Fréttablaðið - 05.08.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.08.2011, Blaðsíða 34
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR22 BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. frásögn, 6. í röð, 8. ari, 9. rúm- ábreiða, 11. spil, 12. fótmál, 14. komumst, 16. hvað, 17. örn, 18. skelfing, 20. til, 21. afli. LÓÐRÉTT 1. loga, 3. tveir eins, 4. tré, 5. þangað til, 7. rægja, 10. knæpa, 13. jafn- vel, 15. sigta, 16. samkvæmi, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. sögu, 6. áb, 8. örn, 9. lak, 11. ás, 12. skref, 14. náðum, 16. ha, 17. ari, 18. ógn, 20. að, 21. fang. LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. öö, 4. gráfura, 5. uns, 7. baknaga, 10. krá, 13. eða, 15. miða, 16. hóf, 19. nn. Líf rost - ungsin s Búmm! Búmm! Búmm! Búmm! Búmm! Búmm! Búmm! BÚMM! BÚMM! BÚMM! BÚMM! Hann var með fullt af bólum á bakinu! Vá! Töfra- nudd Elsu GEISP Elsku barn! Þú varst vakandi fram eftir að læra og sofnaðir aftur við skrifborðið þitt! Já. Hvernig vissir þú það? Metnaðarfullu nem- endurnir koma upp um sig þegar maður sér gormafarið eftir stílabók- ina á andlitum þeirra. Launin sem þú ferð fram á eru því miður hærri en við ráðum við. Ég skil. Geymið verðlistann minn, ef ykkur snýst hugur. 5.000 kall á tímann fyrir barnapössun??? Og hún taldi ekki með aukagjöld fyrir bleyjuskipti og vögguvísur. Ég lærði orðið hommi í skólanum þegar ég var tíu ára. Eða reyndar Á skól- anum. Einhvern morguninn blöstu orðin HOMMI+HÓRA=SÖN ÁST við á nokkrum útveggjum. Ég vissi ekkert hvaða fólk þetta var, enda lítið talað um þau inni í skólanum eða í sjónvarpinu, en datt helst í hug að þessir krakkar væru í tólf ára bekknum og þetta væri óður til kærleika þeirra. Í frímínútum komst ég svo auð- vitað að því að þetta voru ekki sérnöfn, þetta voru tegundaheiti á mannlegri hegðun sem lögð var að jöfnu og þótti neikvæð. Og meira lærði ég ekki í mörg ár. ÞANNIG að þegar ég kynntist fyrsta hommanum voru mín fyrstu viðbrögð að vorkenna honum og næst kom ein spurning: „Hvert ætlarðu að flytja?“ Mögu- leikinn á því að vinur minn gæti unnið við það sem honum sýndist, búið þar sem hann langaði til, eignast börn og buru, farið í fjölskylduboð og í bæinn á Þorláksmessu, verandi sá sem hann var og elskandi þá sem hann vildi elska, var ekki fyrir hendi. Að minnsta kosti ekki á Íslandi. Ég sá fyrir mér líf í leynum eða ofsóknir, hrakninga og hjartasár það sem eftir lifði ævinnar. TUTTUGU og eitthvað árum síðar stend ég á götuhorni á morgun og veifa vini mínum þegar hann fer framhjá í skrúðgöngu þar sem hann fagnar lífinu og því að vera hommi ásamt öllum hinum hommunum og lesbíunum sem ganga, hjóla, dansa, aka eða valhoppa í gleðigöngunni til að fagna lífinu, fjölbreytni, frelsi og kærleika. GLEÐIGANGAN á Íslandi er sú merkileg- asta í heimi. Hvergi nema hér er Gay Pride fjölskylduhátíð þar sem sérkynhneigðir og samkynhneigðir skemmta samborgurum sínum af öllum aldri og kynjum með dansi, söng, búningum og skreytingum, eins og einskær gleðin væri ekki nóg. Og tugþús- undir manna, kvenna og barna fagna og gleðjast með. Þennan dag eru Íslendingar fremstir þjóða í að viðurkenna að ástin spyr hvorki um stétt né stöðu og svo framarlega sem landslögum er fylgt hvað varðar aldur og upplýst samþykki þá velur hver fyrir sig hjá hverjum hann eða hún sefur og hvernig. ÉG ER sjaldan eins stolt af því að vera íslensk og á Gay Pride. Nema kannski þegar ég sé fyrir mér samtal tveggja ung- linga í dag sem er einhvern veginn svona „Hérna, ég er gay …“ „Já, mig grunaði það. Kúl. Til hamingju með þig.“ Stoltið hýrt Heldur martröð Torres áfram? Fréttablaðið hitar upp fyrir átökin í ensku deildinni. Meðal annars efnis: Það er allt í lagi að vera reiður Ljóðskáldið Kristín Svava Tómasdóttir og íþróttafrétta- maðurinn Arnar Björnsson á rökstólum. Hýreyg og heillandi sprund Fréttablaðið kannar lystisemdir Dalvíkur og nágrennis.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.