Fréttablaðið - 18.08.2011, Blaðsíða 58
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR34 34
menning@frettabladid.is
Óperusmiðja Garðabæjar er nú
haldin þriðja sinni í Kirkjuhvoli,
safnaðar heimili Vídalínskirkju.
Þátttakendur í ár eru sextán talsins.
Námskeiðinu lýkur með tveim-
ur sýningum, föstudagskvöldið 19.
ágúst klukkan 20 og laugardaginn
20. ágúst klukkan 17. Fluttar verða
leiknar senur úr Brúðkaupi Figaros,
La clemenza di Tito, Cosi fan tutte
og Brottnáminu úr kvennabúrinu
eftir Mozart, Mikado eftir þá Gilbert
og Sullivan, The Old Maid and the
Thief eftir Menotti og Grímudans-
leiknum eftir Verdi.
Leiðbeinendur smiðjunnar eru
sem fyrr Martha Sharp, prófessor
við Mozarteum-tónlistar háskólann
í Salzburg, sem sér um leikstjórn, og
Margareth Singer sem sér um tón-
listarstjórn. Nánari upplýsingar má
finna á operaworkshop.org.
Ópera í Garðabæ
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Einn dagur - kilja
David Nicholls
Íslenskur fuglavísir - nýr
Jóhann Óli Hilmarsson
Hægur dauði - kilja
Lene Kaaberbol/Agnete Friis
10 árum yngri á 10 vikum
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Frelsarinn - kilja
Jo Nesbø
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
10.08.11 - 16.08.11
Lost in Iceland - ensk
Sigurgeir Sigurjónsson
Ég man þig - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
Hefndargyðjan
Sara Blædel
Nemesis - kilja
Jo Nesbø
Ófreskjan
Roslund & Hellstrom
MYNDIN AF ÞINGVÖLLUM Lokadagur fjölsóttustu sýningar Listasafns Árnesinga hingað til, þar sem veitt er yfirsýn
yfir þær birtingarmyndir sem Þingvellir hafa í íslenskri myndlist, hönnun, kortagerð, ljósmyndun, ferðabókum og fjölmiðlun, er
sunnudaginn 21. ágúst. Af því tilefni verður Einar Garibaldi með sýningarspjall klukkan 15 þann dag.
Skýli gæsluvallarins við
Hringbraut hefur verið
í niðurníðslu undanfarin
ár. Nokkrir íbúar verka-
mannabústaðanna í
nágrenninu hafa unnið að
lagfæringu þess í sumar og
bjóða þeir til myndlistarsýn-
ingar á Menningarnótt, sem
verður fyrsti listviðburður
skýlisins.
Húsið var reist árið 1943 eftir
teikningum arkitektanna Einars
Sveinssonar og Ágústs Páls sonar.
„Á þeim tíma var allt fremur sjálf-
bært hér. Það var hugsað fyrir öllu
og ýmsar sérverslanir í nágrenn-
inu, svo sem fiskbúð og kjötbúð.
Það var meira að segja leikvöllur
og sá Reykjavíkurborg um rekst-
ur þessa skýlis, þar sem öll börn
gátu fengið pössun,“ segir Kristín
Róbertsdóttir. Hún er einn með-
lima Félags um leikvallaskýli, sem
stofnað var í október í fyrra. Gerði
það samning við Reykjavíkur-
borg þess efnis að félagið sæi um
endurbætur á skýlinu og því yrði
síðan fundinn tilgangur. Ætlunin
er að nota það undir menningar-
lega starfsemi en framtíð þess er
enn óráðin.
Húsafriðunarnefnd friðaði
skýlið og verkamannabústaðina í
vor. Félag um leikvallaskýli hlaut
einnig styrk frá Húsafriðunar-
nefnd og úr Húsverndunarsjóði
Reykjavíkur borgar til endur bóta.
„Við byrjuðum að laga skýlið í byrj-
un sumars og höfum lagt nýjar
lagnir, nýtt rafmagn og lagað tré-
verkið. Við höfðum að leiðarljósi
að laga allt í stað þess að henda,“
segir hún en þau vildu halda í upp-
runalegt útlit hússins eða litla gim-
steinsins, líkt og þau segja skýlið
vera.
Á sýningunni verða verk þrett-
án myndlistarmanna til sýnis.
Allir eiga þeir það sameiginlegt
að búa eða tengjast verkamanna-
bústöðunum á náinn hátt. „Þetta
er hugmynd sem kviknaði á
hreinsunar deginum okkar í vor.
Það voru uppi vangaveltur um að
halda viðburð í skýlinu. Þar sem
ég er myndlistarmaður fannst mér
liggja beint við að opna myndlistar-
sýningu og það voru allir mjög
spenntir,“ segir Hrafnkell Sigurðs-
son, einn myndlistarmannanna sem
sýna í gæsluvallarskýlinu. Spurður
um verk sýningarinnar segir hann:
„Við ákváðum bara að allir ættu að
koma með lítið verk sem passar inn
í þetta samhengi.“ Ekki er annað
hægt en að sýna lítil verk í skýlinu,
sem er einungis tólf fermetrar að
stærð. Hins vegar verður inntak
listaverkanna ólíkt í þessum fjöl-
breytta hópi myndlistarmanna. Það
eru þau Bergur Thomas Anderson,
Halldóra Emilsdóttir, Hildigunnur
Birgisdóttir, Hrafnkell Sigurðs-
son, Loji Höskuldsson, Kjartan Ari
Péturs son, Nína Gauta dóttir, Krist-
ján Guðmundsson, Ragna Róberts-
dóttir, Sigurður Guðmundsson,
Steinunn Harðardóttir, Svavar
Pétur Eysteinsson og Þórunn
Hjartar dóttir.
Öllum er frjáls aðgangur að
sýningunni, sem mun standa frá
klukkan 14.30 til 22 næstkomandi
laugardag. hallfridur@frettabladid.is
MYNDLISTARSÝNING Í
GÆSLUVALLARSKÝLI
ENDURBÆTT SKÝLI Kristín Róbertsdóttir og Hrafnkell Sigurðsson við gæsluvallarskýlið við Hringbraut þar sem þrettán mynd-
listarmenn munu sýna verk sín á Menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 18. ágúst 2011
➜ Tónleikar
21.00 Hljómsveitin 1860 heldur tón-
leika á bar 11. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Hópur trúbadora frá Banda-
ríkjunum, Ástralíu, Ítalíu og Þýskalandi
spila á bænum Merkigili á Eyrarbakka.
Miðaverð er kr. 1.000.
21.30 Tónleikar til minningar um
Abbey Lincoln í Ketilhúsinu, Akureyri.
Kristjana Stefánsdóttir syngur ásamt
hljómsveit. Aðgangseyrir er kr. 2.000
og kr. 1.000 fyrir félaga í Jazzklúbbi
Akureyrar.
22.00 Vestfirðingarnir Kolbeinn, Unnur
Astrid og Helga Bryndís halda söng-
veislu í Hömrum, Ísafirði. Aðgangseyrir
er kr. 2.000, en kr. 1.500 fyrir lífeyris-
þega og ókeypis fyrir 20 ára og yngri.
22.00 Steve Vai tribute hljómsveitin
heldur tónleika á Sódóma. Miðaverð er
kr. 1.500.
22.00 Tónlistarveitan gogoyoko.
com heldur órafmagnaða tónleika
með hljómsveitinni Valdimar á Hvítu
Perlunni, Austurstræti 12a. Aðgangseyrir
er kr. 1.500.
➜ Leiklist
20.00 Einleikurinn Beðið eftir gæsinni
verður fluttur á Kaffi Egilsstöðum. Höf-
undur er Ásgeir Hvítaskáld. Aðgangur er
ókeypis.
➜ Opnanir
16.00 Sýning Evu G. Sigurðardóttur
Rauðir gúmmískór og John verður
opnuð á Torginu, Þjóðminjasafni
Íslands. Á sýningunni eru málverk,
teikningar og innsetning. Allir velkomnir.
17.00 Sýningin Steinn, skæri, pappír og
lyklar að himnaríki opnar í Safnarahorni
Gerðubergs. Allir velkomnir.
➜ Söfn
17.00 Listasafn Reykjavíkur með kynn-
ingu á fræðslumöguleikum sem eru
í boði fyrir öll skólastig og almenning
í vetur um leið og helstu sýningum
safnsins og dagskrá verður gerð skil.
Allir velkomnir og þátttaka er ókeypis.
20.00 Listasafn Reykjavíkur stendur
fyrir sérstakri athöfn og leiðsögn í tilefni
af flutningi Vatnsberans í Lækjargötu.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.