Fréttablaðið - 05.08.2011, Síða 34
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. frásögn, 6. í röð, 8. ari, 9. rúm-
ábreiða, 11. spil, 12. fótmál, 14.
komumst, 16. hvað, 17. örn, 18.
skelfing, 20. til, 21. afli.
LÓÐRÉTT
1. loga, 3. tveir eins, 4. tré, 5. þangað
til, 7. rægja, 10. knæpa, 13. jafn-
vel, 15. sigta, 16. samkvæmi, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sögu, 6. áb, 8. örn, 9. lak,
11. ás, 12. skref, 14. náðum, 16. ha,
17. ari, 18. ógn, 20. að, 21. fang.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. öö, 4. gráfura, 5.
uns, 7. baknaga, 10. krá, 13. eða, 15.
miða, 16. hóf, 19. nn.
Líf rost
-
ungsin
s
Búmm!
Búmm!
Búmm!
Búmm!
Búmm!
Búmm!
Búmm!
BÚMM!
BÚMM!
BÚMM!
BÚMM!
Hann var með
fullt af bólum
á bakinu!
Vá!
Töfra-
nudd
Elsu
GEISP
Elsku barn! Þú
varst vakandi
fram eftir
að læra og
sofnaðir aftur
við skrifborðið
þitt!
Já.
Hvernig
vissir þú
það?
Metnaðarfullu nem-
endurnir koma upp um
sig þegar maður sér
gormafarið eftir stílabók-
ina á andlitum þeirra.
Launin sem þú ferð fram á eru því
miður hærri en við ráðum við.
Ég skil.
Geymið verðlistann minn, ef
ykkur snýst hugur.
5.000 kall á
tímann fyrir
barnapössun???
Og hún taldi
ekki með
aukagjöld fyrir
bleyjuskipti
og vögguvísur.
Ég lærði orðið hommi í skólanum þegar ég var tíu ára. Eða reyndar Á skól-
anum. Einhvern morguninn blöstu orðin
HOMMI+HÓRA=SÖN ÁST við á nokkrum
útveggjum. Ég vissi ekkert hvaða fólk
þetta var, enda lítið talað um þau inni í
skólanum eða í sjónvarpinu, en datt helst
í hug að þessir krakkar væru í tólf ára
bekknum og þetta væri óður til kærleika
þeirra. Í frímínútum komst ég svo auð-
vitað að því að þetta voru ekki sérnöfn,
þetta voru tegundaheiti á mannlegri
hegðun sem lögð var að jöfnu og þótti
neikvæð. Og meira lærði ég ekki í
mörg ár.
ÞANNIG að þegar ég kynntist
fyrsta hommanum voru mín
fyrstu viðbrögð að vorkenna
honum og næst kom ein spurning:
„Hvert ætlarðu að flytja?“ Mögu-
leikinn á því að vinur minn gæti
unnið við það sem honum sýndist,
búið þar sem hann langaði til,
eignast börn og buru, farið í
fjölskylduboð og í bæinn á
Þorláksmessu, verandi sá
sem hann var og elskandi
þá sem hann vildi elska,
var ekki fyrir hendi.
Að minnsta kosti ekki á
Íslandi. Ég sá fyrir mér
líf í leynum eða ofsóknir,
hrakninga og hjartasár það sem eftir lifði
ævinnar.
TUTTUGU og eitthvað árum síðar stend ég
á götuhorni á morgun og veifa vini mínum
þegar hann fer framhjá í skrúðgöngu þar
sem hann fagnar lífinu og því að vera
hommi ásamt öllum hinum hommunum og
lesbíunum sem ganga, hjóla, dansa, aka eða
valhoppa í gleðigöngunni til að fagna lífinu,
fjölbreytni, frelsi og kærleika.
GLEÐIGANGAN á Íslandi er sú merkileg-
asta í heimi. Hvergi nema hér er Gay Pride
fjölskylduhátíð þar sem sérkynhneigðir og
samkynhneigðir skemmta samborgurum
sínum af öllum aldri og kynjum með dansi,
söng, búningum og skreytingum, eins og
einskær gleðin væri ekki nóg. Og tugþús-
undir manna, kvenna og barna fagna og
gleðjast með. Þennan dag eru Íslendingar
fremstir þjóða í að viðurkenna að ástin spyr
hvorki um stétt né stöðu og svo framarlega
sem landslögum er fylgt hvað varðar aldur
og upplýst samþykki þá velur hver fyrir sig
hjá hverjum hann eða hún sefur og hvernig.
ÉG ER sjaldan eins stolt af því að vera
íslensk og á Gay Pride. Nema kannski
þegar ég sé fyrir mér samtal tveggja ung-
linga í dag sem er einhvern veginn svona
„Hérna, ég er gay …“ „Já, mig grunaði það.
Kúl. Til hamingju með þig.“
Stoltið hýrt
Heldur martröð
Torres áfram?
Fréttablaðið hitar upp fyrir átökin í ensku deildinni.
Meðal annars efnis:
Það er allt í lagi að vera reiður
Ljóðskáldið Kristín Svava Tómasdóttir og íþróttafrétta-
maðurinn Arnar Björnsson á rökstólum.
Hýreyg og heillandi sprund
Fréttablaðið kannar lystisemdir Dalvíkur og nágrennis.