Fréttablaðið - 05.08.2011, Qupperneq 36
5. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Bækur ★★★★
Sjálfstæð þjóð. Trylltur skríll og landráðalýður
Eiríkur Bergmann Einarsson
Veröld, Reykjavík, 2011 364 bls.
Groundhog Day – fyrri hluti
Eiríkur Bergmann birtir í Sjálfstæð þjóð. Trylltur skríll og landráðalýður
greiningu sína á áhrifum þjóðernishugmynda sem mótuðust á tímum sjálf-
stæðisbaráttunnar á orðræðu íslensku stjórnmálastéttarinnar á lýðræðis-
tímanum.
Þetta gerir hann með því að skoða umræður um þau mál sem brunnið
hafa á þjóðinni á lýðveldistímanum varðandi samskipti við umheiminn.
„Í þjóðernisstefnunni sem mótaðist í sjálfstæðisbaráttunni á nítjándu
öld má jafnvel finna sjálfan
kjarnann í stjórnmálum
landsins“ segir Eiríkur
og leggur upp með þá
kenningu að rótfastar og
íhaldssamar hugmyndir
sem þróuðust í sjálfstæðis-
baráttunni um fullveldi
þjóðarinnar „móti enn
afstöðu Íslendinga til
stjórnmálalegra álitamála,
sérstaklega þegar kemur að
tengslunum við útlönd“.
Eiríkur rekur goðsögnina
til Jóns Jónssonar Aðils,
sagnfræðings og alþýðu-
fræðara, sem hér er settur á
stall sem áhrifamesti stjórn-
málaspekingur þessa lands
síðustu hundrað ár.
Í endursögn Eiríks er
arfleifð Aðils að finna í
mýtu Íslendinga um sjálfa
sig og sögu sína sem er
einhvern veginn á þessa
leið: Einu sinni var þjóð
sem átti sér enga líka nema
helst á gullöld Forn-Grikkja
en glataði sjálfstæðinu og
næstum því sjálfri sér þegar gerður var óráðssáttmáli við útlendan kóng.
Eftir sex alda myrkur, lifnaði sjálfstæðisneistinn við, þjóðin rumskaði, hristi
af sér erlenda ánauðarfjötra og reis úr öskustónni. Hún lofar nú sjálfri sér
því að þola aldrei aftur niðurlægingu undir erlendri áþján. Það er heilög
skylda þjóðhollra Íslendinga að standa sífellt vörð um fullveldið – ella
glatast sjálfstæðið undir erlent yfirvald sem steypir í sömu glötun og gamli
sáttmáli.
Og þarna er lykill að orðræðu íslenskrar stjórnmálastéttar í átakamálum
um samskipti við umheiminn á lýðveldistímanum, segir Eiríkur. Eftir því
sem líður á lesturinn hallast lesandinn að því að það sé óþægilega mikið
til í þessu hjá honum. Umræðan um stóru málin í þjóðfélaginu sé einn
allsherjar Groundhog Day þar sem í sífellu er lesið handrit eftir Jón Jónsson
Aðils. Gildir þá einu hvort á dagskrá er NATO, EFTA, landhelgin, EES, ESB,
AGS eða Icesave.
Eiríkur skrifar lipran texta enda er hann orðinn þjálfaður rithöfundur
og hefur verið virkur þátttakandi í þjóðfélagsumræðunni um langa hríð.
Verst er að þetta ævintýri Jóns Jónssonar Aðils stendur ekki fyllilega undir
sífelldum endurflutningi – það verður leiðigjarnt aflestrar en það má vita-
skuld hafa til marks um að kenningin gangi þokkalega upp.
Hvort sem lesandinn er staddur í umræðum um Atlantshafsbandalagið
á fimmta áratug síðustu aldar eða um ESB á fyrsta áratug þessarar
virðist hann fylgjast með sama menúettinum. Eftir því sem líður verða
mælskubrögðin ýktari og yfirborðskenndari uns flatneskjan nær hámarki í
umræðum um Icesave og ESB síðustu misserin. Pétur Gunnarsson
Niðurstaðan: Niðurstaða af lestrinum er sú að sagan er ævintýri líkust en
í bókarlok er hetjan enn í álögum, dæmd til að smjatta á sömu næringar-
lausu tuggunni. Hvort ævintýrið lýtur sömu lögmálum og önnur og hetjunni
tekst áður en yfir lýkur að varpa af sér álögum Jóns Jónssonar Aðils kemur
kannski í ljós í næsta þætti.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 05. ágúst 2011
➜ Tónleikar
20.00 Dagrún Ísabella Leifsdóttir
sópransöngkona og Gisele Grima,
frægur píanisti frá Möltu, halda tón-
leikana Music Women og vekja athygli
á tónlistarkonum sem hafa gleymst.
Tónleikarnir eru í Miðgarði í Skagafirði.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
22.00 Friðrik Ómar og Jógvan með
tónleika á Fiskidögum á Dalvík í Dal-
víkurkirkju. Miðaverð er 2.000 kr.
22.00 Hópur norðlenskra tónlistar-
manna flytur vinsælustu lög Óðins
Valdimarssonar á Græna hattinum,
Akureyri. Aðgangseyrir er 2.000 kr.
22.00 Skúli
mennski verður
með tónleika
ásamt Mugison í
Tjöruhúsinu á Ísa-
firði. Aðgangseyrir
er 1.000 kr.
➜ Opnanir
17.00 Mynd-
listarmaðurinn
og veggjakrotarinn Rögnvaldur Skúli
opnar sýningu í Montana RVK galleríinu
á Hverfisgötu 59. Allir velkomnir.
17.00 Sýning á verkum Karolinu
Boguslawsku verður opnuð í Borgar-
bókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15.
Allir velkomnir.
➜ Sýningar
13.00 Síðasta sýningarhelgi á sýningu
Jóhönnu Friðfinnsdóttur og Drafnar
heitinnar Friðfinnsdóttur í Ketilhúsinu
á Akureyri. Allir velkomnir.
➜ Opið Hús
17.00 Partí verður haldið í versluninni
Kiosk, Laugavegi 65, til að fagna
pokum sem hönnunarteymið Marand-
ros hannaði til styrktar UN Women á
Íslandi. Allir velkomnir.
➜ Uppistand
22.00 Prikið mun blása til fyrstu grín-
keppninnar á vegum Priksins. Lands-
frægir grínistar sitja í dómnefnd og
veglegir vinningar. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Einu sinni á ágústkvöldi
er viðeigandi nafn á
menningarhátíð tengdri
bræðrasetrinu Múlastofu á
Vopnafirði sem er tileinkuð
Jóni Múla og Jónasi Árna-
sonum.
„Fjölskylduskemmtunin annað
kvöld verður í samkomuhús-
inu Miklagarði,“ byrjar Magnús
Már Þorvaldsson, talsmaður
menningarhátíðarinnar Einu
sinni á ágústkvöldi mál sitt. „Á
skáldakvöldi sem Valgeir Skag-
fjörð stjórnar verður umfjöll-
un um þá bræður, Jónas og Jón
Múla. Þeir voru, eins og margir
vita, alveg sérstakir karakterar,
vinstri menn fram í fingurgóma
en dáðu samt ýmislegt amer-
ískt, eins og Jón Múli djassinn.
Svo voru þeir miklir vinir en
ef þeir komu einhvers staðar
saman fram í viðtölum þá voru
þeir aldrei sammála um hlutina,
heldur voru farnir að rífast áður
en spyrlinum tókst að stoppa þá
af. Í dagskránni verður þátttaka
ungmenna veruleg og svo hljóm-
sveitar sem nefnist Batteríið og
er skipuð vopnfirskum körlum á
besta aldri. Ungmenni sem hafa
verið í listasmiðju hjá Valgeiri
frá því á mánudag verða með
leiksýningu sem lög og textar
bræðranna falla inn í. Það er svo
yndislegt hvað krakkar geta gert
á fáum dögum.“
Í framhaldi af skáldakvöld-
inu verða tónleikar með sveit
Eyþórs Gunnarssonar í Mikla-
garði en hann var uppeldisson-
ur Jóns Múla. Auk Eyþórs skipa
sveitina þau Ellen Kristjáns-
dóttir söngkona, Tómas R. Ein-
arsson bassaleikari, Óskar Guð-
jónsson saxafónleikari og Scott
MacLemore trommuleikari.
„Þetta verður tónlistarveisla af
bestu gerð þar sem sveitin mun
flytja verk eftir þá bræðurna,
líkt og hún gerði 31. mars í Saln-
um í Kópavogi, þann dag sem Jón
Múli hefði orðið níræður,“ lýsir
Magnús Már.
En fleiri atriði eru á hinni
vopnfirsku menningarhátíð í ár
en dagskrá tengd þeim bræðrum.
Erluhátíð er til dæmis í Vopna-
fjarðarskóla milli klukkan 13 og
15 helguð hinni vopnfirsku Guð-
finnu Þorsteinsdóttur sem tók
upp skáldanafnið Erla. Það er
Erlusjóður sem stendur að dag-
skránni sem Magnús Már full-
yrðir að verði spennandi. „Marg-
ir koma þarna fram og á eftir
eru kaffiveitingar í anda gamla
sveitastílsins. Svo vettvangsferð
um Hofsdalinn,“ segir hann.
Léttmessur hafa verið hluti
af hátíðinni undanfarin ár og
svo verður einnig nú. Hún verð-
ur á morgun klukkan 14. „Nú er
komið að Edgari Smára Atlasyni
og Óskari Einarssyni að sjá um
söng og séra Brynhildi, sem er
prestur Langanesbyggðar, að
leiða stundina,“ segir Magnús
Már og heldur áfram. „Þetta eru
ávallt skemmtilegar messur þar
sem fólk syngur með og sagðar
eru skemmtilegar sögur sem að
öllum jafnaði eru ekki í kirkju-
legum athöfnum. Þess vegna er
léttmessuheitið ágætt.“
gun@frettabladid.is
Miklir vinir en voru þó
aldrei sammála um hlutina
MÚLASTOFA Tileinkuð bræðrunum Jónasi og Jóni Múla Árnasonum.
AFI MINN FÓR Á HONUM RAUÐ nefnist dagskrá Listasafns Reykjavíkur í tengslum við sýninguna Jór! – Hestar í
íslenskri myndlist á Kjarvalsstöðum. Dagskráin hefst kl. 14 á sunnudaginn með leiðsögn um sýninguna en síðan verður haldið í
smiðjuna Litbrigði hestsins. Að lokum býðst þeim sem vilja að láta teyma undir sér á Klambratúni.
EMAMI LOKAR
Rýmingarútsalan er hafin.
Allt á að seljast.
*
*
Verslun EMAMI
Laugavegi 66
101 Rvk
www.emami.is
Vefverslun okkar verður áfram opin á www.emami.is