sú banda- ríska var rekin út af. „Hún sparkaði í mjöðmina á mér eftir að boltinn var farinn. Það er púra rautt,“ sagði Ásgerður. Atvik- ið kom upp úr engu og í raun óskilj- anlegt hvers vegna Miskel gerði sig seka um þvílíkt dómgreindar- leysi. Ástæða er til að ætla að Mis- kel hafi átt óuppgerðar sakir við Ásgerði. „Nei, það var ekkert okkar á milli. Það er barningur á milli Stjörnunnar og Vals en ekkert persónulegt á milli okkar,“ sagði Ásgerður. Áhorfendur voru vart búnir að tylla sér í síðari hálfleik þegar brotið var á varamanninum Helgu Franklínsdóttur innan teigs og vítaspyrna dæmd. Ásgerður tók vítið og skoraði af öryggi. Það sem eftir lifði leiks var nokkurt jafnræði með liðunum. Í rauninni það jafnræði sem maður hefði reiknað með fyrirfram í toppslag deildarinnar. Stjörnu- stelpurnar hirtu hins vegar stigin þrjú í viðbótartíma þegar Helga var grimmust á fjærstöng og skall- aði knöttinn í netið. „Þetta var rosalegur rússíbani. Bæði lið voru farin að sættast á jafntefli. Við eftir slakan fyrri hálfleik og Valsararnir einum færri. Það var ekkert í spilunum. Svo er það þessi snilld hjá Írunni [Þorbjörgu Aradóttur] hvernig hún lagði upp markið. Var mjög róleg, plataði mann og Helga Franklín kórónaði frábæran dag,“ sagði Þor- lákur. Gunnar Borgþórsson, þjálfari Valsstelpna, var ekki á því að Vals- konur hefðu verið orðnar sáttar með stigið. „Nei, við ætluðum allan tímann að vinna og ég held að það hafi sést. Tíu Valsstúlkur litu út fyrir að vera tólf. Við pressuðum, hlup- um og hlupum og ætluðum okkur sigur,“ sagði Gunnar sem taldi sitt lið hafa átt sigurinn skilinn í Garðabænum. „Ég held að allir 850 sem voru að horfa hafi séð að af tveimur fót- boltaliðum á vellinum er Valsliðið með yfirburðafótboltalið og þess vegna er svona súrt að fara heim tómhentur,“ sagði Gunnar. Valur hefur orðið Íslandsmeist- ari undanfarin fimm ár og haft yfirburði í kvennaboltanum. „Við erum náttúrulega að spila við stórveldi í íslenskum kvenna- bolta. Það er rosalega erfitt að brjóta niður hefðir en við erum að reyna,“ sagði Þorlákur og viður- kenndi að taflan lygi ekki. Titill- inn væri að hverfa Garðbæingum úr sjónmáli. kolbeinntd@365.is Kvaddi liðið með dýrmætu marki Helga Franklínsdóttir var hetjan í síðasta leiknum sínum með Stjörnunni í ár. Hún kom inn á í toppslag Pepsi-deildar kvenna í gær, fiskaði víti og skoraði síðan sigurmarkið í uppbótartíma sem tryggði liðinu 2-1 sigur á Val. Stjarnan er því með fimm stiga forskot á toppnum og komið með aðra hönd á Íslandsbikarinn. BÁÐAR Á SKOTSKÓNUM Í GÆR Laufey Ólafsdóttir úr Val í baráttunni við Ásgerði Baldursdóttur úr Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.