Fréttablaðið - 18.08.2011, Qupperneq 2
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR2
HEILBRIGÐISMÁL Ellefu læknar hafa
verið ráðnir í sérnám í heilsu-
gæslulækningum hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins. Þeim gæti
fjölgað enn frekar áður en námið
hefst í lok mánaðarins því fleiri
hafa sýnt því áhuga. Fyrir stunda
tólf læknar sérnámið hér á landi.
Alma Eir Svavarsdóttir er
kennslustjóri sérnámsins. Hún
er ánægð með áhugann á nám-
inu, ekki síst vegna þess að heim-
ilislækna hefur skort á landinu
undanfarin ár. Að hennar sögn
þýða fleiri formlegar stöður í
sér náminu að hægt verði að gera
námið agaðra og formfastara.
Aukin aðsókn þýðir hins vegar
einnig að meira fjármagn þurfi til
að hægt sé að sinna náminu vel.
Sérnám þeirra tólf lækna sem
fyrir stunda það er á vegum
velferðarráðuneytisins. Nýju
stöðurnar verða hins vegar
fjármagnaðar af Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins og Landspítal-
anum. Til þess að mæta kostnað-
inum við stöðurnar var lausum
stöðum sérfræðinga innan heilsu-
gæslunnar breytt í sérnámsstöð-
ur.
Sérnám í heimilislækningum
hefur verið í boði hér frá árinu
1995. Í upphafi voru stöðurnar
tvær. Að sögn Ölmu er það byggt
upp þannig að þrjú ár af fimm séu
tekin hér á landi en tvö ár erlend-
is. Þó hafa verið gerðar undan-
tekningar á þessu og allt sér-
námið klárað hér á landi. „Námið
er orðið það gott og komin nógu
mikil reynsla, svo við treystum
okkur í það.“ - þeb
Líklega verða
læknar í
sérnáminu 24
í vetur. Í upphafi voru
stöðurnar tvær.
24
Við vorum í fullum
rétti að setja okkar
viðmiðunarreglur og við það
stöndum við.
HARALDUR FREYR GÍSLASON
FORMAÐUR FÉLAGS
LEIKSKÓLAKENNARA
DÝRALÍF Læðan Öskubuska er lík-
legast elsti kötturinn á landinu, en
hún varð tuttugu og tveggja ára á
þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní.
Hjónin Höskuldur Stefánsson og
Ebba Ólafsdóttir, sem hafa umsjón
með Öskubusku, segja að Elli kerl-
ing sé vissulega farin að setja mark
sitt á hana.
„Hún er gigtveik eins og ég, svo
við erum hérna stynjandi báðar
tvær á rigningardögum,“ segir
Ebba. Hún segir Öskubusku vera
óskaplega gæfan og góðan kött.
Það hefur líka komið sér vel að hún
gerði ekki eigendum sínum þann
grikk að færa þeim mýs en þó vildi
hún leggja sitt af mörkum til heim-
ilislífsins. „Hún var vön að færa
mér rakettustubba hingað heim,
hún hefur örugglega haldið að ég
gæti reykt þetta en hún er nú löngu
hætt þessu.“
Þegar Öskubuska hafði heilsu til
hagaði hún sér að vissu leyti frekar
eins og hundur, sem löngum hefur
borið titilinn besti vinur manns-
ins. „Hún fór alltaf með mér hérna
í gamla daga, það gilti einu hvort ég
var að fara út í Grímsbæ að kaupa
inn, út í bókasafn eða í leikskólann
að ná í krakkana, alltaf kom hún
með. Svo var um daginn eins og
þeir rynnu upp fyrir henni þess-
ir gömlu göngutúrar því hún var
komin langleiðina að leik skólanum.
Annars er hún bara hérna í garð-
inum, blessunin.“
Þau hjón segjast ekki hafa neina
einhlíta skýringu á langlífi Ösku-
busku en þó eru ýmsar getgátur á
lofti. „Við létum hana bara gjóta
einu sinni, þegar hún var tæplega
árs gömul, og síðan ekki söguna
meir. Dýralæknirinn segir að hún
hafi hjarta á við miklu yngri dýr og
að það sé kannski af því að hún var
ekki alltaf gjótandi.“
Helga Finnsdóttir hefur stund-
að dýralækningar í þrjá áratugi og
segir hún aldursforsetann í sínum
kúnnahópi hafa verið 24 ára gaml-
an kött. Fréttablaðið leitaði líka til
Dýraspítalans í Garðabæ og spurði
um elstu ketti sem fengið hefðu
meðhöndlun þar. Þar var Fríða
nokkur efst á blaði en hún drapst
árið 2008, þá tuttugu og eins árs
að aldri. Eins hafði tvítugur kött-
ur farið í skoðun til þeirra en hann
fór yfir móðuna miklu áður en hann
varð tuttugu og eins.
jse@frettabladid.is
Aldursforseti katta
fæddur 17. júní 1989
Elsti köttur landsins er hin 22 ára Öskubuska, sem er um margt óvenjulegur
köttur. Hún safnaði rakettustubbum fyrir eiganda sinn og þjáist af gigt.
Sigríður, gefur það ekki auga-
leið að þetta er fínt málefni?
„Jú, alveg glerfínt.“
Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður hefur
hannað glerlíffæri, meðal annars augu, til
að vekja athygli á vöntun á líffæragjöfum.
ÖSKUBUSKA Í FAÐMI EBBU Árin
tuttugu og tvö eru orðin afar þung fyrir
Öskubusku en henni finnst gott að láta
þau hvíla í kjöltu Ebbu sinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NOREGUR Anders Behring Breivik
fær ekki að mæta í kjólfötum
fyrir rétt á morgun eins og hann
hafði óskað eftir. Síðast þegar
hann kom fyrir dómara óskaði
hann eftir því að mæta í ein-
kennisbúningi en því var einnig
hafnað.
Breivik hafði sagt að kjólföt
myndu sýna hversu alvarlega
hann tæki málið gegn sér. Dóm-
stóllinn féllst ekki á það. Þá hefur
verið ákveðið að réttarsalurinn
verði lokaður líkt og síðast. - þeb
Breivik fyrir dómara á ný:
Má ekki mæta í
kjólfötunum
Heilsugæslan fjármagnar nýjar stöður í sérnámi í heimilislækningum:
Fleiri vilja í heimilislækningar
FRAKKLAND, AP Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti og Angela
Merkel Þýskalandskanslari telja
nauðsynlegt að ný efnahagsstjórn
evruríkjanna, sem þau vilja koma
á laggirnar, hafi sérstakt forseta-
embætti.
Þau skýrðu frá þessu í gær,
daginn eftir að þau hittust í
Frakklandi til að ræða lausnir
á erfiðum skuldavanda evru-
ríkjanna.
Hugmyndir þeirra hafa verið
sagðar innihaldslítil sýndar-
mennska, því nauðsynlegt sé að
efla neyðarsjóð evruríkjanna auk
þess sem þau hafni hugmyndum
um að gefa út sameiginleg ríkis-
skuldabréf evruríkjanna. - gb
Merkel og Sarkozy:
Evruhagstjórn
hafi forseta
SARKOZY OG MERKEL Forseti Frakk-
lands og kanslari Þýskalands í París á
þriðjudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Félag leikskólakenn-
ara fundaði í gær með Sambandi
íslenskra sveitarfélaga um þau
álitamál sem ríkja um verkfalls-
reglur leikskólakennara. Ekk-
ert var rætt um kjarasamninga á
fundinum.
Haraldur Freyr Gíslason, for-
maður Félags leikskólakennara,
segir stöðuna óbreytta frá því á
mánudag.
„Við stöndum við okkar túlkun.
Það var þó ákveðið að hittast aftur
í dag klukkan ellefu til að fara enn
betur yfir málin,“ segir hann.
Haraldur segir fundinn hafa
gengið vel og menn hafi rökrætt
málin sín á milli.
„Við vorum í fullum rétti að
setja okkar viðmiðunarreglur og
við það stöndum við,“ segir hann.
„Það eru engin illindi. Fólk var
bara að skiptast á skoðunum.“
Ekki hefur verið boðað til nýs
fundar í kjaraviðræðum leik-
skólakennara og sveitarfélaganna.
Haraldur segist þó bjartsýnn á að
boðað verði til fundar fyrir næst-
komandi mánudag.
Ef verkfall skellur á mun það
hafa áhrif á fjórtán þúsund fjöl-
skyldur í landinu og sextán þúsund
börn. Leikskólakennarar fara fram
á 11 prósenta launaleiðréttingu og
25 prósenta launahækkun. Sveit-
arfélögin hafa boðið á milli 12 og
14 prósenta launahækkun en leik-
skólakennarar hafa neitað því. - sv
Leikskólakennarar og sveitarfélög funduðu um álitamál í verkfallsaðgerðum:
Fundi lauk í gær án niðurstöðu
FJÖLGUN Ellefu læknar hafa verið ráðnir
í sérnám í heilsugæslulækningum.
TÍSKA Íslensk hönnun verður
seinna á þessu ári í fyrsta sinn
til sölu í Debenhams erlendis.
Debenhams rekur yfir tvö hundr-
uð verslanir í um 25 löndum.
„Hönnun mín fór á heimasíðu
Debenhams á föstudegi fyrr í
sumar og þeir hringdu í mig á
þriðjudegi og vildu fá vörurnar
beint inn í búðirnar því þær seld-
ust svo vel,“ segir hönnuðurinn
Marta Jonsson. Vor- og sumar-
lína Mörtu árið 2012 verður
fyrsta línan sem verður til sölu í
verslunum Debenhams og stefnt
er að því að hún komi í verslanir í
lok ársins. - mmf / sjá Allt
Marta Jonsson vinsæl:
Íslensk hönnun
í Debenhams
SÚ FYRSTA Hönnun Mörtu Jonsson
verður til sölu í Debenhams innan tíðar.
SLYS Hestakerra með tveim
hrossum sem föst var í eftir-
dragi bifreiðar opnaðist á ferð
rétt austan við Hvolsvöll í gær-
dag. Hrossin köstuðust af kerr-
unni og var nauðsynlegt að kalla
til dýralækni og láta aflífa annað
hrossið vegna alvarlegra innvort-
is meiðsla.
Samkvæmt lögreglunni á
Hvolsvelli meiddist hitt hrossið
einnig töluvert, en ekki reyndist
nauðsynlegt að aflífa það.
Eigandi hrossanna var ekki í
bifreiðinni sem dró kerruna. - sv
Hestakerra opnaðist á ferð:
Aflífa þurfti
hross eftir fall
SJÁVARÚTVEGUR Færeysk línuskip
hafa veitt sem af er ári tæp 2.670
tonn í íslenskri lögsögu. Á sama
tíma í fyrra var aflinn heldur
minni, tæp 2.290 tonn. Heildar-
botnfiskaflinn er því tæplega
sautján prósentum meiri í ár en á
síðasta ári, að sögn Fiskistofu.
Þorskafli færeysku skipanna
er kominn í 573 tonn en heimild
færeyskra skipa á yfirstandandi
ári eru 1.200 tonn. Alls voru átta
færeysk línuskip að veiðum í
íslenskri lögsögu í júlímánuði.
Heildarafli skipanna var 304
tonn. - shá
Færeyingar við Ísland:
Aflabrögð betri
en var í fyrra
SPURNING DAGSINS