Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.08.2011, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 05.08.2011, Qupperneq 22
2 föstudagur 5. ágúst núna ✽ daðrað við tískuna augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 meðmælin FAGURT FLJÓÐ Fyrirsætan Mir- anda Kerr var glæsileg á sýningu ástralska hönnuðarins David Jones í Sydney á miðvikudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY Tímaritið Vanity Fair opinberaði nýverið lista sinn yfir best klæddu einstaklinga ársins. List- inn samanstendur af kóngafólki, þjóðarleiðtogum, tónlistarfólki og leikurum svo fátt eitt sé nefnt. Leikkonurnar Tilda Swinton og Carey Mulligan voru á lista yfir best klæddu konur ársins auk for- setafrúar Bandaríkjanna, Michelle Obama, og bresku prinsessunnar Katrínar Middleton. Á lista yfir best klæddu karl- menn ársins mátti sjá nöfn á borð við breska leikarann Colin Firth, tónlistarmanninn Justin Timber- lake og gríska skipaerfingjann Stavros Niarchos. Það er því fátt sem kemur á óvart við lista Vanity Fair þetta árið. - sm Best klæddu einstaklingar ársins: Prinsessur og skemmtikraftar Best klædd Catherine Middleton þykir á meðal best klæddu kvenna heims árið 2011. Pop up á Selfossi Pop up markaðurinn góði mun reka upp kollinn við Austurgötu 2A á Selfossi á morgun. Markaður- inn er haldinn í tengslum við sum- arhátíðina Sumar á Selfossi og verður opinn á milli 12 og 17. Að þessu sinni munu Skugga Donna, Svava Halldórs, Be- roma, IBA-The Indi- an in Me, Elva, Baby K, Húnihún, Eight of hearts og Helicopter taka þátt í markaðn- um. Við hvetjum alla til að mæta, gera góð kaup og um leið styðja við bakið á íslenskri hönnun. Menning inni á klósetti Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Örn Tönsberg opnar sýninguna FuglOrðiðFólk í Galler- íi Klósetti við Hverfis- götu 61 á morgun. Þar sýnir hann mál- verk og teikningar af fuglum og fólki sem hann hefur rekist á um ævina. Þetta er fyrsta sýn- ing Arnar á Íslandi í lang- an tíma en hann hefur alið manninn í Danmörku undanfar- in fjögur ár. Sýningin hefst klukkan 20. S amtökin UN Women á Íslandi standa að baki fram-leiðslu nýrra taupoka sem hannaðir eru af Unu Hlín Kristjánsdóttur, Kötlu Rós Völudóttur og Ragnari Má Nikulássyni. Framtakinu er ætlað að vekja athygli á samtökunum og stöðu kvenna í þróunarlöndum. Samtökin UN Women hétu áður Unifem en nafnbreyt- ingarnar urðu eftir að Unifem var sameinuð þremur stofnunum innan Sameinuðu þjóðanna. UN Women vinnur að málefnum kvenna um allan heim og að sögn Hönnu Eiríksdóttur, verkefnastýru UN Women á Íslandi, eru samtökin nú stærri og öflugri en áður. „Hlutverk okkar er að vekja Íslendinga til umhugs- unar um málefni kvenna og okkur datt í hug að fá Unu Hlín, Kötlu Rós og Ragnar til að hanna þessa poka og reyna þannig að ná til almennings á skemmtilegan hátt. Katla Rós og Ragnar teiknuðu tvær fallegar myndir fyrir okkur og Una Hlín hannaði sniðið á pokanum. Við erum mjög ánægð með útkomuna enda er pokinn bæði falleg- ur og svo má nota hann í allt, sama hvort það er í rækt- ina, undir tölvuna eða sem innkaupapoka,“ segir Hanna. Þess má geta að hönnuðirnir gáfu allir vinnu sína og mun ágóðinn renna óskiptur til UN Women. Pokarnir verða aðeins framleiddir í fjögur hundruð eintökum og mælir Hanna með því að fólk drífi sig að fjárfesta í einum slíkum áður en það verður um seinan. „Ágóðinn rennur í sérstakan sjóð innan SÞ sem vinn- ur eingöngu að því að berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Þetta er fjársveltasti sjóðurinn innan SÞ og jafnframt sá eftirsóttasti, mikill fjöldi grasrótarsamtaka sækir um aðstoð en aðeins er hægt að styrkja örfá.“ Pokarnir verða fáanlegir í verslununum Aurum, GK, Kiosk, Mýrinni og Kisunni og á skrifstofum UN Women á Laugavegi 42. Sérstakt pokapartý verður haldið í Kiosk í tilefni verkefnisins og stendur það frá klukkan 17 til 19. - sm UN Women selja flottar töskur til styrktar góðu málefni: HÖNNUN GEGN KYNBUNDNU OFBELDI Flott málefni Hanna Eiríksdóttir, verkefnastýra UN Women, segir pokana fallega og nytsamlega. Ágóðinn rennur óskiptur til samtakanna sem vinna að málefnum kvenna um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI N O R D IC P H O TO S /G E TT Y LITRÍK AUGU Þessi augnskuggi er úr nýrri línu frá Mac sem nefnist Semi Precious. Augnskuggarnir eru ofnbakaðir, sem gerir þá lausa við öll aukaefni. glansandi áferð- in kemur frá litlum brasilískum gimsteinum sem eru muldir ofan í. Einnig hægt að bleyta upp í og nota sem augnblýant. SOHO/MARKET Á FACEBOOK Grensásvegur 16, sími 553 7300 Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17 ÚTSALAN ER HAFIN Næg bílastæði fyrir ofan hús. 30% afsl. af skarti. 50-70% afsl. af öllum fatnaði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.